Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
Khomeini
Khomeini tilnefnd-
ur „maður ársins44
New York, 1. jan. AP.
ALL HARKALEG viðbrögð
hafa orðið víða vegna þeirrar
ákvörðunar bandaríska viku-
ritsins Time að tilnefna Khom-
eini erkiklerk mann ársins.
Sagði talsmaður blaðsins að-um
tvö hundruð manns hefðu
hringt á fyrsta útkomudegi
ritsins þar sem frá þessu var
sagt og heíðu þessar hring-
ingar verið neikvæðar og all-
margir hefðu sagt upp áskrift-
um sínum. Hann sagði að eng-
inn þeirra, sem hringdu, hefði
látið í ljós ánægju sína.
Blaðið leggur áherzlu á að á
hverju ári síðan það byrjaði á
þessum sið hafi ritstjórar þess
lagt kapp á að velja þann mann
ársins „sem hafi gert mest til að
breyta fréttum — til góðs eða
ills“. í frásögn blaðsins segir að
Khomeini gnæfi ógnandi yfir
hnettinum og hafi veitt öllum
heimi óþyrmilega lexíu í ringul-
reiðarvaldi og skefjalausum
hryðjuverkum, og úr. þessum
hrærigraut hafi átt að koma
stjórnarstefna. Talsmaður
blaðsins kvaðst vilja leggja
áherzlu á að útnefningin í ár
væri ekki viðurkenning og að
ritstjórar blaðsins gætu ekki
leitt hjá sér fréttamakara á borð
við Khomeini. Hann sagðist
benda á að á sínum tíma hefðu
þeir Hitler og Stalín verið til-
nefndir á áþekkum forsendum.
*
Fyrrverandi Iranskeis-
ari „dús við að vera dæmd-
ur af verkum sínum“
London, 2. jan. AP.
MOHAMMED Reza Pahlevi, fyrr-
verandi íranskeisari. sagði í viðtali
við brezka blaðið Daily Mail í dag,
að hann myndi vera „dús og ánægð-
ur með að vera dæmdur af þeim
verkum og þeim árangri sem hann
tryði að hefði náðst fram á valda-
tíma sínum í íran“. Viðtalið fór
fram á panamísku eyjunni Conta-
dora undir strangri öryggisvörzlu
og sagði keisarinn, að hann væri
sannfærður um réttmæti þess mál-
staðar sem hann hefði barizt fyrir.
Hann sagði að hann myndi þurfa
að vera sannfærður um að dómstóll
sem fjallaði um þetta mál væri
hlutlaus og það fordæmi sem hann
kynni að sýna með því að ganga
fram fyrir slíkan dómstól hlyti að
vera þeim skilyrðum háð að þeir
þjóðarleiðtogar sem skipuðu slíkan
dómstól yrðu að vera sjálfir undir
það búnir að þeir yrðu leiddir fyrir
dóm ef ný ríkisstjórn þeirra krefðist
þess.
Keisarinn neitaði því að hann
myndi nokkru sinni snúa aftur til
írans en svo sem alkunna er er
framsal hans ein meginkrafa bylt-
ingarmanna þar. Keisarinn sagði að
víst væri ekki raunhæft að kveða
upp úr með það nú á stundinni hvort
rétt væri að efna til alþjóðlegrar
umfjöllunar um stjórnartíð hans
vegna þess að heilsufar hans væri
enn ekki slíkt. En hann hefði kosið
að íranska þjóðin hefði úrslitavaldið
um framtíð sína. „Hefði ég ekki
viljað það hefði ég getað verið þar.
Eg hafði 540 þúsund trygga hermenn
sem hefðu barizt fyrir mig. Þess í
stað fór ég svo að þjóðin gæti
ákveðið sig.“
Blaðamaður Daily Mail sagði, að
Reza Pahlevi hefði verið þreytu-
legur, en hann hefði borið sig vel og
sagt að heilsa sín færi batnandi.
Hann kvaðst hafa farið frá Banda-
ríkjunum einvörðungu vegna þess að
það kynni að hjálpa Bandaríkja-
mönnum til að leysa gíslamálið.
„Mér til angurs varð mér ekki að
þeirri ósk.“
Reza Pahlevi og Farah Diba, fyrrverandi keisarahjón í íran.
OL-hreyfingin
er gegn banni
Veður
Akureyri -2 alskýjað
Amsterdam 0 skýjað
Aþena 11 skýjaö
Barcelona 11 léttskýjað
Berlín -1 skýjað
BrUssel 4 skýjaö
Chicago -1 skýjað
Feneyjar 7 heiðríkt
Frankfurt 3 snjókoma
Genf 0 skýjaö
Helsinki -3 snjókoma
Jerúsalem 14 heiðskírt
Jóhannesarborg 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 skýjaö
Las Palmas 20 hálfskýjað
Lissabon 15 skýjað
London 5 rigning
Los Angeles 27 heiðskírt
Madríd 16 heiðskírt
Malaga 10 léttskýjað
Mallorca 10 skýjað
Miami 19 skýjaö
Moskva -2 heíðskírt
New York 5 skýjað
Ósló -5 heíðskírt
París 4 skýjað
Reykjavík -2 skýjað
Rio de Janeiro 27 skýjað
Rómaborg 7 heiðskírt
Stokkhólmur -5 skýjað heiðskírt
Tel Aviv 19
Tókýó 10 skýjaö
Vancouver 10 skýjað
Vínarborg 1 heiðskírt
V antrauststillag-
an á Begin felld
Jerúsalem, 2. jan. AP.
BEGIN forsætisráðherra ísraels
og ríkisstjórn hans báru hærri
hlut í atkvæðagreiðslu um van-
traust á ríkisstjórnina. Atkvæði
féliu 60-43.
Vantraustið var borið fram
vegna tafa sem orðið hafa á því
að flytja á braut landnema á
Vesturbakkanum, sem hafa setzt
að á nokkrum stöðum og ekki
hlítt úrskurði Hæstaréttar lands-
ins um að hverfa á braut. Hefur
Begin og ríkisstjórn hans sætt
verulegu ámæli fyrir að sýna
landnemunum linkind í þessu
efni.
London, 3. janúar. AP.
FULLTRÚAR Ólympíuhreyfingar-
innar hafa fylkt liði gegn vestræn-
um stjórnmálamönnum sem krefj-
ast þess að hætt verði við þátttöku í
Ólympíuleikunum í Moskvu í júlí
nk. í mótmælaskyni við hernaðar-
íhlutun Rússa í Afghanistan.
„íþróttamenn skipta aðalmáli og
það má á engan hátt koma í veg fyrir
að þeir keppi á alþjóðlegum mótum
með stjórnmála-, kynþátta- eða
trúarmisrétti," sagði Killanin lá-
varður, forseti Alþjóða Ólympíu-
hreyfingarinnar í yfirlýsingu.
Starfsmenn íþróttamála í Belgíu,
Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Noregi
og Vestur-Þýzkalandi tóku í sama
streng.
Killanin gaf yfirlýsingu sína í
aðalstöðvum Ólympíuhreyfingarinn-
ar í Lausanne, Sviss, í kjölfar fundar
NATO í Brússel um hugsanlegt bann
við þátttöku í leikunum eins og
vestur-þýzkur fulltrúi lagði til.
Vestrænir íþróttamenn leggja
áherzlu á að vestrænar ríkisstjórnir
hafi lítið sem ekkert lagalegt vald til
að koma í veg fyrir þátttöku íþrótta-
manna í leikunum. Belgískur fulltrúi
í Ólympíunefndinni sagði að samtök-
in væru fullvalda og gætu tekið þátt
í leikunum án tillits til afstöðu
ríkisstjórna.
Formaður brezku Ólympíunefnd-
arinnar, Sir Dénis Follows, sagði að
brezka stjórnin gæti aðeins komið í
veg fyrir þátttöku brezkra íþrótta-
manna með því að svipta þá vega-
bréfum og útilokað væri að það gæti
gerzt.
Hreyfilfestingar jumbó-flutningaflugvélar Pan Am á myndinni losnuðu og eidur kom upp i
hreyflinum í lendingu á Heathrowflugvelli. Vindhviða mun hafa valdið því, að vængurinn rakst í
jörðina þannig að hreyfillinn losnaði og síðan kviknaði í vængnum. Þriggja manna áhöfn var í
flugvélinni og engan þeirra sakaði. Rannsókn hefur verið fyrirskipuð.
Sir Alfred
Hitchcock
London, 2. janúar. AP.
Kvikmyndaleikstjórinn Alfred
Hitchcock, sem frægur er fyrir
hrollvekjur sinar, var einn þeirra
sem Elisabet drottning heiðraði um
áramótin. Hann var sleginn til
riddara og kailast hér eftir Sir
Alfred Hitchcock.
Colin Davis, tónlistarstjóri óper-
unnar í Covent Garden, var einnig
sleginn til riddara og auk hans m.a.
próf. Max Beloff sagnfræðingur.
Norris McWhirter, ritstjóri meta-
bókar Guiness var sæmdur orðunni
CBE. Fyrrverandi fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, Emlyn
Hughes, var sæmdur orðu brezka
heimsveldisins, OBE, ásamt dægur-
lagasöngvaranum Cliff Richard.
Aftur er tekinn upp sá siður að
þessu sinni að heiðra menn fyrir
„pólitíska þjónustu" og alls fengu
um 50 þingmenn og starfsmenn
íhaldsflokksins orður og titla.
Verkamannaflokkurinn tilnefndi
engan mann, en sex úr Frjálslynda
flokknum voru heiðraðir.