Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JR«r0unbtat>ib ^SÍminn á afgreiðslunm er 83033 JW«rounbInbib FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 Mörsugur hófst á annan í jólum og enn eru 356 dagar til næstu jóla, enda árið degi lengra en síðasta ár vegna hlaupársdagsins. Aðeins á eftir að þreyja þorrann og góuna með hækkandi sól þar til vor verður í lofti. Ljósm.: Emiiia Samþykkt borgarstjórnarmeirihlutans í gærkveldi: Tugir borgarstarfsmanna missa vinnuna á þessu ári STARFSMÖNNUM Reykja- víkurborgar verður nú ekki lengur heimilt að vinna nema til 71 árs aldurs, samkvæmt samþykkt meiri- hluta borgarstjórnar í gærkveldi. Er þetta breyt- ing frá þeirri stefnumörk- un, sem samþykkt var í sumar sem leið að tilhlutan borgarfulltrúa Sjálfstæðis- Póstránið: 2 handtekn- ir en sleppt TVEIR SandKerðinjjar voru handteknir í fyrrakvöld vegna rannsóknar póstránsins í Sandgerði. Voru þeir hafðir i haldi þar til í gærdag og þá sleppt. Að sögn Erlu Jónsdóttur var ekki talin ástæða til að halda þeim að svo komnu máli, en lögreglumenn tóku í gær skýrslu af Unni Þorsteinsdótt- ur póstmeistara. Ekki var frek- ari fréttir að hafa í gærkvöld af gangi rannsóknarinnar. —vegna aldurs- takmarka flokksins, að engin aldurs- takmörk giltu á meðan fast- mótaðar reglur um það efni væru ekki fyrir hendi. Þar sem tillaga meirihlutans var samþykkt af fulltrúum Alþýðubandalags, Fram- sóknarflokks og Alþýðu- flokks er ljóst að nokkrir tugir aldraðra starfsmanna borgarinnar munu missa vinnuna á næstunni. I tillögunni sem samþykkt var í gærkveldi segir m.a. að starfs- mönnum borgarinnar sé heimilt að starfa til 71 árs aldurs, eða næstu mánaðamóta þar á eftir. í tillögunni felst einnig, að starfs- manni sé ekki skylt að láta af starfi fyrr en þremur mánuðum liðnum frá samþykkt þessari. Þessi samþykkt er þrenging á samþykkt borgarstjórnar frá 5. júlí s.l. en þá var kveðið á um, að engum starfsmanni, sem hætta ætti fyrir aldurs sakir, væri skylt að hætta. Þetta var gert vegna þess að þá sem og nú voru í endurskoðun reglur um aldurs- mörk borgarstarfsmanna og var endurskoðun ekki lokið. Enn stendur þessi endurskoðun yfir, en eins og áður sagði hefur nú verið tekin ákvörðun um að segja þeim starfsmönnum upp störfum sem náð hafa tilskildu aldurshámarki. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru á móti þessari tillögu og lögðu fram sérstaka bókun, en í henni felst andstaða við hugmynd- ir meirihlutans um uppsagnir aldraðra starfsmanna borgarinn- ar. Nokkrar umræður urðu um EYÐUBLÖÐ vegna skatt- framtals eru nú i prentun og verða væntanlega tilhúin til útburðar í næstu viku eða kringum miðjan mánuðinn. Að sögn Ævars ísberg vararík- isskattstjóra er framtalsfrest- ur samkvæmt lögum nú til 10. febrúar í stað 31. janúar áður. Þá er einnig verið að ganga frá þessa tillögu meirihlutans og með- al annarra tók til máls Guðrún Helgadóttir, borgarfulltrúi Al- þýðubandalagsins. Hún sagði það ábyrgðarleysi að fella þessa til- lögu meirihlutans og minnti á, að nú væri tvíráðið í sumar stöður hjá borginni og væri það afleiðing samþykktar borgarstjórnar frá 5. júlí s.l., eins og borgarstjóri hefði bent á. Þá bað Guðrún minnihluta borgarstjórnar um að samþykkja þessa tillögu og bjarga þar með þeim sem að þessum málum ynnu út úr því öngþveiti sem í þessum málum ríkti hjá borginni. launamiðum og gögnum er til- heyra þeim og hefur verið ákveðið að frestur til að skila launamiðum verði 23. janúar í stað 19. janúar eins og verið hefur undanfarin ár. Framtalseyðublöðin eru útbúin samkvæmt núgildandi skattalög- um og þarf ekki að breyta þeim þótt það frumvarpi er liggur nú fyrir Alþingi verði að lögum. Framtalsfrestur er til 10. febrúar Viðræð- ur halda áfram „VIÐRÆÐUM verður haldið áfram og, ég legg áherzlu á, að Iínur skýrist sem fyrst," sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið í gær. Geir varðist að öðru leyti allra frétta af stjórnarmyndun sinni, sem nú hefur staðið frá 27. desember síðastliðnum. í gær voru haldnir þingflokks- fundir bæði í þingflokki Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks. A þessum fundum var rætt almennt um stjórnmálaviðhorfið, en engar ákvarðanir teknar. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær, leggur formaður Sjálfstæðisflokksins áherzlu á, að í ljós verði komið, um það leyti, sem Alþingi kemur saman eftir jólaleyfi, hvort stjórnarmyndun hans takist eða ekki. Alþingi á að koma saman að öllu forfallalausu hinn 8. janúar næstkomandi. Brotnaði á báðum fótum VINNUSLYS varð um borð í Hafrúnu ÍS frá Bolungarvík í gærmorgun, þar sem bátur- inn lá í Hafnarfjarðarhöfn. Það var um klukkan 9.30 að verið var að setja lúgur yfir lestar bátsins. Voru þær að renna í réttar skorður þegar maður kom skyndilega upp úr lestinni og skipti engum togum að lúgurnar skullu á fótum hans svo að hann fótbrotnaði á báðum fótum. Meiðsli mannsins voru mjög alvarleg og var hann marga klukkutíma á skurðarborðinu í dag. Skjálfti við Leirhnúk Mældist 4 stig ALLSNARPUR jarðskjálfti fannst í Mývatnssveitinni um kl. 4 í gærdag og átti hann upptök sín suðaustan við Leir- hnjúk. Að sögn Karls Grön- volds mældist skjálftinn 4 stig á Richterskvarða. Karl Grönvold sagði að venju- lega væri talað um tvenns konar skjálfta, annars vegar í aðdrag- anda kvikuhlaups og hins vegar skjálfta sem fylgdu hlaupum og teldist þessi til fyrrnefnda flokksins. Hefur ekki fundist svo stór skjálfti síðan í september 1975 í aðdraganda umbrotanna er urðu í desember 1975. Að sögn Kristjáns Þórhalls- sonar fréttaritara Mbl. í Mý- vatnssveit fannst skjálftinn vel í Reykjahlíðarhverfinu. Karl Grönvold sagði menn nyrðra ekki lengur kippa sér upp við skjálfta, en ljóst væri að mikil spenna væri nú á svæðinu við Leirhnjúk, þótt útiiokað væri að segja til um hvenær þar kynni að draga til tíðinda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.