Morgunblaðið - 17.11.1979, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
Handknattleikur
um helgina
íslandsmótið í handknattleik heldur áfram af fullum krafti um
helgina, en þá fara fram eftirtaldir leikir:
Laugardagur:
Hafnarfjorður
Laugardalshöll
kl. 14.00
kl. 14.00
kl. 15.15
kl. 16.20
kl. 17.25
1. deild karla
1. deild karla
1. deild kvenna
1. deild kvenna
2. deild kvenna
FH - HK
Fram — Valur
KR — Þór
Valur - FH
Armann — ÍR
Sunnudagur:
Varmá kl. 14.00
kl. 15.15
Vestmannaeyjar kl. 14.00
Njarðvík kl. 13.00
Laugardalshöll kl. 14.00
kl.19.00
kl.20.15
2. deild karla
2. deild kvenna
2. deild kvenna
1. deild kvenna
2. deild karla
1. deild karla
1. deild kvenna
UMFA - Fylkir
UMFA - UMFN
Týr - HK
UMFG - Þór
Ármann — Þór VE
Vík. — Haukar
Fram — Vikingur
Blak um helgina
Eftirtaldir leikir fara fram i íslandsmótinu i blaki um helgina:
LAUGARDAGUR
Laugarvatn, kl. 15.00,1. deild karla, UMFSL — ÍS
Skemman Akureyri kl. 15.00,1. deild kvenna, ÍMA — Þróttur
Skemman Akureyri, kl. ca. 16.15,1. deild karla, UMSE— Þróttur
Skemman Akureyri, kl. ca. 17.30 2. deild karla, ÍMA — Fram.
SUNNUDAGUR
Glerárskóli Ak., kl. 10.00, 2. deild karla, KA — Fram
Hagaskólinn, kl. 19.00,1. deild kvenna, ÍS — Vikingur,
Hagaskólinn kl. ca. 20.15,1. deild karla, ÍS — Vikingur.
Körfuknattleikur
um helgina
LAUGARDAGUR
Njarðvík kl. 13.30 úrvalsdeild UMFN-Valur
Hagaskóli kl. 14.00 úrvalsdeild Fram — ÍS
Haukahúsið kl. 13.00 2. deild Haukar - ÍA
SUNNUDAGUR
Njarðvík kl. 13.00 1. deild ka. UMFG-UMFS
Hagaskóli kl. 13.30 úrvalsdeild ÍR-KR
Hagaskóli kl. ca. 15.00 1. deild kv. ÍR-KR.
Þrír íslendingar
á NM í júdó
ÞRÍR islenskir keppendur taka þátt i Norðurlandamóti kvenna og
unglinga sem fram fer i Kaupmannahöfn dagana 17.—18.
nóvember næstkomandi.
Tvær islenskar stúikur keppa fyrir íslands hönd, þær Anna Lára
Friðriksdóttir og Anna Lindai. Einn íslendingur keppir i
mglingakeppninni, en það er Sigurður Hauksson frá Keflavík.
Iann keppti á Evrópumeistaramóti unglinga um síðustu helgi og
tóð fyrir sinu þótt ekki kæmist hann i úrslitakeppnina.
Fellur Leeds?
IVERTON burstaði Leeds í 1. deild ensku knattspyrnunnar í
yrrakvöld. Lokatölur urðu 5—1, þar af skoraði Bob Latchford
rívegis. Þá vann Arsenal öruggan sigur á Brighton, 4—0, á
eimavelli sínum, en leikurinn var liður í deildarbikarkeppninni.
rank Stapelton og Alan Sunderland skoruðu sín tvö mörkin hvor.
Einkunnagjöíln
LIÐ ÍR: Þórir Flosason 2, BJarni Hákonarion 1, Guðjón
Marteinsson 2, Siguróur Svavarsson 2, GuAmundur
Þórðarson 2, Bjarni Bossason 3, Ársasll Kjartansson 2,
Pótur Valdimarsson 1, Steinn Öfjöró 1, Hörður Hákonarson
1, Ásgrímur Friðriksson 3, Bjarni Bjarnason 1.
LID KR: Pótur HjAlmarsson 2, Svavar Ásmundsson 1,
Ölafur Lárusson 2, Björn Pótursson 2, Friðrik Þorbjörnss-
on 2, Jóhannas Stefánsson 3, Þorvaröur Höskuldsson 2,
Krlstinn Ingason 2, Konróö Jónsson 2, Haukur Ottesen 2,
Siguröur Póll Óskarsson 1, Sfmon Unndórsson 2.
DOMARAR: Árni Tómasson og Jón Friðriksson 2-
Haukar: Gunnar Einarsson 1, Ólafur Guðjónsson 3, Árni
Svsrrisson 2, Ingimar Haraldsson % Júlíus Pólsson 2, Guömundur
Haraldsson 2, Sigurgeir Marteinsson 2, Árni Hermannsson 3,
Höröur Haröarson 1, Stefán Jónsson 3, Þórir Gíslason 2, Karl
Ingason 1.
Fram: Gissur Ágústsson 1, Sigurður Þórarinsson 2, Atli
Hilmarsson 3, Andrós Bridde 3, Hannes Leifsson 3, Theódór
Guðfinnsson 3, Birgir Jóhannsson 3, Sigurbergur Sigsteinsson 2,
Erlendur Davíösson 2, Jóhann Kristinsson 1, Egill Jóhannesson 2.
Dómarar: Ólafur Steingrímsson og Gunnar Kjartansson 1.
• Morgunblaöiö heiöraöi í gærdag sex íþróttamenn í hófi sem fram fór é Hótel
Loftleiöum. Voru afreksmönnunum veittir veglegir verölaunagripir. Á myndinni sést
Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri Árvakurs hf. flytja ávarp í upphafi verölauna-
afhendingarinnar. Ljósmynd mu. r»x.
Enn er Coe heiðraður
BRESKIR iþróttamenn kusu i
gær Sebastian Coe íþróttamann
ársins í Bretlandi og voru yfir-
burðir hlauparans með
ólikindum, en komu ekki á óvart.
Coe hlaut 340 atkvæði, en næsti
maður hlaut aðeins 50. Það var
Krikket-spilarinn Ian Botham.
Knattspyrnusnillingurinn
Kevin Keegan fékk 43 atkvæði og
hnefaleikmaður nokkur að nafni
Maurice Hope varð fjórði með 41
atkvæði.
Caroline nokkur Bradley varð
hlutskörpust meðal kvenfólksins,
fréttamennirnir voru hrifnastir
af henni og afrekum hennar, en
hún var fyrirliði breska dýfinga-
landsliðsins sem varð Evrópu-
meistari á árinu. Tugþrautar-
konan Kathy Taylor varð í öðru
sætinu, en sundkonan Margret
Kelly varð þriðja, en hún sigraði
í 100 metra bringusundi í siðustu
heimsmeistarakeppni.
Austramenn anda lettar
BÚIÐ er að kveða upp dóm í einu
furðulegasta kærumáli sem
heyrst hefur um i knattspyrn-
unni. Reynir i Sandgerði kærði
úrslit leiks sins gegn Austra sem
lauk án þess að mark væri
skorað. Leikurinn var úrslita-
leikur um hvort liðið skyldi
hrapa niður i þriðju deild, en
fyrir leikinn undirrituðu leik-
menn beggja liða skjal þar sem
bæði liðin samþykktu að ef úrslit
næðust ekki, kyldi fara fram
vitaspyrnukeppni i leikslok.
Austramenn höfðu betur i
vitakeppninni og töldu sig þvi
hafa bjargað skinninu. Reynis-
menn voru hins vegar óhressir,
enda fallnir, og kærðu úrslitin til
KSÍ. Báru þeir fyrir sig reglu
nokkra sem dómstóll II''í fann
siðan út að stangaðist á við aðra
reglu. Dómstóll KSÍ kvað þvi upp
þann úrskurð að úrslitin stæðu
óbreytt, en reglurnar verða end-
urskoðaðar á næsta ársþingi.
gg.
• Jim Melrose.
Aldrei ánægðir
hjá Liverpool
MEISTARAR Zliverpool eru
aldrei ánægðir. Að flestra dómi
er í liðshópi félagsins að finna
fleiri snjalla knattspyrnumenn
heldur en hjá nokkru öðru félagi.
Við liggur að Liverpool geti teflt
fram tveimur sterkum liðum. Nú
hefur félagið augastað á einum
efnilegasta framherja skosku
knattspyrnunnar, en það er Jim
Melrose sem leikur með Partick
Thistle.
Líklega fá forráðamenn Liver-
pool skæðan keppinaut sem er
QPR, en framkvæmdastjórinn
frægi Tommy Docherty hefur
lengi haft áhuga á að tryggja
Melrose fyrir félag sitt. Bæði
félögin hafa gert Partick tilboð, en
hve há vita aðeins forráðamenn
félaganna. Vel gæti svo farið að
stjórnin hjá Partick, Berti Auld,
fældi öll félög frá með að setja
risaupphæð á Melrose.
Manchester-liðin tvö, United og
City, eru sögð vera í kapphlaupi
um júgóslavneskan landsliðsbak-
vörð, sem fær sig lausan frá félagi
sínu um áramótin. Einn júgóslavi
er fyrir hjá City, Dragon Stepan-
owiczh.
Forest áfram - tap hjá Ajax
ALLMARGIR merkilegir
knattspyrnuleikir fóru fram i
fyrrakvöld. í Hollandi vann
Twente góðan sigur á efsta liðinu
Ajax, 1—0, og skoraði Ab Gritter
sigurmarkið seint i leiknum.
Ajax er enn efst, en hagur
keppinautanna Feyenoord og
Alkmaar vænkaðist að sjálf-
sögðu.
Nottingham Forest tryggði sér
sæti í 8-liða úrslitum deildarbik-
arkeppninnar með 3—0 sigri yfir
Bristol City á heimavelli. Martin
O’Neil, Viv Anderson og Tony
Woodcock skoruðu mörk liðsins.
Forest mætir West Ham í næstu
umferð, á heimavelli Lundúnaliðs-
ins.
West Ham tapaði fyrir Chelsea
á Stamford Bridge í 2. deildar-
keppninni. Lokatölur 2—1 fyrir
Chelsea. Frost og Fillery skoruðu
fyrir Chelsea, en Holland svaraði
fyrir West Ham.
Noregur vann góðan sigur á
Vestur-Þjóðverjum í landsleik
áhugamanna í knattspyrnu. Um
er að ræða undankeppni fyrir
Ólympíuleikana. Arne Larsen Ok-
land skoraði eina mark leiksins og
Norðmenn verða fyrir vikið meðal
úrslitaliða í Moskvu næsta sumar.
Danir unnu Spánverja í vináttu-
landsleik í knattspyrnu sem fram
fór í Cadiz á Spáni. Lokatölur
urðu 3—1, staðan í hálfleik var
1—0 fyrir Dani. Elkjavdrasen
skoraði tvívegis og Nygaard einu
sinni, en mark Spánverja skoraði
Manuel Mesa.