Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
9
Fimmtugur:
Davíð Scheving
Thorsteinsson
Ekki er það aldur, sem er manni
efst í huga, þegar hugsað er til
Davíðs Scheving Thorsteinssonar.
Manni þykir það næsta litlu
skipta að hann er fimmtugur í
dag, þar sem maðurinn hefur svo
margt til að bera, sem einkennir
æskumann, þó að tíminn standi
ekki kyrr. Af mínum kynnum af
honum, virðist það litlu skipta
hvort hann er fertugur eða fimm-
tugur og satt að segja hef ég aldrei
leitt hugann að því fyrr en nú, á
hvaða aldri hann er.
Það er einfalt að afgreiða menn
eins og Davíð Scheving Thor-
steinsson, með því að lífið hafi
leikið við þá. Ef til vill má leyfa
sér lítinn orðaleik og segja að
Davíð hafi leikið við lífið, en ávallt
gætt þess að leika sér ekki að
lífinu.
Davíð er sinn eigin maður,
afkvæmi góðs fólks, en kominn
þangað sem hann er fyrir eigið
atgervi. Hann er kunnastur fyrir
Hjálparstarf
aðventista
í Kambódíu
HJÁLPARSTARF aðventista
hérlendis til söfnunar fjár til
bágstaddra i Kambódiu gaf af sér
á s.l. ári um 25 millj. kr. „Viljum
við nota tækifærið til að þakka
þeim fjölmörgu um ailt land. sem
gáfu i þessa söfnun. Þessar
islenzku krónur eru núna að lina
þjáningar og hörmungar og
bjarga mannslifum i fjarlægu
landi,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu frá Hjálparstarfi aðventista.
Þar segir einníg, að hungurs-
neyðin sé ekki eina vandamálið.
Ýmiss konar sjúkdómar, vatns-
skortur o.fl. séu vandamál sem
takast þurfi einnig á við. Aðvent-
istar hafa komið upp sjúkrahúsum
á neyðarsvæðum, útvegað hjúkrun-
arlið og hafa einnig áform um að
grafa þar brunna.
Snemma í nóvember s.l. hvatti
forseti heimssamtaka Sjöundadags
aðventista alla meðlimi safnaðar-
ins til að leggja sitt af mörkum til
hjálparstarfsins. Á fyrstu vikunum
komu inn sem svarar nálægt 70
millj. ísl. króna. Búist er við að í
lok ársins nemi söfnunin um 200
milljónum ísl. króna.
störf sín sem formaður Félags
íslenskra iðnrekenda. Hann hefur
gegnt því starfi á tímum, sem hafa
verið íslenskum iðnaði erfiðir og
hættulegir. Það hefur vakið sér-
staklega athygli hvernig Davíð
hefur fjallað um þau mál, af miklu
meiri hreinskilni en tíðkast hefur
hjá forystumönnum hagsmuna-
hópa. Á þessum tíma hefur hann
áunnið sér virðingu bæði sam-
herja, samkeppnisaðila og and-
stæðinga og ekki síður persónu-
lega vinsemd sömu manna.
Það er engin tilviljun að hvar
sem góðra manna er getið um
þessar mundir, er hans getið um
leið: Hann hefur með persónuleika
sínum áunnið sér furðu mikið
traust meðal almennra borgara í
landinu. í þreytu þjóðarinnar á
leiðtogum sínum hefur nafn
Davíðs verið nærri yfirborðinu og
á sér sæti í meðvitund þjóðarinn-
ar.
Talsvert var að honum lagt
fyrir síðustu kosningar að taka
þátt í stjórnmálum í meira mæli
en verið hefur. Eg spurði hann að
því hvers vegna hann hefði ekki
gefið kost á sér í prófkjör. Blöð
hafa eignað þá ákvörðun ýmsu,
svo sem miðstjórnarvaldi í Sjálf-
stæðisflokknum, og vægni við aðra
frambjóðendur.! Svar Davíðs var
einfalt og hvað sem hver segir
legg ég á það trúnað. Hann sagði:
„Til hvers? Ég á góða konu og góð
börn, stjórna fyrirtæki sem ég hef
gaman af að reka, er í forystu
samtaka sem skipta máli og til
hvers þá að reyna að komast á
Alþingi?" Það er dapurleg umsögn
um okkar stjórnkerfi, þegar menn
eins og Davíð nenna ekki að sinna
því.
Þeim sem mig þekkja er það
ekki launungarmál, að ég tel
Davíð einn þeirra fáu manna, sem
ég hef kynnst á lífsleiðinni og ég
þyrði að treysta. Ég hef aldrei
vitað til þess að Davíð kæmi aftan
að fólki og varla væri verið að
leyna því, ef satt væri. Það er satt
að segja með ólíkindum, hversu
lítið heyrist af sögusögnum um
Davíð Scheving Thorsteinsson,
eins og mikið hefur á honum borið
að undanförnu. Það komst einhver
svo að orði, að því lengra sem
menn færu fram úr öðrum, því
meiri yrði freistingin að sparka í
þá að aftan.
Það er ósköp erfitt fyrir mis-
heppnað og öfundsjúkt fólk, eða
allskyns róttæklinga, til hægri og
vinstri, að sætta sig við að til skuli
vera mannkostafólk, sem þorir að
skara fram úr og þorir að taka
afstöðu til mála án ótta við
afleiðingarnar. Davíð Scheving
Thorsteinsson hefur talað máli
iðnaðarins á þann hátt að eftir er
tekið og hefur tekist að forðast
vanhugsun og einstefnu í sínum
málflutningi. Vonandi vinnst hon-
um tími og tækifæri til að vinna
lengi enn að framgangi þeirra
mála.
Ólafur Sigurðsson.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM. J0H. Þ0RÐARS0N HDL
Til sölu og sýnis m.a.
Úrvals íbúö sér þvottahús
5 herb. íbúö á 1. hæð við Breiövang í Hafnarfirði 114. ferm.
íbúðin er ný, mjög rúmgóð, á móti suðri með góðum
svölum. Bráðabyrgða-eldhúsinnrétting. Fullgerð sameign í
ágætu lagi. Nánari uppl. á skrifstofunni.
Einstaklingsíbúð við Dvergabakka
2ja herb. íbúö um 40 ferm. á 1. hæð. Öll í ágætu lagi, mjög
góð frágengin sameign.
Með útsýni við Hrafnhóla
4ra herb. íbúð á 4. hæð í háhýsi rúmir 100 ferm.
Fullfrágengin.
í gamla austurbænum
3ja herb. íbúö í góöu steinhúsi á 1. hæð yfir kjallara um 75
ferm. Ný máluð, ný teppi, sér hitaveita. Laus fljótlega.
íbúðin er skammt frá Landsbankanum.
Þurfum að útvega
3ja—4ra herb. íbúð í austurbænum í Kópavogi sunnan-
veröum. Æskilegt aö ris eöa kjallari fylgi. Mjög mikil útb.
strax við kaupsamning.
Raðhús eða einbýlishús óskast
í neðra-Breiðholti, Fossvogi Árbæjarhverfi eða
smáíbúöarhverfi.
Islensk list
kynnt í Varsjá
í PÓLLANDI starfar félag, er
helgar sig tengslum við ísland, og
er það deild í Ferðafélagi Póllands.
Nefnist félag þetta Pólsk-islenzka
vináttufélagið. Þann 24. nóvember
1979 hélt félagið hátíðlegt 20 ára
afmæli sitt.
Þá var efnt til samkomu í Tónlist-
arháskólanum í Varsjá. Grzegorz
Kramarz, fiðluleikari, og Piotr
Pankiewicz, píar.óleikari, fluttu þar
íslenzk þjóðlög og rímnalög í útsetn-
ingum Karls Ottós Runólfssonar og
Helga Pálssonar. Einnig léku þeir
saman sónötu eftir Jón Nordal. Þá
las ungfrú Danuta Godek ljóð á
íslenzku eftir Jónas Hallgrímsson,
Grím Thomsen, Steingrím Thor-
steinsson, Eggert Ólafsson, Matthías
Jochumsson, Hannes Hafstein,
Davíð Stefánsson, Jón Magnússon og
Stein Steinarr. Ennfremur fór hún
nokkrum orðum um hvert þessara
skálda. Bróðir Danutu, Jacek Godek,
flutti þýðingar sínar á tveim þessara
kvæða. Var gerður góður rómur að
máli þeirra. Samkoman stóð í
klukkustund og voru 60 manns
viðstaddir.
2ja—3ja herb. íbúð
óskast í háhýsi í borginni.
ALMENNA
FASTEIGHASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Gleðilegt nýtt ár
Þökkum viðskiptin á
liðnu ári
Einbýlishús
við Hjallabrekku
140 fm vandað einbýlishús m.
bílskúr. Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
í Garðabæ
145 fm vandað einbýlishús m.
tvöföldum bílskúr. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
Raöhús
á Seltjarnarnesi
240 fm fokhelt raðhús m. innb.
bílskúr. Til afhendingar nú þeg-
ar. Téikn. á skrifstofunni.
Sér hæð í smíðum
í Kópavogi
150 fm efri hæð í tvíbýlishúsi
við Hlíöarveg m. bflskúr. íbúðin
selst tilb. u. trév. og máln. Til
afhendingar strax. Teikn. á
skrifstofunni.
Sér hæö í Skaftahlíð
5 herb. 150 fm góð sér hæð (1.
hæð) m. bílskúr. Æskileg útb.
40 míllj.
Við Fálkagötu
4ra herb. 115 fm snotur íbúð á
1. hæö. Útb. 25 millj.
Við Skaftahlíð
3ja herb. 90 fm snotur kjallara-
íbúö. Sér inng. Laus strax. útb.
17 millj.
Viö Hringbraut
3ja herb. góð íbúð á 4. hæð.
Herb. í risi fylgir. Útb. 17—18
millj.
Viö Digranesveg
3ja herb. 65 fm nýleg íbúð á
jarðhæð. Sér þvottaherb. Sér
inng. og sér hiti. Útb. 17—18
millj.
Risíbúö við Mávahlíð
3ja herb. 85 fm risíbúö. Útb.
13—14 millj.
Viö Flyðrugranda
3ja herb. 75 fm ný og vönduö
íbúö á 3. hæö. Skipti hugsanleg
á 4ra—5 herb. m. bflskúr í
Reykjavík eða Kópavogi.
í smíðum
í Kópavogi
3ja—4ra herb. 95 fm íbúð m.
bflskúr í fjórbýlishúsi viö Kárs-
nesbraut. Húsið afh. frág. að
utan en sjálf íbúöin fokheld.
Teikn. og upplýsingar á skrif-
stofunni.
Við Þverbrekku
2ja herb. 55 fm nýleg vönduö
íbúö á 2. hæö. Útb. 15 millj.
Hús í Mosfellssveit
óskast. Skipti möguleg
Einbýlishús í Mosfellssveit ósk-
ast til kaups. Húsiö mætti
gjarnan vera tilb. u. trév. og
máln. Æskileg stærö um 130—
140 fm. Skipti á 4ra herb. íbúð
á hæð í Fossvogi kæmi vel til
greina.
Ibúöir óskast
Höfum fjölda kaupenda á skrá,
sem óska eftir ýmsum stærð-
um og geröum íbúöa og ein-
býlishúsa. i mörgum tilvikum
eru háar útborganir í boöi.
Skoöum og verömetum sam-
dægurs.
EiGnnmiÐLumn
VONARSTRÆTI 12
slmi 27711
Söéustjóri: Sverrir Knstinsson
Sigurðtir Óiasow hrl.
28611
Rauðihjalli
Endaraöhús á tveim hæðum,
grunnflötur 124 ferm. Inn-
byggður bflskúr. Skipti á minni
eign koma til greina.
Stigahlíð
5—6 herb. um 140 ferm. íbúð á
2. hæð. 4 svefnherb. Skipti á
minni eign, (2ja—3ja herb.)
koma til greina.
Hagamelur
Glæsileg ný 3ja herb. jaröhæð.
Mjög góð íbúð.
Hjallavegur
4ra herb. rúmgóð kjallaraíbúð í
tvíbýlishúsi. Öll í mjög góöu
ásigkomulagi.
Samtún
Snyrtileg, samþykkt, 2ja herb.
íbúö í kjallara í tvíbýlishúsi.
Klapparstígur
Falleg 2ja herb. kjallaraíbúð.
Fálkagata
Lítil en snotur 2ja herb. íbúð.
Miövangur
3ja herb. um 80 ferm. íbúð á 3.
hæð í háhýsi. Góð og falleg
íbúð.
Okkur vantar allar
stærðir og geröir eigna
á söluskrá.
Fasteignasalan
Hús og eignir
Bankastræti 6
Lúðvík Gt/urarson hrl
Kvoldsimt 1 7677
* FASTEIGN ASALA ■
KÓPAVOGS
I HAMRAB0RG5
I Guðmundur Þorðarson hdl
SÍMI ■
42066j
Opið virka daga frá 5—7 ■
og sunnudaga frá 2—5 J
43466
MIÐSTÖÐ FASTEIGNA-
VIÐSKIPTANNA, GÓÐ ,
ÞJÓNUSTA ER TAK-
MARK OKKAR, LEITIÐ
UPPLYSINGA
Fasteigrrasalan
EIGNABORG sf
Einbýlishús — Vesturbær
Höfum í einkasölu glæsilegt einbýlishús viö Kvist-
haga. Á 1. hæö, sem er 127 ferm. eru 2 samliggjandi
stofur, herbergi, eldhús, stór skáli og snyrting. Á 2.
hæö, sem er 100 ferm. eru 4 herb., baö og mjög
stórar svalir. í kjallara, sem er 140 ferm., er 3ja herb.
íbúö, herb., þvottahús, hitaklefi og geymslur. Bíl-
skúrsréttur. Stór og fallegur ræktaöur trjágaröur.
Húsiö getur verið laust fljótlega.
Upplýsingar gefur Agnar Gústafsson hrl.
Hafnarstræti 11. Símar 12600 og 21750.
Utan skrifstofutíma 41028.