Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 29 t VELVAKANDI SVARAR í SÍMA OIOOKL. 10—11 FRÁ MANUDEGI hM ÍUAJnPK-UM'V ir andi heilræði til þeirra sem vilja sjá um smáfuglana: „Þeim þykir mjög gott að fá feiti af kjöti svo sem mör og aðrar tægjur af kjöti, en skerið það smátt svo þeir ráði við þær,“ og undir heilræðin skrifaði „Fugla- vinur" og er þessum ráðum hans hér með komið á framfæri. • Sjónvarps- gagnrýni „Gætu þeir sem sjá um sjón- varpsdagskrána ekki látið rokk- hljómsveitir og annað efni sem er aðeins fyrir fámenna hópa vera síðast á dagskránni? Eins og nú hefur verið háttað í lengri tíma þá hefur þessum þáttum verið valinn besti tíminn, það er á eftir frétt- unum. Það sem af er vetri hafa komið fram nokkrir hundleiðinlegir þættir svo sem norsku gaman- þættirnir um prófessorinn, ástr- ölsku framhaldsþættirnir og Margeir Pétursson Á skákmóti í Sviss í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Meyers, sem hafði hvítt og átti leik, og Montparts. Mash, að maður nú ekki nefni Dýrlinginn. Að síðustu getur sjónvarpið frætt mig á því hver velur kvik- myndirnar til sýningar. Það er aðeins ein og ein mynd sem horfandi er á. Sorglegt til þess að vita að offjár og tíma er varið í að þýða annað eins rusl og manni er boðið upp á. Sighvatur F'innsson." • Vantar eldsneyti Bensínhákur segist sífellt vera í vandræðum með að fá eldsneyti á farartæki sitt og hafði eftirfarandi að segja því til skýr- ingar: Allir vita að bensínstöðvarnar í Reykjavík og nágrenni eru á hverju strái eða næstum því það og auðvelt er að fá þennan mikil- væga vökva daglangt allt fram að því að bíóin byrja. En eftir það er aðeins selt bensín á einum stað í Reykjavík og líklega einum í Hafnarfirði, eða var að minnsta kosti. En nú er það svo með fólk sem á bensínfrek farartæki og er mikið á ferðinni að oft getur reynst nauð- synlegt að fá orkugjafann á síðkvöldi eða næturlagi jafnvel, og hindra þá langar biðraðir eða of langar vegalengdir á næstu opna bensínstöð það að maður renni á vökvann. Þess vegna vil ég leyfa mér að leggja til við olíufélögin að þau sammælist um að hafa opnar fleiri bensínstöðvar að næturlagi enda áreiðanlegt að fleiri kynnu að meta þá þjónustu en ég. Á það má einnig benda að við sem eigum mestu bensínhákana erum hinir bestu og mestu viðskiptamenn olíufélaganna og því ekki úr vegi að við fáum nokkuð fyrir okkar snúð. Mér finnst að olíufélögin hljóti að geta sammælst um þetta úr því þau geta komið sér saman um svo margt annað og má ég líka benda á að ef þeim þykir þessi þjónusta of dýr þá er ég alveg reiðubúinn að samþykkja minni þjónustu að degi til, þar mætti sem sagt draga úr ef á móti kæmi aukin þjónusta um nætur. KOMIÐ Jóla- og nýársfilmunum í framköllun til okkar Varöveltiö góöu myndirnar í albúmi frá okkur Versliö hjá - fagmanninum LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811 Garðabær Blaöberar óskast til aö bera út Morgunblaðið í eftirtalin hverfi: hluta af Sunnuflöt og Markarflöt, og Hraunsholt (Ásar). Upplýsingar gefur umboösmaöur Morgun- blaösins í Garöabæ, sími 44146. ansskóli igurðar arsonar Innritun hafin í alla flokka. Kennslustaðir: Reykjavík — Tónabær: Kópavogur — Félagsheimili Kópavogs: Allir almennir samkvæmisdansar og fl. Einnig — Brons — Silfur — Gull, D.S.Í. Innritun og uppl í síma 41557 kl. 1—7. 19. Dxc6+! - Bxc6, 20. Bxc6+ - Ke7, 21. Bc5+ - Ke6, 22. Rd4 mát.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.