Morgunblaðið - 25.11.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
51
HOLLOGGÓÐ
NÆRJNG FYRIR Lll
Einu sinni var lítill bókaormur.
Hann át bókstaflega allar bækur sem hann komst í,
því hann var algjör bókaormur. En svo fékk hann
magapínu. Sumir halda að hann hafi étið of margar
vondar bækur sem hafi orðið að æðislegum köggli
í maganum á honum.
Ef þú þekkir litla bókaorma þá skaltu
kynna þér vel hvaða fóður þú velur þeim.
Páll H. Jónsson:
AGNARÖGN
Agnarögn er átta ára stúlka, og hún á að
vera ráðskona hjá Afa meðan Amma
fer í ferðalag. Og ýmislegt ber við í
Hverfinu þennan tíma . . . Geðþekk
saga fyrir unga sem aldna. Páll H.
Jónsson hlaut bamabókaverðlaun
fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir BERJA-
BÍT. Þorbjörg Höskuldsdóttir mynd-
skreytti Agnarögn.
Ole Lund Kirkegaard:
ALBERT
Albert er dálítið óþægur en mikill æringi
og finnur upp á ýmsu: hann grefur
stelpugildru, glettist við vasaþjóf, kemur
upp um frúna sem var söguð sundur og
sendir nokkra þorpara upp í loftið
með belg. - Eftir sama höfund eru
FÚSI FROSKAGLEYPIR og
GÚMMÍ-TARSAN. Þorvaldur
Kristinsson þýddi.
BARBAPAPA
Barbapapafjölskylduna þarf ekki að
kynna. Nú eru komin sex ný hefti.
Svo höfum við fleira, m.a. bók með
hljómplötu þar sem er lagið vinsæla úr
sjónvarpinu, ásamt fleirum. Sögumar
um barbapapana em eftirlæti allra bama
- einkum hinna yngstu.
KALLI OG KATA
ÖRKIN HANS NÓA
Gullfalleg myndabók eftir virtan
amerískan listamann, Peter Spier.
Texti bókarinnar er gamalt kvasði eftir
hollenskt skáld í snjallri þýðingu
Þorsteins frá Hamri.
LITLI SVARTI SAMBÓ
Hér er hún komin aftur, sagan sem lítil
böm gleyptu í sig fyrir nokkrum
áratugum. FaUegar litmyndir. Og önnur
bók eftir sama höfund, Helen
Bannermann, kemur nú út í fyrsta sinn:
SAMBÓ OG TVÍBURARNIR.
Kjömar bækur fyrir böm sem em að
læra að lesa.
TUMIOGEMMA
Bækur Gunillu Wolde um þau Tuma og
Emmu hafa hvarvetna notið gífurlegra
vinsælda enda er hér tvímælalaust
um að ræða vandað og skemmtilegt
lestrarefni fyrir yngstu bömin. Tvær
nýjar bækur um Tuma og tvær um
Emmu, og fjórar endurprentaðar.
Guðrún Helgadóttir:
CWnTAR^
Allir þekkja sögur Guðrúnar Helga-
dóttur. Nú hefur hún samið leikrit fyrir
böm. Það fjallar aðallega um tvo stráka
og heimilislíf þeirra þegar óvæntir
atburðir gerast. Guðrún samdi ÓVITA
að beiðni Þjóðleikhússins og kemur
leikritið á prent samhliða frumsýningu.
J.R.R. Tolkien:
GVENDUR BÓNDI Á SVÍNA-
FELLI_________________________
Gamansamt ævintýri sem segir frá
viðureign Gvendar bónda við drekann
Chrysophylax. Sagan er bráðskemmti-
leg fyrir lesendur á öllum aldri. Hún er
prýdd ágætum teikningum efrir Pauline
Baynes. Ingibjörg Jónsdóttir þýddi.
Tvær nýjar og skemmtilegar bækur um
Kalla og Kötu. Þessar bækur em
litríkar, einfaldar og fróðlegar fyrir
litlu bömin. Þær nýju heitæ KALLI
OG KATA FLYTJA og KALLI OG
KATA FARA í BUÐIR.
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923og 19156
m&m.
******** mmm
iÁwokm
nu ^
litiU iíf
Tutrú þ'vaer sér
AUGLÝSINGASTOFA KRISHNAfi l«=>-83.1