Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 15 Lucan lávarður í Suður-Ameríku? London, 3. janúar. AP. LUCAN lávarður, aðalsmaðurinn sem Scotland Yard hefur leitað að fyrir morð í fimm ár, er sennilega á lífi og búsettur í Suður-Ameríku að sögn David Gerrings yfirlögreglufulltrúa sem hefur stjórnað leitinni að honum en er nú að setjast í helgan stein. Gerring sagði í dag, að verið gæti að Lucan lávarður hefði látið gera á sér skurðaðgerð eins og lestarræning- inn Ronald Biggs, en hann gæti ekki leynt hæð sinni. Biggs komst hjá framsali og hefur búið nálægt Rio de Janeiro síðan 1965 þegar hann var dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir lestarránið. John Richard Bingnam, 7. jarl af Lucan, er sakaður um að hafa myrt barnfóstru barna sinna, Sandra Rivett. Margir hafa þótzt sjá hann erlendis, en ekkert hefur komið út úr því. Gerring segir að leitin að honum sé eins og „leikur kattar að mús“ og æsilegasta málið sem hann hafi fengið til meðferðar. „Ég velti því oft fyrir mér hvað hann hugsar,“ segir Gerring. Gerring er 45 ára og getur látið af störfum eftir 25 ára starf. Hann tók við leitinni að Lucan lávarði af Roy Ránson sem sagði þegar hann lét af störfum að hann væri viss um að Lucan væri látinn. Gerring sagði: „Ég tel að ef hann væri látinn hefði lík hans komið fram í dagsljósið. Ég er viss um að hann leynist einhvers staðar og náist einhvern tírna." Indira Gandhi Jagjivan Ram Bifreið Kurt Waldheims var ekið í burt i skyndi þegar mannfjöldinn réðst að henni við kirkjugarð i Teheran og varð hann að hætta við að fara inn i garðinn. Hann tilkynnti siðar að hann myndi beita sér fyrir rannsókn á valdaferli keisarans í íran. Simamynd AP. Waldheim flæmdur út úr kirkjugarði Teheran, 3. janúar. AP. REIÐUR múgur gerði aðsúg að bifreið Kurt Waldheims, framkvæmdastjóra SÞ, þegar hann heimsótti kirkjugarð í dag. Honum var greinilega brugðið og hann varð að hætta við heimsóknina. Waldheim hafði flogið í þyrlu til Behesht Zahra-kirkjugarðsins fyrir sunnan Teheran til að leggja blómsveig að leiði meintra fórnarlamba fyrrverandi íranskeisara en dvaldist ekki lengur en í sex mínútur. Oeirðir á ^ Nýju Delhi, 3. jan. AP. ÁTTA biðu bana í óeirðum á fyrsta degi indversku kosn- inganna i dag. Kosningunum verður haldið áfram á sunnudag á öðrum svæðum og úrslit munu liggja fyrir á mánudag. Ankara, 3. janúar. AP. UMRÆÐUR hófust í dag í tyrkneska þinginu um frumvörp um baráttu gegn hryðjuverkastarf- semi í kjölfar viðvörunar tyrkneska hersins sem sagði að yfirvöld yrðu að standa saman gegn hryðjuverkamönnum. Lýðveldisflokkur Bul- ent Ecevits, fyrrverandi forsætisráðherra, sam- þykkti þegar í stað að styðja frumvörpin. í frumvörpunum er gert ráð fyrir breytingum á lögum um lögreglu til að auðvelda starf öryggissveita og ráðstöfunum til að hraða meðferð sakamála og auka völd landstjóra í fylkjum Tyrklands til að fást við hryðju- verkamenn. Minnihlutastjórn Suleiman Demirels forsætisráðherra, sem var mynduð þegar Ecevit sagði af sér eftir ósigur í kosningum í nóvember, hyggst auk þess koma á fót ríkisöryggisdómstólum til að fjalla um mál hryðjuverkamanna og fá samþykkt lög um sérstök Indlandi Líklegustu sigurvegarar kosn- inganna eru Indira Gandhi fyrr- verandi forsætisráðherra sem stefnir að því að komast aftur til áhrifa í indverskum stjórnmálum, og Jagjivan Ram fyrrverandi varaforsætisráðherra og leiðtogi stéttleysingja. völd til handa ríkisstjórninni til að berjast gegn pólitískum ofbeld- isverkum án þess að lýsa yfir herlögum. Herlög hafa verið í gildi í 19 af 67 héruðum Tyrklands í eitt ár, en 1979 — Fundur Carters, Call- aghans og Giscard d’Estaings á Guadeloupe. 1978 — Fundur Carters og Sadats í Aswan. 1972 — Pakistanar óska við- ræðna við Indverja eftir ófrið þeirra. 1959 — Óeirðir brjótast út í Lepopoldville í Kongó. 1951 — Norður-Kóreumenn og Kínverjar taka Seoul, Kóreu. 1948 — Burma verður sjálfstætt lýðveldi. 1938 — Bretar fresta áætlun um skiptingu Palestínu. 1935 — íbúar Saar samþykkja sameiningu við Þýzkaland. 1932 — Japanir sækja að Shanhaikwan við Kínamúrinn = Neyðarástandslög á Indlandi, Kongressflokkurinn bannaður Hann steig aldrei úr bifreiðinni til að leggja blómsveiginn, en skipaði bílstjóranum í þess stað að aka aftur til þyrlunnar sem flaug strax með hann aftur til Teheran þar sem hann hóf að nýju viðræð- ur við Sadegh Ghotbzadeh utan- ríkisráðherra. í gær aflýstu yfirvöld fundi sem Waldheim átti að hafa með fórn- arlömbum keisarans og sögðu að pólitísk morð, sprengjuárásir og rán hafa haldið áfram. Helztu blöð Tyrklands fögnuðu í dag yfirlýsingu yfirmanna herafl- ans og sögðu hana túlka skoðanir hins þögla meirihluta í Tyrklandi. og Mahatma Gandhi handtek- inn. 1921 — Indverska þingið kemur fyrst saman. 1919 — Rússneskir bolsévíkar taka Riga, Lettlandi. 1908 — Mulai Hafid verður soldán í Marokkó. 1797 — Napoleon sigrar Austur- ríkismenn við Rivoli, Ítalíu. 1762 — Bretar segja Spánverj- um og Napolimönnum stríð á hendur. Afmæli. James Usher, írskur biskup & fræðimaður (1581 — 1656) = Jakob Grimm, þýzkur þjóðsagnafræðingur & málfræð- ingur (1785—1863). Andlát. Henri Bergson, heim- spekingur, 1941 = Ralph Vaug- han Williams, tónskáld, 1958 = komizt hefði upp um samsæri um að myrða hann „með erlendum stuðningi". Fréttamenn sem ferðuðust með Waldheim misstu sjónar á honum þegar um 500 manns sem voru í heimsókn í kirkjugarðinum um- kringdu bifreið hans, en aðrir fréttamenn við gröfina sem hann átti að leggja blómsveiginn á sáu hann gefa bílstjóranum skipun um að aka burt og hann var greinilega æstur. Aðsúgurinn kom um 20 bylting- arvörðum og lögreglumönnum á staðnum á óvart og þeir gátu ekki haft hemil á mannfjöldanum. Þeg- ar fólkið gerði sér grein fyrir að Waldheim var með þyrlunni kom það hlaupandi að henni úr öllum áttum og hrópuðu slagorð gegn Waldheim, Bandaríkjunum og SÞ. „Þú vinur Carters," hrópaði einn maðurinn hæðnislega, „skil- aðu honum kveðju minni." Margir veifuðu ljósmýndum af látnum ættingjum. „Það ætti að fleygja Waldheim út úr íran,“ „SÞ eru ieikbrúða Bandaríkjanna," hljóð- Albert Camus, rithöfundur, 1960 = T.S. Eliot, skáld, 1965. Innlent. 1917 Fyrsta tslenzka ráðuneytið tekur við stjórn = 1656 d. Þorlákur Skúlason bisk- up = 1891 d. Konráð Gíslason prófessor = 1883 d. Jón landritari Jónsson = 1937 Bátum sökkt í Vestmannaeyjahöfn = 1948 Vél- báturinn „Björg" kemur til Reykjavíkur eftir langa hrakn- inga = 1961 d. Björgvin Guð- mundsson tónskáld. Orð dagsins. Stefnur eru eins og mannfólkið — þær snúa aftur til sinna upphaflegu heimkynna — Giovanni Ruffini, ítalskur rit- höfundur (1807-1881). uðu sum slagorðin. Einnig var sönglað á ensku „Dauði yfir Cart- er. Dauði yfir keisaranum". Ghotbzadeh hafði sagt í gær að ekkert yrði tilkynnt fyrirfram um ferðir Waldheims af öryggis- ástæðum. Springer yngri fyrirfór sér Hamborg, 3. janúar. AP. AXEL Springer yngri, elzti sonur vestur-þýzka blaða- kóngsins, svipti sig lífi með skammbyssu í Hamborg í gærkvöldi að sögn tals- manns blaðaútgáfufyrirtæk- isins í dag. Springer var 38 ára gamall og gegndi ritstjórastarfi hjá vikublaði föður síns, „Bild am Sonntag". Hann rak einn- ig eigið Ijósmyndafyrirtæki í Bonn undir nafninu Sven Simon. Hann var fráskilinn og átti tvö börn. Springer-útgáfufyrirtækið hefur aðalstöðvar sínar í Hamborg. Það gefur út dagblaðið Bild Zeitung, stærsta dagblað landsins, Die Welt og nokkur önnur dagblöð og tímarit sem end- urspegla íhaldssamar stjórn- málaskoðanir eigandans. Vegfarandi fann lík Springers í morgun á bekk í garði við Alster-vatn í Ham- borg. Skammbyssan lá við hliðina á honum á bekknum. Hann hafði þjáðst af þung- lyndi síðan hann veiktist af ótilgreindum sjúkdómi fyrir sex mánuðum að sögn tals- mannsins. Eining i Tyrklandi gegn hryðjuyerkum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.