Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
„Héðan úr glugg
sér of heima alla“
Kristinn Reyr: Vegferð til vors.
Ægisútgáfan, Reykjavík 1979.
Kristinn Reyr er Grindvíkingur
eins og hið stórbrotna en samt
umdeilda skáld, Guðbergur
Bergsson. Þegar Kristinn var 27
ára gamall, stofnaði hann bóka-
verzlun í Keflavík og starfaði að
bóksölu og kennslu til 1965, en
fluttist svo til Reykjavíkur.
Haustið 1942 birti hann ljóðabók-
ina Suður með sjó. Síðan hefur
hann sent frá sér margar ljóða-
bækur. En hann er listfengur á
fleira en ljóð, hefur starfað að
leiklist og samið nokkur leikrit. Þá
hefur hann ennfremur iðkað tón-
list og samið lög. Árið 1959 gaf
hann út ritsafnið Leikrit og Ijóð,
ef til vill í tilefni þess, að 30.
desember það ár varð hann hálf-
fimmtugur. Og nú, tuttugu árum
síðar hefur níunda ljóðabók hans,
Vegferð til vors, komið út. í henni
eru 38 ljóð, og fyrirsögn á þessu
greinarkorni er lína úr einu
þeirra. I þessum ljóðum hans sér
og niður í undirdjúpin, vítt um
heim auðsæs veruleika og allt upp
til „uppsprettu himnanna ofar
himninum“ svo sem hann kemst
að orði í einu ljóðanna. Svo til öll
eru kvæðin í þessari bók Ijóðstöf-
uð og í mörgum notar hann
endarím að meira eða minna leyti,
og yfirleitt hæfir efninu vel það
form, sem hann velur því hverju
sinni.
Tvennt er mjög áberandi í
þessari bók. Annað er það, hve
heitt skáldið ann sól og vori í
náttúrunni og mannlífinu, hitt er
svo hve hart hann deilir á vá og
vammir íslenzks hugsunarháttar
og þjóðlífs og háskalegar aðgerðir
þjóða umheimsins á mörkum
víðtækrar tæknilegrar fram-
þróunar og ægilegrar og tor-
tímandi helstefnu.
Þriðja kvæðið í bókinni heitir
óhætt um það. Þar deilir skáldið á
vanmátt kirkju og klerka og kem-
ur víða við. Þar segir svo:
„Vér hyggjum þó mörg enn á
himneska íör
úr hérvistarnepju og dýrtíöarráni
og dottum með slitur úr versi á vör
en vöknum svo niöri á Spáni.
Ekki er aÖ lasta jafn áfangan staÖ
óhætt um þaÖ.
Kristinn Reyr
Vor undanrás þannig með Útsýnarferð
og innfluttur sólbruni vitni því bera
að til eru bjartari svið en þú sérð
minn séra. minn séra. minn séra.
Arason leit þau á aftökustað
óhætt um það...
I öðru kvæði segir, að þeir, sem
ekki séu á kafi í að raka saman
peningum séu annaðhvort óbornir
til þess ellegar dánir frá slíkum
rakstri, og í XII. kafla hins langa
ljóðaflokks Firnindum ort, spyr
skáldið:
Hver á land. hver á ísland?
Þjóð eða þrýstiloft
pístólukrafan
um peninga eða lífið?
Þá fær velferðarríkið sinn
skammt — með sínum verkföllum,
verkalýðsbroddum, viðsemjend-
um, verðhækkunum, verðbólgu og
valdhöfum. Ljóðið sem túlkar
þetta heitir Einsöngur í borð-
krók. Og „enn kvað hann“ og
kallar kvæðið Nýtízkubæn:
Farirvor prestsins
fylgdi vélinni á loft
með helsprengjufarm
á Hiroshima
og Nakasaki.
En nýtizkubæn
er eldflaug
úr aðildarbrjósti
til annarra hnatta
af tæknilegri
trúarþörf
og kaldrifjuðum áformum
að kanna byssustæði.
Kvæðið Erfisdrykkjur sýnir
ljóslega, að eins og höfundurinn
lætur ekki flokkapólitík ráða í
ádeilum sínum á íslenzk viðfangs-
efni gerir hann það ekki heldur, þá
er hann deilir á gerðir erlendra
stórvelda. Eftirfarandi útdráttur
úr kvæðinu nægir til að sanna
þetta:
í fyrrinótt •
lagði frelsisstyttan
eld I Vietnam
og logar glatt.
í nótt
reið líkneski Lenins
á skriódreka
inn i Tékkóslóvakiu
Og margur fylgdi
sjálfum sér til grafar
segir I fréttunum.
I tveimur kvæðum, öðru þeirra
mjög löngu, deilir skáldið harka-
lega á forráðamenn „bókaþjóðar-
innar" sakir tómlætis þeirra gagn-
vart skáldum hennar, sem reka sig
á skotheldan Mafíumúr, þó að sú
hafi orðið raunin um hlutverk
þeirra sem hér segir:
En án þess að guma eða miklast
af umboði voru á jörðu
frá uppsprettufirma ljóðsins
þá hefur sannarlega tekizt
að hlaupa undir bagga
með höktandi dómadagsrs^ðu
plísera jafnvel og baldera
predikun kennimannsins
og punta upp á minni kvenna.
Þau hafa sem sé, skáldin, oft-
lega lagt framvindunni lið á ýms-
um sviðum þjóðlífsins. Og vissu-
lega skýtur skáldið í hinum langa
ljóðabálki, Skáldavaka, örvum,
sem hæfa markið, þótt til lítils
kunni að koma, þar sem tölvan er
Bókmenntir
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
tekin að gerast, ef ekki næsta þörf,
þá að minnsta kosti óeftirkallan-
lega ráðrík, þá er hún hefur verið
„mötuð“.
Fleiri ádeiluljóð en nú hefur
verið um getið, eru í þessari bók,
og ef til vill mun sumum sýnast að
einhver þeirra hafi ekki mikið
skáldskaparlegt gildi, vegin á hina
aðkeyptu vog núgildandi tízku, En
hér er að verki heilbrigður og
frjáls maður, engu öðru háður en
samvisku í gagnrýni á sýndar-
mennsku og ábyrgðarleysi. Því er
grunur minn sá, að sérstæð og
haglega formuð ádeilukvæði hans
kunni að reynast lífseigari en flest
ljóð þeirra skálda, sem iðka skoð-
95
un síns eigin nafla og velta
vöngum yfir meira og minna
sjúklegum ímyndunum og viðhorf-
um. Þórarinn Eldjárn, sem formar
ljóð sín í samræmi við arfgenga
ljóðhefð, en hefur ekki enn losnað
við lýtabletti úr menntaskólafé-
lagsskap á mörgum kvæða sinna,
hefur ort eitt langt ljóð, sem mér
mun reynast ógleymanlegt. Það
fjallar um snillinginn Sveinbjörn
skólameistara Egilsson og stang-
arstökk hans á myrkum vetrar-
morgni í hvers konar veðrum milli
Eyvindarstaða og Bessastaða. Þar
segir svo undir lok kvæðisins:
bá var ðldin ðnnur er Svcinbjðrn stðkk
á stðnx.
þá var ei til Bessastaða ieiðin löng.
En okkur skortir allan duK.
við eÍKum ekki slikan huK.
EnKan Hómer. ekki neitt,
ekkert nema rðvlið eitt.
MarKt eitt fól þó stðkkvi á stönK.
er stefnan bæði láK ok rðnK-
Þetta verður ekki sagt um
ádeiluskáldið Kristin Reyr og ekki
á það heldur við hann með tilliti
til hinna ljóðrænu kvæða í bók
hans, sem sum eru tær og látlaus,
önnur skemmtilega myndrænt
formuð en flest þrungin geislandi
ást á vori og gróanda og nærð og
glituð geislum sólar. Ég nefni þar
til Myrkvun, Blákalt, Lýrikk,
Ókominn dagur, Birta, Þræðir,
Liðsbón og Dögun — að ógleymdu
kvæði hins sanna Grindvíkings
Fyrrum, þar sem storm- og brim-
lendingu er lýst með líkingum frá
klukknahringingu með öðrum
kirkjulegum . athöfnum. Ég læt
Kristin Reyr kveðja með Birtu:
Ad hlaupast á brott
frá birtu þinni
oöa byrgja mín auKU
hlaupast á brott
frá birtu þinni
eða byrla mér eitur
er ámóta bjarjfráö
ojf breRÖa upp vasaljósi
ok blinda sólina.
Guðmundur Gíslason Hagalín.
VI
HXÆKKUN
fflEVROIET MALIBII1979
Okkur tókst þaö. Malibu 1979 er kominn á lækkuðu verksmiöjuveröi.
4 DYRA SEDAN
6 cyl vél, sjálfskiptur, vökvastýri, læst
drif, de luxe útfærsla.
Fáanlegir litir: Grár, brúnn, rauöur,
drapplitaður, blár.
Áætlað verö 1980 órgerð kr. 7.880.000.-
Áœtlað verö 1979 árgerö kr. 6.800.000.-
4 DYRA.CIASSIC
8 cyl. vél, sjálfskiptur, vökvastýri, læst
drif, luxus útfærlsa o.fi.
Fáanlegir litir: Tvílitur, grár, brúnn,
rauður, blár.
Áætlað verð 1980 árgerö. kr. 8.770.000.-
Áætlað verð 1979 árgerð kr. 7.440.000.-
2 DYRA LANDAU
8 cyl. vél, sjálfskiptur, vökvastýri, velti-
stýri, vinyltoppur, læst drif, luxus út-
færsla o.fl.
Fáanlegir litir: Grár, rauður, tvílitur,
brúnn, blár.
Áætlaö verö 1980 árgerð kr. 9.440.000.-
Áætlaö verö 1979 árgerð kr. 7.800.000.-
STATION
8 cyl. vél, sjálfskiptur, vökvastýri, velti-
stýri, læst drif, luxus útfærsla o.fl.
Fáanlegir litir: Tvílitur, brúnn, grár, blár,
rauður.
Áætlað verð 1980 árgerð kr. 9.520.000.-
Áætlað verö 1979 árgerð kr. 7.965.000.-
Þetta ótrúlega samkeppnisfæra verö miðast viö gengisskráningu 17. des.