Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
37
félk í
fréttum
Vörður yfir þeim dag og nótt
+ FEGURÐARDÍSIR írá Norðurlöndum eru hér saman á mynd, sem tekin var á hóteli í London. Þar
eru 60 (allegar stúlkur úr öllum heimshornum, saman komnar til þátttöku i alheimsfegurðarsam-
keppninni. — Sveitir frá Scotland Yard og ýmiss konar öryggisverðir vaka yfir stúlkunum 60 nótt
sem dag. A þessari mynd eru fegurðardísirnar frá Norðurlöndunum og er fulltrúi íslands, Sigrún
Sætran, lengst til vinstri. Á hótelinu þar sem stúlkurnar búa. 'eru þær i sama herbergi danska
fegurðardísin Lone Jörgensen og Sigrún. Lone þessi lét þau orð falla við danska blaðamenn að hún
myndi verða undrandi ef hún yrði valin meðal hinna 20 fegurstu stúlkna í þessari fegurðarsamkeppni.
Hóta að skera
aí þeim eyrun
+ I SUMAR sögðu blöðin frá því, að brezkri fjölskyldu
hefði verið rænt, er hún var ísumarleyfi á ítölsku eyjunni
Sardiníu. Eiginmanninum var sleppt eftir nokkurn tíma.
Fyrir hann var lagt að safna nægilegu lausnarfé, ef hann
vildi aftur sjá konu sína og dóttur þeirra hjóna. Hún er 14
ára gömul. Þetta gerðist í ágústmánuði síðastl. Mægðurn-
ar eru enn í haldi hjá mannræningjunum.
Um miðjan októbermánuð síðastl. var hringt til
veitingastofueiganda eins á eyjunni og hann gaf lögregl-
unni þegar skýrslu, að ef Bretinn, Rolf Schild, að nafni
héldi ekki áfram að leita samninga við mannræningjana
um lausnargjald fyrir konu sína og dóttur, mundu eyrun
verða skorin af þeim.
Slíkt hafa mannræningjar áður gert, er þeir rændu
auðmannssyni bandarískum, Paul Getty að nafni, á árinu
1973.
+ SVO sem kunnugt er af frétt-
um fór forsetafrú Bandarikj-
anna austur til Thailands fyrir
skömmu, til þess að kynnast
fióttamannavandamáiinu þar af
eigin raun. — Þessi mynd er
tekin af frú Rosalynn i búðum
flóttamanna frá Kambódíu. Hún
heldur á litlu barni. — Þessar
búðir eru um 75 km frá landa-
mærum Thailands og Kambódiu.
007
geríst
stríðsmaður
+ ÞESSI kappi er enginn annar
en sjálfur persónugervingur
lögregluhetjunnar James Bond,
— kvikmyndaleikarinn og sjón-
varpsstjarnan Roger Moore. —
Eftir mikla og erfiða leit að
glæsilegri leikkonu. til að leika
á móti honum tókst að finna
hina einu réttu — þessa, sem
heitir Barbara Kellerman. —
En hún á ekki að leika i „James
Bond mynd“. — Á þeirri rullu
ætlar Moore nú að hvíia sig,
a.m.k. í bili, þvi nú ætlar hann
að leika i kvikmynd sem segir
sögu úr heimstyrjöldinni og
heitir á ensku „The Sea Wol-
ves“. — í þeirri mynd á þessi
kvikmyndaleikkona að leika á
móti honum.
Höfum einnig opið á laugar-
dögum frá kl. 8—18.40.
Sparið tíma og fyrirhöfn og látið
okkur þrífa bílinn meöan þér bíöiö.
Bón- og Þvottastöðin
Sigtúni 3
I hádeginu í dag bjóðum við
blandað síldar- og sjávarréttaborð,
gómsætar kræsingar hafsins.
Á matseðlinum í kvöld:
Grísasteik með rauðkáli
og Róbert sósu
VeriÖ velkomin
HOTEL
LOFTLEHDIR
Veitingabúó