Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
43
Morgunblaðið heiðrar
sex íþróttamenn
HARALDUR Sveinsson, framkvæmdastjóri Árvakurs hf, afhenti
verðlaunamönnum Mbl. i boltaíþróttum gripi sina í hófi á Hótel
Loftleiðum. Svo sem kunnugt er, er verðlaunaafhending þessi orðin
hefð í íslensku iþróttalifi, en verðlaun voru nú afhent i áttunda
skiptið. Verðlaunamenn Mbl. að þessu sinni voru Ársæll Sveinsson,
ÍBV, og Sigurlás Þorleifssons, Víkingi, i knattspyrnu, ólafur
Benediktsson og Geir Hallsteinsson i handknattleik. I fyrsta skipti
voru nú afhent verðlaun fyrir afreksmenn i körfuknattleik, hann
hefur náð slikum vinsældum siðustu árin, að ekki var stætt á öðru. Jón
Sigurðsson var kosinn leikmaður íslandsmótsins og Bandaríkja-
maðurinn Mark Christensen var stigakóngur mótsins.
Haraldur setti hófið og siðan flutti Þórarinn Ragnarsson iþrótta-
fréttamaður Mbl. ávarp þar sem hann sagði m.a.: „Nú eru liðin átta ár
siðan Mbl. hóf að heiðra þá iþróttamenn sem sköruðu fram úr á
Íslandsmótum i knattspyrnu og sjö ár siðan sami háttur var hafður á
í handknattleiknum. Nú veitir Mbl. körfuknattleiksmönnum viður-
kenningu í fyrsta skiptið. Þessi verðlaunaafhending hefur unnið sér
fastan sess i íslenskum iþróttum. Við sem stöndum að stigagjöfinni
erum iðulega gagnrýndir fyrir einstaka leiki, en þegar upp er staðið
hverju sinni í lok keppnistimabils, held ég að flestir geti verið
sammála um, að þeir sem verðlaunin hljóta eru vel að þeim komnir.
Tiigangur verðlaunaafhendingarinnar er tvíþættur, fyrst og fremst
að heiðra þá iþróttamenn sem skara fram úr hverju sinni og um leið
að vekja áhuga á iþróttum almennt.“
• Ársæll Sveinsson tekur við verðlaunagrip sínum úr
hendi Haraldar Sveinssonar.
• ólafur Benekiktsson fær sinn hikar.
• Geir Hallsteinsson tekur við verðlaunum sínum
sem markakóngur handbolta. Ekki í fyrsta skiptið.
Síðan rakti Þórarinn nokkur
dæmi þess hve einkunnagjöfin
væri víðlesin og ræddi síðan um
þann aðstöðumun sem íslenskt
íþróttafólk býr við miðað við
kollega sína erlendis og að þeim
aðstöðumun vildi fólk oft gleyma
þegar att væri kappi við erlent
íþróttafólk. „Miðað við aðstæður
er raunar undravert hversu góð-
um árangri íslenskir íþróttamenn
hafa náð á undanförnum áratug-
um og vakið verðskuldaða athygli
á landi og þjóð. Umbun þeirra er
oft ekki mikil, það er því vel við
hæfi að heiðra þá íþróttamenn
sem skara fram úr eins og Mbl.
gerir nú hér í dag,“ sagði Þórar-
inn.
Verðlaunamenn Mbl. 1979
eru þessir:
Leikmaður íslandsmótsins í
handknattleik var valinn Ólafur
Benediktsson, markvörður hjá
Val. Snilli Ólafs er alkunn og er
hann vafalaust einhver besti ef
ekki besti handboltamarkvörður
sem ísland hefur átt. Hann hefur
um árabil komið mönnum meira
og meira á óvart og sjaldan verið
betri en á síðasta keppnistímabili.
Blm. Mbl. gáfu Ólafi samtals 37
stig í 12 leikjum, en að meðaltali
er það 3,08. Andrés Kristjánsson
veitti Ólafi harða keppni, en varð
að lúta í lægra haldi undir lokin.
Andrés er hins vegar svo ungur
enn, að ekki er ólíklegt að hann
eigi eftir að hreppa umræddan
grip fyrr eða síðar.
Markakóngur íslandsmótsins í
handknattleik var Geir Hall-
steinsson ieikmaður með FH.
„Ætli þetta sé ekki síðasti bikar-
inn sem ég kræki í,“ sagði Geir í
hófinu í gær. Það er aldrei að vita.
Ekki þarf að kynna Geir fyrir
lesendum. Ef Óli Ben. er besti
markvörðurinn fyrr og síðar, þá er
Geir besti útispilari sem upp
hefur komið hérlendis. „Gamli"
maðurinn var einnig markakóng-
ur Islandsmótsins þegar verðlaun-
in voru fyrst veitt, árið 1972. Sama
ár hlaut Geir einnig titilinn „leik-
maður Islandsmótsins". Enn er
Geir að skora og skákar ungu
mönnunum. Á síðasta keppnis-
tímabili skoraði Geir 95 mörk.
Næstir voru þeir Stefán Hall-
dórsson, þá leikmaður með HK, nú
með Val, og Hörður Harðarson,
Haukum, en báðir skoruðu 79
mörk. Yfirburðir hjá hinum
síunga Geir Hallsteinssyni.
Markakóngur íslandsmótsins í
knattspyrnu var Sigurlas Þor-
leifsson, Víkingi. Hann skoraði 10
mörk og lék aðeins 14 leiki af 18.
Sigurlás hefur síðustu árin verið
einn marksæknasti og að sama
skapi markheppnasti leikmaður 1.
deildar og í sumar var hann í
fyrsta skiptið valinn í landsliðs-
hópinn. Lék hann og sína fyrstu
landsleiki gegn Austur-Þjóðverj-
um og Hollendingum. Steinar Jó-
hannsson skoraði einu marki
minna en Sigurlas og er afrek
hans ekki síður gott en Sigurláss,
en Steinar skoraði mörkin í átta
og hálfum leik.
Ársæll Sveinsson, markvörður
ÍBV, var valinn leikmaður
íslandsmótsins í knattspyrnu og
hljóta allir að vera sammála um
að réttur maður fékk þá nafnbót
að þessu sinni. Ársæll hlaut 3,05
að meðaltali í einkunn fyrir leiki
sína síðasta sumar og var án efa
jafnbesti leikmaður ÍBV. Var
markvarsla hans oft á tíðum
stórbrotin og það fór ekki fram
hjá landsliðsnefndinni, sem valdi
Ársæl í landsliðshópinn. Vart
mun þess langt að bíða, að Ársæll
leiki sinn fyrsta landsleik.
Leikmaður íslandsmótsins í
körfuknattleik var í fyrsta skiptið
valinn Jón Sigurðsson KR. Ekki
kemur það á óvart, en Kristinn
Jörundsson ÍR veitti honum harða
keppni og allt til síðasta leiks
mátti ekki á milli sjá hvor hefði
betur. Kom það heldur ekki á
óvart að Kristinn kom sterklega
til greina, en þeir félagarnir eru
örugglega snjöllustu körfubolta-
menn landsins. En það er einn
útvalinn og Jón reyndist hafa ögn
betri meðaleinkunn, en hann fékk
3,15. Jón er burðarásinn í liði sínu,
sá sem stjórnar öllu á vellinum,
áður með Ármanni og nú með KR.
Val hans er verðskuldað.
Mark Christensen ÍR var stiga-
kóngur íslandsmótsins, þó ekki
léki hann með ÍR í fyrra, heldur
með Þór á Akureyri. Christensen
skoraði 600 stig í úrvalsdeildinni,
nokkru meira en næsti maður.
Hann hefur nú gengið til liðs við
ÍR og þykir liðið til ýmissa hluta
líklegt með Christensen innan-
borðs.
Ávörp:
Að venju stigu ýmsir í pontu og
létu í sér heyra um ýmis málefni
varðandi íþróttaskrif Mbl. Var
fyrir vikið bara nokkuð fjörugt á
köflum. Einkum strax í byrjun ei
Þórður, formaður handknattleiks-
deildar Vals, tók til máls og varaði
Mbl. við að hleypa hlutdrægni í
skrif sín. Hafði hann með sér
úrklippu úr Mbl. þar sem sagt var
frá úrslitaleik Vals og Víkings í
fyrra og gætti þar áberandi hlut-
drægni, að hans dómi. Hljóp nú
kapp í marga og margir tóku til
máls. Höfðu hlutlausir í máli
þessu mjög gaman af. Síðan þakk-
aði Þórður Mbl. fyrir það framtak
að veita þessi verðlaun, þau stuðl-
uðu mjög að auknum áhuga á
íþróttum hérlendis og væru keppi-
kefli íþróttamanna. Verður að
segjast eins og er, að allir, sem til
máls tóku, voru þakklátir Mbl.
fyrir framtakið. gg.
v.#'
• ♦
V.#-
• «
v.#4'
Titlafjöldi Mr.stakra félaga í öllum deildum og flokkum
íslandsmótu n innan- og utanhúss og bikarkeppni H.S.Í.
ur
íslandsmeistaramót Bikarkeppni Titlar
Félag innanhúss utanhúss H.S.l samtals
Ármann 52 12 1 65
F.H. 40 21 4 65
Fram 58 13 2 73
Fylkir 1 — — 1
Grótta 1 — 1
Haukar 12 3 1 16
H.K. 1 — — 1
Í.B.A. — 1 1
Í.B.Í. — 3 3
Í.B.K. 4 1 5
Í.R. 11 — — 11
K.R. 26 7 2 35
Leiknir 1 — 1
Stjarnan 2 1 — 2
Týr Vm. 1 1 — 2
U.B.K. 3 1 1 4
U.M.F.A. 3 — 3
U.M.F.G. 1 — — 1
U.M.F.N. 1 — — 1
Valur 50 21 1 72
Vikingur 23 1 3 27
Völsungur 7 3 — 10
Þór Ak. 3 — 3
Þór, Vm. 1 — — 1
Þróttur 12 — — 12
Samtals 314 88 15 417