Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 27

Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. NÓVEMBER 1979 27 Þór Vigfússon, Magnús Pálsson, Kecs Visser, Kristinn HarAarson ok Ólafur Lárusson sitja hér á kðssum sem m.a. eru framlaK Þórs Vigfússonar til sýningarinnar á Kjarvaisstöðum. Ljósm. Emilía. Nýlist á Kjarvalsstöðum Fimm myndlistarmenn, þeir Kees Visser, Kristinn Harðar- son, Ólafur Lárusson, Magnús Pálsson og Þór Vigfússon, opn- uðu á föstudagskvöld, sýningu á verkum sínum á Kjarvals- stöðum. Öll verkin á sýningunni flokkast undir nýlist og sagði Ólafur að verk sýnendanna væru mjög ólík. „Það eina sem tengir okkur saman er að við vinnum að myndlist," sagði hann. Meðal þeirra verka sem eru á sýning- unni má nefna þrívíddarstærð- fræði á leirtöflum og fléttu- myndir úr pappír. Sýningin verður opin til 25. nóvember kl. 16—22 virka daga en kl. 14—22 um helgar. „Kári litli í sveit” í danska útvarpinu Barnabókin Kári litli i sveit, eftir Stefán Júlíusson, er um þessar mundir lesin í danska útvarpinu. Bókin kom fyrst út í Danmörku 1976 og síðan á nýjan leik 1977 og er nú uppseld. Útgefandi bókarinnar er Birg- itte Hövrings Biblioteksforlag, en Rigmor Hövring þýddi bókina sem nefnist á dönsku: Drengen og hunden. Ónnur bók Stefáns, Kári litli og Lappi, kom svo út í Danmörku á s.l. vori hjá sama forlagi og þá í þýðingu Þorsteins Stefánssonar rithöfundar. Basar og kaff isala í Landakotsskóla Undanfarin ár hefur Kvenfélag Krists-kirkju (Paramentfélagið) haldið basar og kaffisölu til ágóða fyrir kaþólsku kirkjuna hér á landi, og hefur það verið mjög vinsælt meðal Reykvíkinga. í ár mun kvenfélagið halda basar og kaffisölu í Landakotsskólanum sunnudaginn 18. nóvember n.k. kl. 15.00 (kl. 3 e.h.) Á basarnum verður margt góðra muna til sölu sem nota má til jólagjafa, og verða þeir seldir á mjög sanngjörnu verði. í kaffinu geta menn svo gætt sér á hinum gómsætu kökum. Eru allir hvattir til þess að koma og styrkja málefni Kvenfé- lags Krists-kirkju. Séra Ágúst K. Eyjólfsson. KLUKKAN 11 þann 11.11. sl. var athöfn við minnisvarða um fallna hermenn Samveldislandanna i Fossvogskirkjugarði. Var þá lagður blómsveigur fyrir hönd Bretlands, Kanada og Ástralíu og flutti sr. Óskar J. Þorláksson ritningarorð og bæn. Viðstaddir voru fyrrver- andi hermenn sem búsettir eru hér á landi og fjölskyldur, en einmitt á þessum sama tíma fyrir 61 ári var lýst uppgjöf Þjóðverja eftir fyrri heimsstyrjöldina. í lífsins ólgusjó Ný bók eftir Jóhann J.E. Kúld ÚT ER komin bókin i lífsins ólgusjó, eftir Jóhann J.E. Kúld, III. bindi ritsafns hans. í bókinni rekur hann endurminningar sinar frá liðnum árum, þar sem ýmsir erfiðleikar urðu á vegi hans, svo sem erfiður sjúkdómur, ástvinamissir, atvinnuleysi og fá- tækt, en einnig er sagt frá hamingjustundum og ævintýrum er hann hefur lent i. Dr. Guðmundur Finnbogason landsbókavörður sagði í ritdómi um fyrstu bók höfundar, íshafs- ævintýri. „Hann er fæddur rithöfundur og óvíst að hann segði betur frá, þó hann hefði gengið í annan skóla en hinn stranga skóla reynslunnar, sem hann hefur staðist með sæmd.“ Það er Ægisútgáfan sem gefur bókina út, en hún er 167 blaðsíður að stærð. „Fyrr en dagur rís“ ÚT er komin hjá Bókaútgáfunni Erni og örlygi ein bóka Græn- landsvinarins Jörn Riels og nefn- ist hún „Fyrr en dagur rís“. Á frummálinu heitir hún „For morgendagen“. Þýðandi bókarinnar er dr. Frið- rik Einarsson læknir, en hún er filmusett, umbrotin og prentuð í prentstofu G. Benediktssonar og bundin í Arnarfelli. Kápumynd gerði Bjarni D. Jónsson. J.C.-kynning í Garðabæ J.C. Garðar í Garðabæ gengst fyrir kynningarfundi á starfsemi sinni í Flataskóla Garðabæ, n.k. laugardag 17. nóv. kl. 14.00. Garð- bæingar á aldrinum 18—40 ára, sem hafa áhuga á að kynnast félaginu eru velkomnir. Fréttatilkynning Falið vald „FALIÐ VALD“ heitir ný bók, sem Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur sent á bókamarkaðinn. Bók- in er eftir ungan íslending, Jó- hannes Björn, sem að mestu hefur verið búsettur erlendis síðustu árin og einkum dvalið í Svíþjóð og Englandi. Hann hefur m.a. lagt stund á félagsfræði auk náms í sundurgreiningu upplýsinga o.fl. Jóhannes hefur einnig lagt stund á kerfisbundnar rannsóknir á sviði stjórn- og peningamála og birtast niðurstöður þeirra rann- sókna í þessari bók. Þetta er önnur bók höfundar, áður hefur komið út eftir hann ljóðabókin Blástjörnur. Bókin er filmusett, umbrotin og prentuð í prentstofu G. Bene- diktssonar, þundin í Arnarfelli og kápumynd gerði Ernst Bachmann. Jólakort Hringsins KVENFÉLAGIÐ Hringurinn sel- ur nú fyrir þessi jól jólakort, og verður ágóðanum varið til barna- spítala Hringsins. Útsölustaðir eru eftirfarandi: Klausturhólar, Laugavegi 71, Gjafahúsið, Skóla- vörðustíg 8, Hygea, snyrtivöru- búðin í Reykjavíkurapóteki. Kvenfélag Laugarnes- sóknar með flóamarkað Laugardaginn 17. nóv. hefur Kvenfélag Laugarnessóknar flóamarkað í kjallara Laugar- neskirkju frá kl. 2-6 síðdegis. Þessi flóamarkaður er liður í fjölbreyttri fjáröflunarstarfsemi Kvenfélagsins, en kvenfélags- konur í Laugarnessókn hafa sýnt mikinn dugnað í starfi alla tíð. Nú stendur yfir bygging safnað- arheimilis við Laugarneskirkju svo nú ríður á að vel gangi með alla fjáröflun. Rétt er að vekja athygli á því að á þessum flóamarkaði verða eingöngu til sölu ný og ónotuð fót. Það eru því miklar líkur til þess að fólk finni eitthvað viö sitt hæfi í kjallara Laugarneskirkju aö þessu sinni. Jón I). Ilróhjartsson. sóknarprestur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.