Morgunblaðið - 25.11.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
skuli vera „á þessum miklu jafn-
réttistímum“? Eða er e.t.v. ekki
enn hægt að tala um „jafnréttis-
tírna" sem staðreynd, þrátt fyrir
kvennaár, mikla kvennabaráttu og
mörg og stór orð um rétt kven-
fólksins til að hasla sér völl við
hlið karlmannsins á sem flestum
sviðum þjóðlífsins?
Á D-lista, lista Sjálfstæðis-
flokksins, eru nöfn margra fjöl-
hæfra og ágætra kvenna, en gall-
inn er bara sá, að þær eru of
margar i næsta vonlitlum sætum
til að ná kjöri til Alþingis. í
Vestfjarðakjördæmi skipar Sigur-
laug Bjarnadóttir fyrrv. alþm. 3ja
sæti listans. Þeir, sem fylgzt hafa
með þingmannsferli Sigurlaugar,
vita að þar fór heiðarlegur og
djarfur þingmaður, sem vakti at-
hygli fyrir vandaðan málflutning
og góða þekkingu á þjóðmálum og
á það ekki sízt við um vandamál
hinnar dreifðu landsbyggðar. Eins
og svo mörgum er vafalaust kunn-
ugt er Sigurlaug fædd og uppalin
á Vestfjörðum og þekkir því vel til
kjara fólksins í hinum ýmsu
byggðum kjördæmisins bæði fyrr
og nú, og auðvitað er það hverjum
góðum Vestfirðingi kappsmál, að
þessi að mörgu leyti sérstæði
landshluti dragist ekki aftur úr
hvað varðar samgöngur, rafvæð-
ingu og aðra aðstöðu til bættra
lífskjara og betra mannlífs.
Vestfirðingar, eins og aðrir
landsmenn, sem vinna hörðum
höndum og draga í þjóðarbúið
drjúgan hlut, vilja að sjálfsögðu
að vel sé á málum þeirra haldið á
Alþingi, enda sýndi það sig, að
þeir áttu hauk í horni þar sem
Sigurlaug var. Því tel ég hana
verðugan fulltrúa þeirra og skora
á þá, og þá ekki sízt konurnar, að
tryggja henni kosningu með því að
greiða D-listanum í Vestfjarða-
kjördæmi atkvæði sitt.
Einn að vestan.
• Hver mun berjast
fyrir aðstoð við
börn öryrkja?
Mig langar til að leggja
spurningu fyrir alþingismenn
Reykjavíkur. Hver þeirra myndi
taka það að sér að berjast fyrir
því að börn öryrkja fengju að
sitja við sama borð og önnur
börn landsbyggðarinnar?
Það er oft erfitt fyrir öryrkja
að sjá fyrir börnum sínum,
sérstaklega er þau eru komin
yfir 16 ára aldur. Ef maður
reynir þá að fá lán hjá félags-
málastofnun er manni bent á að
börn eldri en 16 ára eigi að sjá
um sig sjálf. En getur það ekki
eins verið að börn öryrkja langi
að fara r framhaldsnám, rétt
eins og önnur börn? Hér er því á
ferðinni verðugt baráttumál og
væri gaman að vita hverjir af
þingmönnunum taki það upp
eftir kosningar.
H.G.
Nýkomnir hljóðkútar og rör
í Saab, Opel Rekord, Mercedes.
Pústviögeröir og ísetning í flestar bifreiðar.
H
J. SVEINSSON & CO.
Hverfisgötu 116 — Reykjavík.
D.C. félagar
Nú er tækifæri til aö kynnast nýju fólki og endurnýja gömul
kynni. Þaö verður opið hús öll mánudagskvöld aö
Fríkirkjuvegi 11 í húsi Æskulýðsráös frá kl. 20.30. Fyrsta
mánudagskvöldið í hverjum mánuði er rabbfundur, félagar
mæta til aö sýna sig og sjá aðra. Annað mánudagskvöldið
er með klúbbfundasniði. Það þriðja eins og nr. tvö
(skylduræðumennska). Það fjórða verður leiðbeining í
fundarstjórn og fundarreglum. Fimmti mánudagur í mánuði
er skemmtifundur.
• Smábátahöfn
í miðbæ
Reykjavíkur
Gamall Reykvíkingur kom
að máli við Velvakanda og ræddi
um þá ósk smábátaeigenda að fá
góða höfn fyrir báta sína hér í
Reykjavík. Benti Reykvíkingur-
inn á þá góðu smábátahöfn sem
Reykvíkingar áttu í krikanum
þar sem Eimskipafélagshúsið og
pilsuvagninn standa. Höfn þessi
var fyllt upp á stríðsárunum en
gamla steinbryggjan sem þar
var er enn á sínum stað.
Sagði Reykvíkingurinn að ef
þessi skemmtilega höfn yrði
grafin upp aftur yrði þar ekki
aðeins ákjósanleg smábátahöfn,
heldur yrðu þar möguleikar á að
koma á fót miðstöð fyrir fisksölu
í Reykjavík og matsölustað þar
sem einungis yrðu seldir sjávar-
réttir. Sagði Reykvíkingurinn að
í rauninni væri þessi staður sá
eini sem til greina kæmi fyrir
smábátahöfn í Reykjavík. Vildi
hann gjarnan fá að vita hvað það
myndi kosta að grafa upp höfn-
ina og hvort áætlaðar væru
einhverjar aðrar framkvæmdir á
þessum stað.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í sovézku Spartakiad keppn-
inni í sumar kom þessi staða upp
í skák meistaranna Veingolds,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Ziljbermans.
45. hxc5! (Drottning hvíts er nú
vitanlega friðhelg vegna 46. Hxc8+
og mátar) Hd8, 46. Db3 — hed6,
47. Hxe5! og svartur gafst upp, því
að svarið við 47. ... Dxe5 yrði 48.
Df7.
Á þessari mynd frá 1929 sést smábátahöfnin sem gamli Reykvíkingur-
inn ræðir um.
HÖGNI HREKKVISI
„ g&tcru ^’kp/AjA AAM&>
B2P SlGeA V/GGA í VLVtmi
lcelandReview
segir meira frá íslandi en margra ára bréfaskriftir.
Sendu vinum þínum og viöskiptamönnum gjafaáskrift 1980.
Hvert nýtt eintak af þessu glæsilega riti flytur kveöju þína frá
íslandi og treystir tengslin.
Sertilboð til
nýrra áskrifenda
gjafaaskrift
argangur 1979
ef oskað er.
kostnað.
Odýrt og fyrirhafnarlítið
Útgáfan lætur viðtakanda vita
af nafni gefanda með lólakveöju. gefanda að kostnaðarlausu
□ Undirritaöur kaupir . . . g)afaáskrlft(lr) aö lceland Review og greiöir
áskrlftargjald kr. 5.900 aö viöbættum sendingarkostnaöi kr. 1.900 pr. áskrift.
Samt. 7.800.
O Árgangur 1979 veröl sendur ókeypis til viötakanda (-enda) gegn greiðslu
sendingarkostnaöar kr. 1.500 pr. áskrift.
Nafn áskrifanda:
Simi Haimiliaf.
Nafn móttakanda
Haimiliaf.
Nöfn annarra móttakanda fylgja meó á ööru blaói
Sendið lceland Review, pósthólf 93, Reykjavík, eóa hringió í síma 27622.
M r
vo imtzGTGm
/A/ÚA weXNA 'dTON'QO'
V/\ VBIT É6'Wm\QY\
VEL, Q6 VEJbVEGNA \iEF
WLLAQ VKM SAKAN 7
IV TKKOý
^INL/tóN/ WVOZT VKKO
Tá l\ÚA &
Yt/a ?R/\W
>4^ V/A'G'h