Morgunblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 9. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tveir bíða bana í fanga uppreisn í Afghanistan Ættingjar fanga í fangelsi skammt utan við Kabul brutust inn í fangelsið. Síðar kom til átaka milli hermanna og fang- anna og ættingja þeirra og biðu tveir menn bana. Stuttu eftir að þessi mynd var tekin var er- lendum ljósmyndurum og hlaða- mönnum vísað frá af vonniiðnm Kabul. Moskvu, London. París. 11. janúar. AP. KARMAL forseti Afghanistan sagði í dag að sovézkar hersveitir yrðu kvaddar heim frá Afghanistan jafn- skjótt og Bandaríkin, Kína og önnur erlend ríki hættu stuðningi við íslamíska uppreisnarmenn í landinu. Karmal bætti því við, að Rússar hefðu aldrei skipt sér af innanríkismálum í nokkru ríki og svo væri ekki heldur í Afghanistan. Nú er talið að um eitt hundrað þúsund sovézkir hermenn séu í landinu og taka þeir virkan þátt í bardögum gegn uppreisnarmönnum. Uppreisn var gerð í fangelsi skammt utan höfuðborgarinnar Kabul í dag, þegar nokkrum fang- anna var gefið frelsi. U.þ.b. 800 menn, ættingjar fanga, brutust inn í fangelsið þegar í ljós kom að aðeins átti að sleppa fáum þeirra, sem í fangelsinu voru. Gengu fangarnir til liðs við þá og kom til átaka við lögreglu og verði. Einn afghanskur hermaður beið bana og einn óbreyttur borgari. Fang- arnir og stuðningsmenn þeirra hrópuðu ókvæðisorð um Sovétrík- in og stjórnina í Kabul. Sovézkir hermenn komu fljótt á vettvang og var uppreisnin bæld niður á skömmum tíma. Brezka stjórnin kvaddi sendi- herra sinn í Kabul heim til viðræðna í dag. Bretland hefur ekki viðurkennt hina nýju vald- hafa í Afghanistan. Talsmaður Indiru Gandhi, væntanlegs forsætisráðherra Indlands, sagði í dag að hún tæki trúanlegar fyrirætlanir Sovétríkj- anna um að kalla heim herlið sitt í Afghanistan, þegar stjórnin í Kabul óskar eftir því. Sjá nánar: „Ekkert korn ... “ á bls. 19 í Mbl. í dag. Sameinuðu þjóðirnar: Marchais, leiðtogi franska kommúnistaflokksins, sagði í dag, að íhlutun Sovétríkjanna í Afg- hanistan væri réttlætanleg, þar sem um hana hefði verið beðið á grundvelli vináttusamnings þjóð- anna. Atkvæðagreiðsla í dag um Af ghanistanmálið? S.Þ.: Refsiaðgerð- ir gegn Iran? New York, 11. janúar. AP. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna var boðað til fundar síðdcgis á fóstudag til að fjalla um tillögu Bandaríkjanna þess efnis, að efna- hagslegum refsiaðgerðum verði beitt gegn Iran, þar til bandarísku gíslunum í Teheran verður sleppt. í tillögu, sem fulltrúi Bandaríkjanna lagði fram í ráðinu, er gert ráð fyrir þvi að öllum viðskiptum við Iran verði hætt, nema sendingum matar og lyfja. Einnig er gert ráð fyrir algeru samgöngubanni við íran og stöðvun allrar annarrar þjónustu. Búizt er við því, að Sovétríkin beiti neitunarvaldi sínu gegn þessari til- lögu, en sendiherra þeirra hefur sagt að aðgerðir sem þessar væru íhlutun í innanríkismálum í íran. New York, Washington. 11. janúar. AP. UMRÆÐUR fóru í gær fram á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um innrás Sovétríkjanna í Afghanistan og tóku fulltrúar margra ríkja til máls og fordæmdu innrásina. í þeirra höpi voru sendiherrar Kína, Japans, Pakistans, Kuwaits og Kanada. Lýstu þeir allir áhyggjum sínum vegna þróunar mála í Afghanistan, en sendiherra Sovétríkjanna og utanríkisráðherra Afghanistans andmæltu og kváðu atburðina i landinu vera mál Afghana og Sovétmanna einna og innanrikismál í Afghanistan. Búist er við því að gengið verði til atkvæða um tillögu, þar sem Sovétríkin eru hvött til að kalla heim herlið sitt, þegar umræðum lýkur einhvern tíma dags á laugar- dag. Að tillögunni standa ýmis ríki múhameðstrúarmanna og önnur ríki þriðja heimsins. Miklar líkur eru taldar á því að tillagan hljóti samþykki. Vance utanríkisráðherra Banda- ríkjanna sagði í dag að búast mætti við því að þær aðgerðir, sem Bandaríkin hafa gripið til gegn Sovétríkjunum verði lengi í gildi. Joe Clark forsætisráðherra Kan- ada sagði í dag að Kanadamenn mundu hafa frumkvæði að því að reyna að fá Ölympíuleikana flutta frá Moskvu til einhverrar annarrar borgar, e.t.v. til Montreal, þar sem leikarnir voru haldnir árið 1976. Verkalýðsfélög í Bandaríkjunum ákváðu í dag að hætta að afgreiða flugvélar sovézka flugfélagsins Aeroflot í New York og Washing- ton. Áður höfðu stjórnvöld ákveðið að draga út tíðni ferða félagsins milli sovétríkjanna og borga í Bandaríkjunum. Alþjóðasamtök verkalýðsfélaga í Brussel fordæmdu í dag innrásina í Afghanistan og kröfðust þess að allt sovézkt herlið yrði þegar kvatt heim. Júgóslavar efla varnir Belgrad, 11. janúar. AP. ALLIR helztu leiðtogar Júgó- slavíu að Tito forseta undan- skildum komu saman til fundar í Belgrad í dag til að ræða um á hvern hátt mætti efla varnir landsins. Tito liggur nú á sjúkrahúsi í Norður-Júgóslavíu. Á fundinum í Belgrad voru saman komnir meðlimir í for- sætisnefnd júgóslavneska kommúnistaflokksins og helztu forystumenn í stjórnkerfinu. í frétt Tanjug-fréttastofunnar í Júgóslavíu höfðu fundarmenn áhyggjur af að „ástand alþjóða- mála hefði versnað alvarlega." Ákváðu þeir að bæta varnakerfi landsins og efla neyðarkerfi þau, sem gripa skal til komi til styrjaldar. Að sögn Tanjug-fréttastof- unnar var á fundinum rætt um „atburðina í Afghanistan," en stjórn landsins hefur lýst yfir vanþóknun sinni á hernaðar- íhlutun Sovétríkjanna þar í landi. Ekki er talið að fundurinn í dag standi í sambandi við veik- indi Titos, en hann hefur verið frá störfum um nokkurt skeið. Tito, sem er 87 ára að aldri, dvelur í einangrun á sjúkrahúsí í júgóslavnesku ölpunum og ber- ast þaðan litlar fréttir af líðan hans. Chen Chu, sendiherra. Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, og Shah Mohammad Dost, utanríkisráðherra Afghanistans, flytja mál sitt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna i New York í gær. (Simamyndir AP) Rhodesía: Bardagar skæruliða og stiórnarhersins Salisbury. 11. janúar AP. HERMENN úr Rhódesíuher skutu í dag til bana sjö skæruliöa, sem neituðu að leggja niður vopn og fallast á vopnahlé það. sem samið hefur verið um milli hinna stríðandi aðila í landinu. Þetta er í fyrsta sinn eftir að vopnahléð tók formlega gildi, að mannfall verður í skærum stjórnarhersins og skæru- liða. Skæruliðarnir, sem drepnir voru, komu úr röðum Nkomos, en þeir höfðu verið sakaðir um að bera ábyrgð á dauða sex óbreyttra borg- ara fyrr í þessari viku, þegar kom til skotbardaga milli lögreglu og skæru- liða, sem staðnir voru að búðarráni í bænum Lupana í suðvesturhluta Rhódesíu. Handsprengju og tveimur benzínsprengjum var í dag varpað inn á heimili eins helzta ráðgjafa skæruliðaleiðtogans Roberts Mug- abe. Eldur kom upp í húsinu, en engan sakaði. Kenneth Kaunda forseti Zambíu varaði í dag brezku stjórnina við því að missa tökin á þróun mála í Rhódesíu og hvatti jafnframt skæru- liðahreyfingarnar í landinu til þess að standa saman. Kaunda endurtók jafnframt, að Zambía mundi viður- kenna stjórn sigurvegara kosn- inganna, sem ráðgerðar eru í Rhód- esíu í lok febrúar, svo fremi að kosningarnar fari heiðarlega fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.