Morgunblaðið - 17.11.1979, Side 33

Morgunblaðið - 17.11.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 33 Fjárfesting fyrir framtíðina Uppbygging íslensks at- vinnulífs hefur á síðustu ár- um mótast af vangetu stjórn- valda til að stýra efnahags- málum og hagsmunatog- streytu fulltrúa einstakra atvinnugreina og byggðar- laga. Fjárfesting hefur verið óarðbær þar sem arðsemis- sjónarmiða hefur ekki verið gætt en sérhagsmunir at- vinnugreina og byggðarlaga ráðið ferðinni. Islendingar hafa fjárfest meira á undan- förnum árum en flestar aðrar þjóðir en hagvöxtur ekki ver- ið í neinu samræmi við það. Taka þarf upp nýja stefnu í atvinnumálum sem miðar að því að stækka það, sem til skiftanna er í stað höfuð- áherslu á skömmtun þess sem til er milli atvinnugreina og byggðarlaga. — Besta leiðin á næstu árum til þess að skapa ný atvinnutækifæri og auka þjóðarframleiðsluna er upp- bygging arðbærs hálaunaiðn- aðar sem nýtir innlenda orku. Iðnaður verður í fram- tíðinni meginstoð atvinnulífs íslendinga. Skort hefur skiln- ing á þessu hjá ráðamönnum og hafa því Islendingar ekki nýtt þau tækifæri, sem hér eru sem skyldi og þannig dregist aftur úr nágranna- þjóðum okkar i átvinnuupp- byggingu. — í landbúnaði hafa opin- ber afskifti orðið til þess að rjúfa samhengið milli fram- leiðslu og sölu búvara. Út- flutningsuppbætur, niður- greiðslur og styrkir hafa Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna kjörin á þingi sambandsins á Húsavik i september s.l. UfflHORP UMSJON: ANDERS HANSEN Þetta viljum Sókn þjóðarinnar til bættra lífskjara hefur verið stöðvuð af stjórnleysi og verðbólgu, sem vegur nú að grundvelli atvinnulífsins. Þjóðarframleiðsla fer minnk- andi og stöðnun og hnignun blasir hvarvetna við í efna- hagslífi landsmanna. Hundr- uð ungra íslendinga hverfa af landi brott á þessu ári vegna skorts á tækifærum hérlend- is. Þjóðin stefnir inní verstu kreppu síðari tíma, sem getur haft langvarandi áhrif á af- komu og lífskjör almennings í landinu. Þessa þróun er hægt að stöðva ef tekin verður upp ný stefna sóknar í efnahagsmál- um í stað verðbólgustefnu vinstri flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur nú markað einarða stefnu í efnahagsmálum, sem miðar að því að vinna bug á verð- bólguvandanum á sem skemmstum tíma og gera þannig mögulegt uppbygg- ingarstarf í efnahagsmálum. Skjótur sigur í verðbólgunni er frumforsenda þess að unnt verði að bæta lífskjör lands- manna og taka á þeim mörgu stóru verkefnum, sem fyrir liggja. Smáskammtalækn- ingar á verðbólgu hafa mis- tekist á síðustu árum og ljóst er, að ekki verður lengra haldið áfram þessari braut ef forða á langvarandi stöðnun og kreppu í efnahagslífi íslendinga. hvatt til framleiðslu án tillits til markaðsaðstæðna heima og erlendis. Vegna þessa óeðlilega kerfis afskifta ríkis- ins hefur landbúnaður um of einskorðast í einhæfan far- veg og hefur ekki aðlagast breyttum neysluvenjum og óskum neytenda. — í sjávarútvegi hafa mikil ríkisafskifti leitt til offjárfestingar á ýmsum sviðum. Hagkvæmni í fjár- festingu hefur ekki verið gætt og miðstýring hefur komið í veg fyrir nauðsyn- legan sveigjanleika, sem leitt hefur til ofnýtingar á vissum fiskistofnum. — Afskifti ríkisins af verslun hafa leitt til óeðli- legrar verðmyndunar sem leitt hefur til hærra verðlags en annars væri. — Lántökur ríkisins til óarðbærra fjárfestinga inn- anlands og erlendis hafa leitt til hárra vaxta og mikillar greiðslubyrði ríkisins. Þessir háu vextir koma síðan í veg fyrir fjárfestingu einstakl- inga í arðbærum fram- kvæmdum. Réttindi einstaklinga og persónuvernd Grundvallarhugmyndir okkar eru: — að sérhver maður fái að lifa í friði án íhlutunar ríkis eða hagsmunasamtaka um einkahagi hans — að sérhver einstaklngur fái að hafa skoðanir sínar og áhugamál í friði án þess að honum sé mismunað eða rétt- indi hans takmörkuð vegna þeirra. Á undanförnum árum hef- ur íhlutun ríkisins og hags- munasamtaka af málefnum fólks vaxið en réttur ein- við staklinganna minnkað. Ungir sjálfstæðismenn vilja breyta þessu. Við vilj- um: — að ríkinu séu ekki falin verkefni, sem einstaklingar eða frjáls samtök þeirra geta leyst þetur af hendi. — að sveitarstjórnum verði falin verkefni á kostnað ríkisins og þau þannig færð nær fólkinu. — að kosningalögunum verði breytt þannig að svig- rúm verði aukið til að kjósa persónur auk flokka. — að réttur fólks, sem á einhvern hátt er þroskaheft eða fatlað sé virtur og þessu fólki gert kleift að taka svo fullan þátt í þjóðlífinu sem frekast er mögulegt. Stöðvum land- flóttann — ný atvinnustefna mörkuð Ein alvarlegasta afleiðing upplausnarinnar í efna- hagsmálum og stöðvunar á vexti þjóðarframleiðslu er mikill og vaxandi landflótti. Tugir manna hverfa af landi í hverjum mánuði til þess að leita betri atvinnutækifæra erlendis. Skilning hefur skort á nauðsyn uppbyggingar iðnað- ar, sem einn atvinnuvega getur staðið undir vaxandi mannafla og betri lífskjörum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú markað atvinnustefnu, sem byggir á þessari stað- reynd. Stefna flokksins gerir ráð fyrir að þegar verði hafist handa um nýjar stór- virkjanir og innlend orka þannig notuð til að knýja vaxandi stóriðju. Gert er ráð fyrir frekari uppbyggingu þeirrar stóriðju sem fyrir hendi er og ennfremur að framkvæmdir hefjist á næsta kjörtímabili við nýtt stór- iðjufyrirtæki. Stefnan miðar að uppbyggingu hálaunaiðn- aðar á Islandi með þessum hætti og með því að skapa innlendum smáiðnaði skil- yrði til vaxtar. Með ráðstöf- unum til þess að innlendur iðnaður búi við sömu skilyrði og aðrar atvinnugreinar má styrkja stöðu hans þannig að hann geti greitt hærri laun með auknum útflutningi og sterkari stöðu á innanlands- markaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.