Morgunblaðið - 04.01.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
+ Bróöir okkar, / ÞORLEIFUR ERLENDSSON, Meiöastöðum, Garði, andaöist 2. janúar. Fyrir hönd systkina hins látna. Björg Erlendsdóttír.
t Konan mín og móðir, GUÐNY RUNÓLFSDÓTTIR, lést í Landspítalanum 2. janúar. Ragnar Báröarson og Málfríöur Siguröardóttir.
+ Faöir okkar, BALDUR OXDAL, deildarstjóri, Skógargerói 9, lést að Hrafnistu 29. desember. Jaröarförin auglýst síöar. Börnin.
+ Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, SVAVA JAKOBSDÓTTIR Lönguhlíö 23, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, í dag föstudaginn 4. janúar kl. 1.30 e.h. Garðar Jónsson, synir, tengdadætur og barnabörn.
+ Útför bróöur okkar, ÓLAFS HALLVARÐSSONAR, Geldingaá, veröur gerð frá Leirárkirkju, laugardaginn 5. janúar kl. 14.00. Björg Hallvarösdóttir, Svava Hallvarösdóttir, Jóhann hallvarösson.
+ Útför eiginmanns míns, sonar, stúpföður og bróöur, HREINS ÞORSTEINSSONAR, Glerárgötu 14, Akureyri, sem lést 29. desember veröur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 8. janúar kl. 10 f.h. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Sigurlína Jónsdóttir, Rannveig Jónsdóttir, stjúpbörn og systkini.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför, ÞÓRHILDAR BJÖRNSDOTTUR, frá Rangá. Systkini og aörir vandamenn.
+ Alúöarþakkir til allra þeirra er sýhdu okkur samúö og heiðruöu minningu eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, AÐALSTEINS ÞORSTEINSSONAR, Fróöasundi 4, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks gjörgæsludeildar Fjóröungssjúkrahúss Akureyrar fyrir mjög góöa umönnun. Freyja Hallgrímsdóttir, Erla Aðalsteinsdóttir, Elías Sveinsson, Aöalsteinn Elíasson, Árni Freyr Elíasson.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGURGEIRS EIRÍKSSONAR, Snælandi 4, Rvfk. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös gjörgæzludeildar Landspi'talans fyrir ánægjulega umönnun í veikindum hans. Valgeröur Austmar, börn tengdabörn og barnabörn.
In memoriam:
Dr. Finnur Guðmunds-
son fuglafrœðingur
Fæddur 22. apríl 1909.
Dáinn 27. desember 1979.
Dr. Finnur Guðmundsson er
látinn. Ekki eru liðnir nema röskir
8 mánuðir frá því að Finnur varð
sjötugur, en af því tilefni ritaði ég
nokkur orð. Ekki verður það
endurtekið hér, sem þar var sagt,
enda verður ævi Finns og störfum
gerð skil á öðrum vettvangi.
Lengi hefur verið ljóst að hverju
stefndi, en þrek Finns var mikið,
og hann lét ekki bugast þótt
sárþjáður væri. En þungt fékk
honum, að þrótturinn hin síðustu
ár skyldi ekki hrökkva til þess að
hann gæti unnið að marki við
samantekt eldri rannsókna sinna,
eins og hugur hans stóð til. Og víst
hefði það verið ómetanlegt
íslenskum náttúrufræðum hefði
Finni auðnast það.
Finns verður minnst sem fjöl-
hæfs vísindamanns, sem kom
ótrúlega miklu í verk og vann
afrek, sem vöktu athygli um allan
heim, þrátt fyrir erfið vinnuskil-
yrði hér heima fyrir. Sem vísinda-
maður hefur Finnur haft djúp-
stæð áhrif á náttúrufræðirann-
sóknir og náttúruverndarmál
hérlendis undanfarna áratugi.
Sjálfur stend ég í ómetanlegri
þakkarskuld við Finn, og er ég þar
í hópi þeirra margra, sem Finnur
hefur stutt og hvatt á þann veg
sem honum einum var lagið.
Þessum fátæklegu orðum vil ég
svo ljúka með því að votta fjöl-
skyldu Finns samúð mína.
Agnar Ingólfsson
Hinn 27. desember 1979 lést í
Reykjavík dr. Finnur Guðmunds-
son náttúrufræðingur, fyrrum
deildarstjóri dýrafræðideildar
Náttúrufræðistofnunar Islands og
forstöðumaður stofnunarinnar um
árabil. Finnur Guðmundsson var á
sjötugasta og fyrsta aldursári er
hann lést. Hann átti við langvar-
andi vanheilsu og mikla sjúk-
dómserfiðleika að stríða mörg
undanfarin ár. Finnur varð sjöt-
ugur hinn 22. apríl sl. og var hans
þá getið allítarlega hér í blaðinu.
Mun því stiklað á stóru hér og
aðeins minnst fárra atriða er
koma í hugann þegar horft er til
baka yfir merkan æviferil og nær
þriggja áratuga kynni.
Islenskir náttúrufræðingar
munu lengi minnast brautryðj-
endastarfa dr. Finns Guðmunds-
sonar. Framlag hans var marg-
víslegt og einkenndist jafnan af
skapandi vísindamennsku og
óvenjulegri vandvirkni. Finnur
kom innlendum rannsóknum á
dýralífi landsins á fastan grund-
völl með því að byggja upp
vísindalega eintaka- og gagnasöfn
Náttúrugripasafnsins (síðar Nátt-
úrufræðistofnunar íslands).
Þannig fluttist miðstöð íslenskra
dýrafræðirannsókna frá Kaup-
mannahöfn til Reykjavíkur. Jafn-
framt þessu óeigingjarna starfi,
sem vissulega verður að telja til
sjálfstæðismála Islendinga, lét
Finnur að sér kveða við vísinda-
störf sem öfluðu honum verð-
skuldaðrar viðurkenningar á al-
þjóðavettvangi. Lærisveinar hans
hérlendis munu þó einkum minnst
þess hve óþreytandi hann var að
miðla af þekkingu sinni og
reynslu, hvort sem í hlut áttu
heimsfrægir vísindamenn eða for-
vitnir unglingar.
Augljóst er að vísindastörf
Finns Guðmundssonar voru mikið
til unnin fyrir eigin dáð og án
teljandi skilnings stjórnvalda.
Störf hans að náttúruvernd
mættu þó oftar andúð en skiln-
ingsleysi, og Finnur varð oft að
eyða miklum tíma í náttúruvernd-
arbaráttu. Ber þar hæst þáttur
hans í vernd Þjórsárvera við
Hofsjökul og Mývatns- og Laxár-
svæðisins.
Með Finni Guðmundssyni er
genginn merkur vísindamaður og
einlægur unnandi íslenskrar nátt-
úru. Við sem áttum því láni að
fagna að kynnast Finni, læra af
honum og vinna með honum,
munum ætíð búa að þeim kynnum.
Fjölskyldu Finns, og sérstaklega
dætrum hans, Guðrúnu og Helgu,
votta ég innilega samúð mína.
Arnþór Garðarsson
í dag er gerð útför Finns
Guðmundssonar dýrafræðings,
sem um árabil hefur verið einn
þekktasti vísindamaður landsins.
Hann lést 27. desember s.l. og
hafði átt við alvarleg veikindi að
stríða nokkur ár, en hafði þó
lengst af fótavist. Hann tók veik-
indum sínum með einstöku æðru-
leysi og karlmennsku, þó hann
væri oft sárþjáður síðustu mánuð-
ina, og hefði verið manna síðastur
til að vorkenna sjálfum sér. Finn-
ur stundaði nám í náttúrufræði,
einkum dýrafræði, við háskólann í
Hamborg að loknu stúdentsprófi
og lauk þar doktorsprófi 1937.
Sama ár réðst hann að Fiskideild
Atvinnudeildar Háskólans, sem
síðar varð Hafrannsóknastofnun,
og fékkst þar aðallega við rann-
sóknir á sjávarsvifi til ársins 1947.
Það ár tók hann við starfi deildar-
stjóra Náttúrugripasafns Islands,
eða um leið og Hið íslenska
náttúrufræðifélag, sem stofnaði
safnið og átti það rúm 57 ár,
afhenti það íslenska ríkinu til
eignar og umsjónar.
Finnur hafði reyndar haft um-
sjón með safninu fyrir Náttúru-
fræðifélagið allt frá 1941 og veitt
forstöðu fuglamerkingum á þess
vegum frá 1942, svo hann var þar
öllum hnútum kunnugur. Við
Náttúrugripasafnið, og Náttúru-
fræðistofnun íslands eftir að
skipulagi og nafni safnsins var
breytt, vann hann síðan samfellt
þangað til hann lét af störfum
vegna sjúkleika í árslok 1977. Þar
vann hann geysimikið starf að
uppbyggingu dýrafræðideildar og
safna hennar, og reyndar stofnun-
arinnar allrar því forstöðumaður
hennar var hann samhliða deild-
arstjórastarfinu fjögur þriggja
ára tímabil eða alls í 12 ár,
jafnframt því sem hann stundaði
umfangsmiklar rannsóknir á
íslenskum fuglum og var einn
helsti brautryðjandi á sviði nátt-
úruverndar hér á landi.
Finnur bar hag Náttúrufræði-
stofnunar mjög fyrir brjósti og
helgaði henni mestalla starfs-
krafta sína; ófáar helgar sat hann
þar við vinnu og ekki held ég hann
hafi tekið sér sumarfrí nema
kannski einu sinni eða tvisvar
þessi rúmlega þrjátíu ár sem hann
vann þar. Hann var ákaflega
nákvæmur og vandvirkur í sínum
safn- og rannsóknastörfum og
vannst honum því frekar hægt, en
þó liggur eftir hann fjöldi vísinda-
og fræðslugreina um íslenska
dýrafræði, og þá einkum fugla, í
islenskum og erlendum fagtíma-
ritum, sú síðasta í nýútkominni
bók um Mývatnsrannsóknir.
t
Faöir okkar og bróöir,
JÚLÍUS STEINDÓRSSON,
hljóðfæraleikari frá Suóurvík,
Vík í Mýrdal,
lést á Bispebjerg hospital í Kaupmannahöfn 30. desember s.l.
Dætur og systkini hins látna.
t
Þökkum öllum innilega auðsýnda samúö og vinarhug og þá
sérstaklega Oddfellowbræörum í Þorkeli mána, viö andlát og útför
mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og bróöur,
HÖGNA EINARSSONAR,
skósmíöameistara,
Furugrund 30, Kópavogi.
Jónborg Siguröardóttir,
Siguröur Högnason, Elín Jóhannsdóttir,
Einar Högnason, Sigríöur Guömundsdóttir,
Sigrún Högnadóttir, Jón Á. Stefánsson,
Hilmar Högnason, Hrefna Ó. Connor,
barnabörn og systkini.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför,
ANDRÉSAR GUDBJÖRNS MAGNÚSSONAR,
frá Drangsnesi,
Vallargötu 8, Sandgeröi.
Stefanía Andrésdóttir, Jón Loftsson,
Magnús Andrésson,
Friðrik Andrésson,
Anna Andrésdóttir,
Marel Andrésson,
Guörún Andrésdóttir,
Herdís Andrésdóttir,
Ingólfur Andrésson,
Efmía Andrésdóttir.
Bjarni Andrésson,
Ríkey Andrésdóttir,
Hrefna Andrésdóttir,
Þóra Sigurmundsdóttir,
Sigurveig Valdimarsdóttir,
Kolbeinn Bjarnason,
María Ármannsdóttir,
Jóhann Vilbergsson,
Ingvar Ingvarsson,
Árný Guöjónadóttir,
Ómar Ólafsson,
Stefanía Ólafsdóttir,
Guöjón Guömundsson,
Gísli Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.