Morgunblaðið - 17.11.1979, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
og því, að honum ber að virða og
viðhalda sköpunarverki Guðs en
ekki neyta þess í meiri mæli en
hann þarf til að lifa. Hann hættir
að neyta og fer að ofneyta. Hann
hættir að að njóta og fer að neyta
og gleymir því, að hann er veginn
og léttvægur fundinn."
Hafi Sævar þökk fyrir greinina.
13.11.1979
Eb.Eb.
• Hvað er list?
Grein þessi er rituð vegna
skrifa Kristínar Einarsdóttur hér
í Velvakanda fyrir nokkru um
listamanninn Megas.
Við viljum mótmæla skrifum
Kristínar þar sem hún niðrar
Megas og telur að það sé háðsyrði
að kalla Megas listamann. Það fer,
að okkar dómi, ekkert á milli mála
að Megas er og verður listamaður
hvort sem hans list fellur að
hennar smekk eða ekki.
Ef Kristín myndi hlusta meira á
Megas kæmist hún að því að hann
Þessir hringdu . . .
• „Endurskoðið
símaskrána“
Vesturbæingur hringdi:
„Er ekki orðið nauðsynlegt að
endurskoða símaskrána? I henni
eru mörg númer ónauðsynleg og
oft er rangt sagt frá vitjunartíma
lækna. Er þetta mjög bagalegt
fyrir sjúklinga og fólk almennt.
Einnig þyrfti að taka til athugun-
ar fleiri aðila sem koma til greina.
Er landsímastjóri vinsamlegast
beðinn að taka þetta til athugun-
ar.“
• Hvers vegna ekki
afsláttakort?
Hafnfirðingur hringdi til
Velvakanda og vildi koma þeirri
spurningu á framfæri hvers vegna
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á IBM skákmóti í Amsterdam í
sumar kom þessi staða upp í
viðureign stórmeistaranna
Steans, Englandi, og Sax, Ung-
verjalandi, sem hafði svart og átti
leik.
21. .. .Rg4!! Hvítur gafst upp.
Eftir 22. fxg4 — Rh4 er hann
óverjandi mát. Engin hjálp er
heldur í 22. Dd6 vegna 22. .. .Hf4!
Þeir Hort og Sax urðu jafnir og
efstir á mótinu, hlutu báðir 9 v. af
13 mögulegum. Hálfum vinningi á
eftir þeim komu þeir Andersson
og Smejkal.
afskræmir síður en svo rödd sínar.
Megas beitir rödd sinni á mjög svo
skemmtilegan hátt og túlkar með
henni söngva og texta sína og
finnst okkur röddin einmitt eiga
vel við.
Og þetta með Guð. Megas má að
sjálfsögðu (eins og hver annar)
túlka sínar skoðanir og hugmynd-
ir um Guð án þess að telja megi
það Guðlast. Það er greinilegt að
Kristín telur Megas Guðlastara
vegna þess að Guð er hennar trú
og tilfinningamál en þarf Megas
að vera Guðstrúar til að rita um
hann í ljóðum? Má bara skrifa allt
gott um Guð að hennar mati?
Að lokum: Megas á að koma sem
oftast fram í fjölmiðlum. Það ætti
að kenna fólki að meta list hans.
Enda væri fáránlegt að takmarka
það hverjir koma fram fyrir al-
þjóð og hverjir ekki.
Og gjarnan vildum við fá skýr-
ingu Kristínar á því hvað er list og
hver er listamaður og hver ekki?
Valgerður (9117-3298)
og Karl (5517-9301).
• Enn um Búkovskí
og segldúkinn
Steinþór Eiríksson á Egils-
stöðum hafði samband við Velvak-
anda vegna greinar R.Þ. og S.F.
um frásagnir Búkovskís um pynt-
ingaraðferðir á geðveikrahælum í
Rússlandi.
„R.Þ. segir að það sem Búkovskí
sagði geti ekki staðist þar sem
segldúkur skreppur ekki saman er
hann þornar. En það eru til fleiri
en ein tegund af segldúk, og hafa
þeir e.t.v. mismunandi eiginleika.
Það sem S.F. segir er einnig
ofsagt. Ég gerði tilraunir með
þetta sjálfur. Ég tók tvo bómull-
arvefjargarnsþræði og bleytti
annan. Síðan strengdi ég þá jafn
mikið. Er sá blauti hafði þornað
hafði hann gefið eftir um 0,8%
Mig langar einnig til að benda á
það að sú aðferð sem Búkovskí
nefndi var viðhöfð hér fyrr en þá
var í það notað blautt skinn þar
sem það dregst saman er það
þornar."
afsláttarkort fengjust ekki og
hefðu ekki fengist um tíma hjá
Landleiðum.
Hjá Landleiðum fékk Velvak-
andi þau svör að fyrirtækið teldi
sig ekki hafa efni á að selja
afsláttarkort þar sem þeir hefðu
ekki enn fengið að hækka far-
gjöldin en þeim hefði verið lofað
að slíkt kæmi til framkvæmda í
október. Síðasta hækkun á far-
gjöldum með Landleiðum var í
sumar og hækkaði fargjaldið þá
um 13%.
Gott tækifæri
Til sölu er rúmgóö 4ra herb. íbúö á jaröhæö
í Hólahverfi. Skipti á 2ja—3ja herb. íbúö
æskileg. Uppl. um helgina í síma 42666.
Til
sölu
Dodge
árg.
1977.
Uppl.
í síma
71998
Utankjörstaðakosrang
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins er ■ Valhöll,
Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788,
39789.
Sjálfstæöisfólk, vinsamlegast látiö skrif-
stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru
heima á kjördegi.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá.
Utankjörstaöakosning fer fram í Miðbæjar-
skólanum alla daga 10—12, 14—18 og
20—22 nema sunnudaga 14—18.
Bændur!
1 vetur munum við getað útvegað
ELTEX, merki í lömb. ELTEX-merkin
eru gerð úr þunnri álplötu, með bogn-
um járnpinna, sem stungið er í eyrað og
lokað.
ELTEX-merkin fás* áletruð (2X4
stafir) samkvæmt pöntun, með tölu-
stöfum og/eða bókstöfum. (sjá mynd)
Einnie m.unum. uið pipn mprhinrnrSir n <
Bændurl Vinsamlega pantið merkin
sem fyrst og ekki seinna en 15. janúar
J.9SO, á varahlutalager okkar.
/S Véladeild
m Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 389
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU