Morgunblaðið - 16.12.1979, Síða 13

Morgunblaðið - 16.12.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979 77 Gullplötuveiting: Ljúf a líf og Harald- ur í Skrýplalandi Lifandi músík í Holly wood Dr. Vilhjálmur G. Skúlason. gegn smitsjúkdómum gera mjög misjafnlega vel og sum alls ekki. Af framansögðu er ljóst, að það kom ekki á óvart, að sænska vísindaakademían vildi heiðra Gerhard Domagk með Nóbels- verðlaunum árið 1939. Þessu til staðfestingar fékk hann langlínu- samtal, þar sem honum var til- kynnt, að hann hefði hlotið hin eftirsóttu verðlaun fyrir uppgötv- un prontósíls. Skrifleg staðfesting á þessum heiðri barst honum von bráðar og þann 3. nóvember svar- aði Domagk rektor karólínsku stofnunarinnar í Stokkhólmi. Hann gaf til kynna í bréfi sínu, að hann vonaðist til þess að fá bráðlega tækifæri til þess að ávarpa vísindamenn í Stokkhólmi og láta í ljós þakklæti sitt fyrir þá viðurkenningu, sem störf hans höfðu hlotið. En ekki voru allir á sama máli því að hinn 17. nóvem- ber var Domagk handtekinn af þýzku leynilögreglunni og varpað í fangelsi. Síðar í sama mánuði fékk rektor karólínsku stofnunarinnar annað bréf frá Domagk, sem vissi ekki þá, að hann hafði verið handtekinn. Forviða lásu Nóbels- nefndarmenn í bréfi Domagks, að þar sem foringinn og ríkiskanslar- inn hefði bannað þýzkum ríkis- borgurum að þiggja Nóbelsverð- laun og þar sem Svíar vissu um ákvörðun nazistastjórnarinnar, gætu þeir varla ætlazt til, að hann fremdi svo grófa óhollustu gegn föðurlandi sínu. í stuttu máli var Domagk neyddur til þess að hafna verðlaununum vegna öfgafullrar afstöðu nazistastjórnarinnar. En Domagk hlaut önnur laun fyrir uppgötvun sína, sem voru honum ennþá meira virði en Nóbelsverð- laun. í febrúarmánuði árið 1935 hlaut dóttir Domagks, Hildegarde, sár á fingur eftir að hafa með- höndlað ræktun af keðjusýklum í vinnustofu föður síns. Þrátt fyrir skurðaðgerð versnaði smitunin og brátt hafði hún fengið almenn einkenni blóðeitrunar svo sem óreglulegan sótthita og skjálfta. Domagk vissi, að ef ekki yrði að gert, mundi dóttir hans óumflýj- anlega hljóta sömu örlög og mýsn- ar, sem hann hafði sprautað keðjusýklunum í. Hann lét því dóttur sína taka inn stóra skammta af prontósíli og brátt náði hún fullum bata, föður henn- ar til mikils hugarléttis. í Bandaríkjunum voru súlfalyf- in upphaflega prófuð af tveimur læknum við Johns Hopkins há- skólann í Baltimore, Perrin H. Long og Eleanor Bliss. Þar var sonur Franklin D. Roosevelts, forseta, læknaður af keðjusýkla- smitun árið 1936 með súlfaníla- míði og sautján árum síðar, í desembermánuði árið 1943, var Winston Churchill forsætisráð- herra Breta læknaður af hættu- legri lungnabólgu með öðru súlfa- lyfi, er hann var staddur í Norð- ur-Afríku. Þetta súlfalyf var þá kallað M&B 693 (súlfapyridín). Á sinn sérstaka hátt sagði Churchill á eftir í útvarpsávarpi, að „innrás- inni hefði verið hrundið". En varla Kefur Hitler grunað þetta, þegar hann bannaði Domagk að taka við Nóbelsverðlaununum árið 1939. Fimmtudagskvöldið 13.12. komu þau Helga Möller og Jóhann Helga- son í fyrsta sinn fram opinberlega til að flytja lögin af Þú og ég, ljúfa líf i Hollywood. Þess má geta að húsfyllir var enda ekki furða miðað við vinsældir plötunnar. Flutt var lífleg skrautsýning undir stjórn Þorgeirs Ástvaldssónar á bak við þau Jóhann og Helgu. Eftir flutninginn afhenti Steinar Um karamellu- samkeppni þeirra Hatts og Fatts MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „Herra ritstjóri! Við undirritaðir, Árni Blandon og Gísli Rúnar Jónsson, er Ijáðum þeim Hatti og Fatt raddir okkar á sam- nefndri hljómplötu, vildum gjarnan fá að vekja athygli á eftirfarandi í blaði yðar: Auglýsingaherferð sú, sem hafin er á vegum hljómplötuútgáfunnar Steina h/f, vegna hljómplötunnar um Hatt og Fatt og hefur með að gera „karamellusamkeppni" og ann- að í þeim dúr, er okkur algjörlega óviðkomandi. Okkar framlag til áð- urnefndrar hljómplötu var, eins og áður segir, einungis að ljá þeim Hatti og Fatt raddir okkar við ágæt lög og ljóð Ólafs Hauks Símonarson- ar og var gerður skriflegur samning- ur þar að lútandi. „Karamellusam- keppni" þessi var sett á laggirnar án okkar vitundar og samþykkis, auk þess sem myndbirting með auglýs- ingunni er brot á samningi útgáfu- fyrirtækisins við okkur. Auk þess lýsum við okkur andvíga hverskonar auglýsingaskrumi af þessu tagi! Með vinsemd, Árni Blandon, Gísli Rúnar Jónsson." „Júlía og Snorri“ „Júlía og Snorri" heitir ný barna- bók eftir önnu K. Brynjúlfsdótt- ur, einkum ætluð yngstu lesendun- um. Á kápusíðu segir m.a.: „Júlía var ein af hinum fjölmörgu þjáðu börnum þriðja heimsins. íslenzk kona hitti hana nokkurra vikna gamla í flóttamannabúðum suður í Afríku og tók ástfóstri við hana. Svo fór, að Júlía, sem var munað- arlaus, eignaðist fjölskyldu á Islandi. — Sagan segir frá fyrstu uppvaxtarárum Júlíu í Kópavogi. Hún eignaðist bróður. Það er Snorri og hann kemur einnig mikið við sögu“. „Júlía og Snorri" er sjötta bók höfundar. Utgefandi er Bókaútgáf- an Hergill. IIASIMINN KR: 2248D lO>1 JH*rjjunblabib Berg þeim Gunnari Þórðarsyni, Jó- hanni og Helgu gullplötur að gjöf fyrir 5.000 eintök seld en platan er vel komin yfir það mark í sölu. Haraldi Sigurðssyni var einnig veitt gullplata fyrir Harald í Skrýplalandi, en sú plata hefur selst í u.þ.b. 7—8 þúsund eintökum. Þess má geta að Haraldur hefur fengið gullplötur fyrir allar þær plötur sem hann hefur sungið og sprellað á. HIA HOLLYWOOD sem verið hef- ur leiðandi staður í skemmt- analífi Reykvíkinga undan- farin misseri hefur ákveðið að halda því áfram með því að taka upp á þeirri nýbreytni að hafa lifandi tónlist einu sinni í viku. I síðustu viku léku þar Mezzoforte lög af sinni fyrstu breiðskífu sem þykir með þeim betri í seinni tíð. í náinni framtíð mun Gunn- ar Þórðarson láta til sín heyra í Hollywood með sína tónlist. Það er vonandi að þessi nýbreytni verði til meiri fjöl- breytni í íslensku tónlistarlífi. HÍA Mezzoforte. Skúli Hansen, yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti, gefur jólauppskriftir fyrir 6. 3RJÚPUR M/BRÚNUÐUM KARTÖFLUMOG WALDORFSALATI. Skoliö 9 stk. hamflettar rjúpur ásamt innmat í köldu vatni og þerrið vel. Kryddið með satti og pipar. Brúnið rjúpurnar ásamt innmatnum vel á pönnu og setjið hvoru tveggja í pott. Steikið beikon og látið lítið eitt af vatni á pönnuna. Sjóðið smá stund til að fá góða 8teikingarbragðið með. Hellið þar nœst soðinu í pottinn ásamt vatni sem þarf að fljóta vel yfir rjúpurnar. Sjóðið við vcegan hita í 1 klst. Ath. að innmatinn á að 8Ía frá eftir suðu. Siið nú rjúpnasoðið og bakið sósuna upp með smjörbollu sem er 100 g brcett íslenskt smjör og 75 g hveiti. Bragðbœtið sósuna með 8alti, pipar, kjötkrafti, rifsberjahlaupi og rjóma. 4FYLLTUR GRÍSAHR YGGUR M/SMJÖRSTEIKTUM KARTÖFLUM OG EPLASÓSU.__________________ Takið 1 Vi kg af nýjum grísahrygg og rekið fingurbreiðan pinna í hann endilangan til að auðvelda ykkur að fylla hann. Komið 8teinlau8um si eskjum fyrir í rásinni eftir pinnann. Kryddið hrygginn með salti, pipar og papriku og komið lárviðarlaufum og negulnöglum fyrir. Brúnið nú hrygginn í ofnskúffu (við 175°C eða 350°F) ásamt 2 sneiddum laukum, 2 söxuðum gulrótum og 1 söxuðu epli. Þegar hryggurinn er brúnaður er 'ó líter af vatni bœtt út í og þetta steikt saman í 1 V‘2 kÍ8t. EPLASÓSA WALDORFSALAT. (EPLASALAT) 2-3 epli/100 g majonnes/l dl þeyttur rjómi/50 g saxað selleri/50 g saxaðar valhnetur/Þurrt Sherry/Sykur. Afhýðið eplin, takið kjarnann úr og sneiðið í teninga. Setjið majonnes, stífþeyttan rjóma og selleri saman við. Bragðbœtið með Sherry og sykri. Skreytið salatið með valhnetunum. Geymið í kæli í 30 mín. BRÚNAÐÁR KARTÖFLUR Bræðið smjör á pönnu, bœtið sykri saman við og látið freyða. Afhýðið kartöflurnar, bleytið þær vel / vatni, 8etjið á pönnuna off brúnið jafnt og fallega. Síið soðið og bakið 8Ó8una upp. Bragð- bætið með pipar, 3ja kryddi, frönsku 8Ínnepi, eplamús, örlitlu af púrtvíni, rjóma og kjötkrafti. SMJÖRSTEIKTAR KARTÖFLUR Notið helst smáar kartöflur, sjóðið þær í létt8öltuðu vatni í 20 mín., kælið og afhýðið. Bræðið íslenskt smjör á pönnu og hitið í því kartöflurnar. Stráið að lokum saxaðri steinselju yfir ásamt papriku. Hryggurinn er borinn fram með kartöflum, rauðkáli, smjörsoðnum baunum og eplasósu. Baunirnar eru hitaðar í íslensku smjöri á8amt fínt söxuðum lauk. Áætlið um 500 g af baunum á móti 1 lauk. Á jólunum hvarflar ekki að mér að nota annað en smjör við matseldina’.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.