Morgunblaðið - 16.12.1979, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.12.1979, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979 JL Umsjón: Séra J&n Ikilbú Hróbjartsson Séra Kurl Siyurbjörrtsson Siyuröur Pdlsson AUDROTTINSDEGI Brauð handa hungruðum heimi Enginn hefur komist hjá því að heyra það angistar- fulla neyðaróp sem hingað hefur borist frá Kampútseu. Hörmungarnar þar austurfrá eru meiri og hryllilegri en við hingað til höfum heyrt, og er þá mikið sagt. Neyð margra þjóða hefur áður verið lýst og til þeirra safnað, en aldrei hefur myndin verið eins dökk. Kurt Waldheim, aðal- framkvæmdastjóri Sámein- uðu þjóðanna, sagði nýlega að þjáningar Kamputseu-manna væru harmsaga, sem senni- lega ætti enga sína líka í allri sögu mannkynsins. Þetta eru stór orð, en sögð af manni sem hefur meiri yfirsýn í þessum efnum en nokkur annar, stöðu sinnar vegna. Því miður hefur ástandinu í landinu verið haldið leyndu og stjórnvöld ófús að greiða leið hjálparsveita inn í hið hrjáða land. En nú virðist samt hafa rofað svo mikið til í þeim efnum að hjálp er möguleg. Það er hægt að bjarga milljónum manna frá hungurdauða. En það er líka ljóst, að þótt hægt sé að hjálpa, þá þarf meira til. Samviska okkar vesturlandabúa þarf að vakna. Hugarfarsbreyting þarf að eiga sér stað. Hvað sem verðbólgu líður hér á okkar kæra landi og hvað svo sem laun hinna lægstlaunuðu eru lág, þá þarf enginn íslendingur að líða skort sem þolir nokkurn sam- anburð við það sem blasir við sjónum í Kamputseu í dag. Þess vegna ættu allir íslend- ingar að geta verið með í þeirri söfnun sem nú stendur yfir. Þáttaka í söfnun sem þess- ari er ekki bara æskileg heldur er hún siðferðisleg skylda hvers og eins. Kristinn maður á ekki að þurfa að vera í minnsta vafa um þetta efni, því svo skýrum orðum talaði frelsarinn um Við minnum á söfnunarbauka Hjálparstofnunar kirkjunnar. Látum ekki hjá líða að fylla þá og koma þeim frá okkur. skyldurnar við náunga okkar. Minnumst orða hans er hann segir: Allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Við viljum öll fá jólagjöf á komandi jólum. Við teljum öll rétt og sjálfsagt að jóla- borðið verði hlaðið kræsing- um á okkar heimili. En getum við gert allt þetta án þess að hugsa eitt andartak til deyj- andi meðbræðra? — Er ekki kominn tími til að horfast í augu við neyð heimsins raunsæjum augum? Fáum við að lifa? Eftirvænting 3. sunnudagur í að- ventu. Hörpudiskurinn er tákn skírnarinnar og Jóhannesar skírara. Pistillinn 1. Pét. 1, 13b—16: Veriö algjörlega algáöir og setjiö von yöar til þeirrar náöar, sem yöur mun veitast viö opinberun Jesú Krists. Guöspjalliö Lúk. 1, 67—80: (Lofsöngur Sakaria): LofaÖur sé Drottinn GuÖ ísraels, því aö hann hefur vitjaö lýös sins og búiö honum lausn. Þau höfðu lengi beðið afkvæmis prestshjónin Elisabet og Sakaria. Aldurinn færðist yfir og vonin dvinaði með hverju árinu. Bænir hafa án efa verið beðnar margar og heitar en trúin á mátt þeirra dofnað eftir þvi sem árin liðu án bænheyrslu. En við þekkjum öll þessa sögu af prestinum sem missti málið vegna þess að hann trúði ekki boðum engilsins, sem boðaði honum þau gleðilegu tiðindi að bæn hans væri heyrð, sonur myndi fæðast. Texti þessa sunnudags er lofsöngur Sakaria, sem braust fram þegar hann fékk málið aftur eftir að syninum hafði verið gefið nafn. Inntak lofsöngsins er athyglisvert. Það hefði mátt ætla að þakklætið snerist allt um það að nú hefði Guð heyrt bænir þeirra hjóna og gefið þeim afkvæmi. En svo er ekki. Hann hefur lofsöng sinn á þessum orðum: „Lofaður sé Drottinn Guð ísraels, þvi að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn“. í fæðingu sonarins sá Sakaría hylla undir lausn þjóðar sinnar, sem hún hafði vænst öldum saman. Hann trúði því að hér væri fingur Guðs að verki í sögunni og verkfærið væri drengurinn hans: „Og þú barn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni til að greiða vegu hans, veita lýð hans þekking á hjálpræðinu með fyrirgefningu synda þeirra.“ Eftirvæntingin sem tengist jólaundirbúningi okkar virðist oft með öllu óskyld þessari eftirvæntingu sem fram kemur í lofsöng Sakaria. Ertu búinn að kaupa jólagjafirnar? Ertu búinn að senda jólakortin? Ertu búinn að kaupa í jólamatinn? Ertu búinn með jólabaksturinn? Ertu búinn að kaupa þér jólafötin? Allt miðar að þvi að jóladagarnir verði sem eftirminnilegastir og hátíðlegastir. En hvers vegna? Allt suðlar að því að við getum glaðst sem mest þessa daga. En hvers vegna? Mammon eru færðar miklar fórnir í kauptiðinni. Sjónvarpið myndar jólasveinana þegar þeir koma til borgarinnar og börnin fá kennslustund um islensku Grýlusynina i Stundinni okkar. Er þetta allt og sumt? Er öll þessi eftirvænting og allt þetta umstang tengt þessu brölti einu saman? Hvar er Jesús Kristur? Fylgir engin eftirvænting nafni hans? Er hann einskis megnugur i auglýsinga- og jólasveinaflóðinu? Hefur hann ekkert að gefa sem vekur gleði og eftirvæntingu? Jólin eiga að minna okkur á það sem við megum vænta okkur af Jesú Kristi. Hvers má vænta af honum núna — á tuttugustu öld? Hins sama og áður. Guð hefur i honum vitjað manna og búið þeim lausn. Lausn úr viðjum syndar og sjálfselsku, ágirndar og eigingirni. „Þetta er að þakka hjartagróinni miskunn Guðs vorn. Fyrir hann mun ljós af hæðum vitja vor til þess að lýsa þeim, sem, sitja í myrkri og skugga dauðans til að beina fótum vorum á friðarveg.“ Mætti eftirvænting okkar beinast að honum og gjöfum hans — Jesú frá Nasaret. Biblíulestur vikuna 16,—22. des. Sunnudagur 16. des. Lúk. 1: 67—80 Mánudagur 17. des. Lúk. 23:18—27 Þriðjudagur 18. des. Lúk. 23: 32—38 Miðvikudagur 19. des. Lúk. 23: 30—49 Fimmtudagur 20. des. Lúk. 23: 50—56 Föstudagur 21. des. Lúk. 24:1—9 Laugardagur 22. des. Lúk. 24:13—27 Jólaösin í fullum gangi. Mann- þröngin í miðborginni eykst dag frá degi. Verslanirnar fullar af vörum. Búðargluggarnir heillandi, tælandi ævintýraveröld. Auglýs- ingasíbyljan dynur á eyrum. Pen- ingarnir flæða. Hvað kosta jólin? er stundum spurt. Hvað skyldu t.d. bókaforlögin verja mörgum tugum milljóna í auglýsingar sínar? Auglýsingar, sem auðvitað borga sig, fyrir þá og fjölmiðlana að sjálfsögðu. Hvað skyldu jólin kosta meðal heimili í landinu þetta árið? Sú tala skiptir vafalaust hundruð- um þúsunda. Litill grænn sparibaukur barst inn til þín með jólapóstinum. Hann minnir þig á, að kauptíðin og peningaflóðið, eyðslan og óhófið, er nokkuð, sem einungis lítill hluti mannkyns nýtur. Meiri hluti mannkyns býr við kjör, sem trygg- ir þeim ekki lágmarks lífsskilyrði. Tugir milljóna barna deyja árlega úr fæðuskorti, önnur eru dæmd til lífs í fötlun og vonleysi vegna næringarskorts og örbirgðar. Ekki af því að ekki sé til matur í henni veröld, og peninga er heldur ekki vant. Það vantar aðeins viljann til að skipta jafnt. Við lifum i vitskertri veröld, syndugum heimi við þverhnípi glötunar. En mitt í vitfirringunni, sundrungunni, hljómar boðskapur jólanna: Guð elskar þennan heim, þetta mannkyn, elskar það svo, að hann gaf son sinn til bjargar manninum og heimi hans frá því að tortímast. Af þessari gjöf hans spretta allar jólagjafir. Tökum eftir því. Jólagjafir okkar eru í eðli sínu tákn þeirrar gjafar Guðs, er hann sendi son sinn Jesú Krist. Jólagjafirnar eru trúarjátning. Þess vegna eigum við fyrst og fremst að gefa til þess að gleðja. Þegar þú íhugar jólagjafa inn- kaup, leiddu þá hugann að þeim, sem þú gefur. Og því hvort þú gætir ekki gefið einhverjum, sem þú þekkir ekki? Einhverjum, sem er í þörf, einhverjum minnimáttar, einangruðum, gleymdum, fátæk- um. Þeir eru líka til hér í velsæld- inni hjá okkur. Og sjáðu litla græna sparibaukinn: Hvað er það, sem í hann fer stór hluti jólagjafa- útgjaldanna? Það sem í hann safnast er ætlað til að bjarga mannslífi, lífi manns, konu eða barns, sem þú þekkir ekki og munt eflaust aldrei augum líta. En sá, sem við minnumst á jólum sér þig og þau sem systkin, sem hann þráir að sjá við sama borð. Hann kallar þessa þjáðu meðbræður sína minnstu bræður og segir um þá: Það sem þér gjörið einum þessara minna minnstu bræðra, það gjörið þér mér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.