Morgunblaðið - 17.11.1979, Page 44
Síminn á afqreiðslunni er
83033
JRirtmkhtik
flfo«gi»istlritaftfö
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
Erlend skuldaaukning á
þessu ári 20 milljarðar
Skuld á hvert mannsbam um 1,7 milljón króna
• Verðlaunaafhending Morg-
unhlaðsins. Morgunblaðið
heiðraði í gær sex íþróttamenn
sem skarað hafa fram úr i
íslandsmótunum í handknatt-
leik, körfuknattleik og
knattspyrnu á þessu ári. Mynd-
in var tekin við verðlaunaaf-
hendinguna. Standandi f.v.
Geir Halisteinsson, Sigurlás
Þorleifsson, Mark Christian-
sen og Jón Sigurðsson. Sitjandi
f.v. Arsæll Sveinsson, Harald-
ur Sveinsson og ólafur Bene-
diktsson. LJðsm. Mbl. RAX.
ERLEND skuldaaukning íslendinga mun tvöfaldast á þessu ári miðað
við þá lánsfjáráætiun, sem vinstri stjórnin lagði fram á Alþingi. Gert
hafði verið ráð fyrir þvi, að erlendar skuldir íslendinga ykjust um
rúmlega 10 milljarða króna, en aukningin mun verða um 20 milljarðar.
Verða þá erlendar skuldir íslendinga orðnar rúmlega 375 milljarðar og
er þá reiknað með um 50% hækkun meðalgengis á árinu 1979. Skuld á
hvert mannsbarn mun þá nema um 1,7 milljón króna.
Á fyrri helmingi þessa árs námu
innkomin ný erlend lán samtals
rétt tæplega 20 milljörðum króna,
en endurgreiðslur voru 12,6 millj-
arðar af eldri lánum. Aukning
erlendra lána á fyrri helmingi
ársins varð því 7,3 milljarðar
króna. Upphafleg spá um lánanotk-
un eða lántökur á öllu árinu 1979
var 39 milljarðar króna. Samkvæmt
nýju mati mun þessi spá ekki
Reykjavík:
50 árekstrar
— Nýttmet
FRÁ klukkan 06 til klukkan
24 á fimmtudag urðu 50
árekstrar i umferðinni i
Reykjavík og hafa aldrei áður
orðið jafn margir árekstrar á
einum degi.
Langflestir árekstranna urðu
frá klukkan 12,30 til klukkan
22.20 eða 36 að tölu. í sumum
árekstranna áttu fleiri en tveir
bílar hlut að máli og fimm bílar
lentu saman þegar flest varð.
Þannig hafa nokkuð á annað
hundrað bílar skemmst í þess-
um árekstrum á fimmtudaginn.
í gær var færð einnig slæm í
höfuðborginni en þó urðu mun
færri árekstrar þá eða 26 frá
klukkan 06 í gærmorgun til
klukkan 22 í gærkvöldi.
standast og bendir allt til þess að
um áramót verði innkomin ný
erlend lán fast að 50 milljörðum
króna, bæði vegna gengissigs og
eins vegna lánaaukningar. Má þá
;era ráð fyrir, að endurgreiðsla
gárna.4a, lána hækki einnig, þannig
mismunurinn, aukning erlendra
lána, verði rúmlega 20 milljarðar.
Svo sem áður hefur komið fram í
fréttum, hefur ríkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar tekið allmörg ný lán
á þeim valdaferli sínum, sem lauk í
byrjun september. í marz síðast-
liðnum samdi ríkisstjórnin um 1
milljón dollara lán hjá Den Norske
Kreditbank, en jafnvirði þess í
íslenzkum krónum er nú um 392
milljónir. Láni þessu var ætlað að
standa undir hlutafjártillagi ríkis-
ins í íslenzka járnblendifélagið h.f.
Þá tók Tómas Árnason, fyrrum
fjármálaráðherra, lán í Hamrbos
Bank í London, að upphæð 50
milljónir dollara, sem er jafngildi
19.6 milljarða íslenzkra króna. Það
lán var tekið vegna almennra fram-
kvæmda. 25 milljónir dollara hafa
þegar verið fluttir heim af þessu
láni eða tæplega 10 milljarðar.
Þá er að geta 2ja milljarða yena
lánatöku, sem tekin var vegna
Framkvæmdasjóðs. Andvirði þess í
íslenzkum krónum er 3,2 milljarðar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, mun
það lán að mestu komið heim, en
hefur þó ekki verið greitt Fram-
kvæmdasjóði enn. Þá hafa ýmis
ríkisfyrirtæki tekið lán og má þar
nefna Póst og síma, sem tók lán
vegna byggingar jarðstöðvarinnar
við Úlfarsfell og Landsvirkjun, sem
tók tvö mikil lán, annað vegna
framkvæmda við Hrauneyjarfoss
og 40 milljón dollara lán, jafnvirði
15.7 milljarða íslenzkra króna, sem
notað var til þess að greiða upp
önnur eldri lán, sem voru til
skemmri tíma og með óhagstæðari
kjörum. Slíkt lán kemur ekki inn
sem skuldaaukning, þar sem aðeins
er um skuldabreytingu að ræða.
Rannsókn hafin á
meintu auðgunar-
broti bílaumboðs
RANNSÓKN er nýlega hafin á
hugsanlegu auðgunarbroti
Toyota-bilaumboðsins í Kópavogi
og annast Rannsóknarlögregla
rikisins rannsókn málsins.
Málavextir eru þeir, að maður
einn keypti nýjan bíl af umboðinu
á þessu ári. Lánaði umboðið hon-
um hluta kaupverðsins og gaf
maðurinn síðan út veðskuldabréf
og greiddi umboðinu ákveðna upp-
hæð vegna kostnaðar við þinglýs-
ingu og stimpilgjald. Þegar skuld-
in var að fullu greidd fékk maður-
Kosningastjóri Alþýðubandalagsins:
Yfirlætisfullt þvaðurbréf SINE
lýsir vanþekkingu stiómarinnar
inn skuldabréfið afhent og veitti
hann því þá athygli, að bréfinu
hafði hvorki verið þinglýst né það
stimplað.
Maðurinn óskaði eftir rannsókn
á þessu afbroti hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins og kom þá í ljós,
að bréfinu hafði hvorki verið
þinglýst né það stimplað heldur
virðist upphæðin hafa runnið
beint til umboðsins. Frekari rann-
sókn leiddi í ljós, að umboðið hafði
haft þennan hátt á mörg undan-
farin ár. Liggur fyrir, að greiðslur
til umboðsins nema a.m.k. 4—5
milljónum króna og er þá reiknað
á verðlagi hvers árs en upphæðin
ekki færð til núvirðis. Greiðslur af
hverjum bíl hafa numið 12—13
þúsund krónum á þessu ári en
voru 3 þúsund krónur árið 1977.
KOSNINGASTJÓRI Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavík hefur
ritað athugasemd við „hið yfir-
lætisfulla þvaðurbréf, sem
SÍNE-stjórnin hefur sent fjöl-
miðlum“ og „lýsir slikri van-
þekkingu, að það tæki meira en
eina og meira en tvær námsann-
ir í Háskóla að bæta hér úr,“
eins og það er orðað i bréfinu.
Kosningastjórinn segist af þess-
um sökum ekki munu gera
athugasemd nema við tvö atriði i
„öllu þvi rangfærsluflóði“, sem í
SÍNE-bréfinu sé að finna og
hann kveður viðbrögð Péturs
Reimarssonar, formanns SÍNE
„dæmigerð fyrir leikbrúður
Fylkingarinnar“.
Fyrra atriðið er það, að hann
segir hina „ritglöðu stjórn" SÍNE
ekki hafa sent einn staf frá sér
um það, að hún hafi slitið sam-
starfi við Alþýðubandalagið
vegna kjörskrárkæra. Hitt atrið-
ið er viðkomandi vinnu þeirri,
sem stjórn SINE ætlar að leggja í
sjálf og ein vegna kærumálanna.
Þar segir hann að SÍNE hafi haft
aðgang að kjörskrám Alþýðu-
bandalagsins að Grettisgötu 3 og
hafi hún farið eftir leiðbeiningum
vegna kjörskrárkæra, gefnum út
af Alþýðubandalaginu. SÍNE hafi
notfært sér húsnæði og síma
Alþýðubandalagsins við hina
sjálfstæðu vinnu sína að kjör-
skrárkærum, „endurgjaldslaust
að sjálfsögðu". Enn hafi þeir þó
ekki kært inn einn einasta náms-
mann - ekki einn á sama tíma og
Alþýðubandalagið hafi kært inn'
tugi og hundruð námsmanna.
I lok bréfs kosningastjórans,
Úlfars Þormóðssonar, segir: „Að
lokum er rétt að benda almenn-
ingi á, að sú háreysti heimskunn-
ar, sem Pétur þessi Reimarsson
og SÍNE-stjórnin standa fyrir í
fjölmiðlum þessa daga, er ekki
upphafin með hagsmuni náms-
manna fyrir augum. — Þetta er
rétt aðeins ein aðgerðin í leiftur-
sókn íhaldsins gegn lífskjörum
almennings, í þessu tilliti gegn
lífskjörum námsmanna, undir
herstjórn Fylkingarinnar."
Sjá bréf kosningastjórans:
„Leiftursókninni bætist
liðsauki" á bls. 25.
Þýfið f annst
í öskutunnu
BROTIZT var inn 1 söluturninn
Bókhlöðustíg 2 i fyrrinótt og stolið
þar talsverðu af sígarettum og
sælgæti. Lögreglumenn gátu rakið
fótspor þjófanna í snjónum að ösku-
tifhnu við hús, sem stendur við
Laufásveginn. Og viti menn, þegar
lokið var tekið af tunnunni blasti
þýfið við og var því snarlega komið á
réttan stað.