Morgunblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 27 Áramót með kúm og nautum Komið þið nú sæl, krakkar mínir. Ég er að hugsa um að segja ykkur sögu. Það var um áramót fyrir löngu síðan, að ég bjó í heitu landi nálægt miðbaug jarðar. Ég hafði hvorki útvarp né sjónvarp, ég sá ekkert ára- mótaskaup og enga flugelda eða áramótabrennur. Eftir jólin var ég einn með svarta fólkinu, sem á heima þarna. Það voru bara fáir, sem héldu hátíðleg jól. Krakkarn- ir hafa ekki heyrt um Jesúm Krist og vita ekki hvað eru jól. Þau fengu víst engar jólagjafir heldur, því að ég sá þau ekki með nein ný leik- föng og ekki heldur í nýjum fötum. Einn strákur hét Abdulla. Hann strauk úr skólanum og fór með vini sínum í annan bæ og fór að vinna fyrir sér með því að bursta skó. Pabbi hans var oft vondur við hann og Abdulla var oft svangur. Einu sinni kom ég í þennan bæ. Þá komu Abdulla hlaup- andi og spurði hvort hann mætti bursta skóna mína. Gamlársdagur var eins og allir hinir dagarnir. Sólin var brennandi heit eftir há- degið og klukkan hálf sjö kom niðamyrkur og loftið kólnaði. Þess vegna man ég ekki hvað ég var að gera á gamlárskvöld. Eftir áramótin frétti ég nokkuð, sem gladdi alla mik- ið. Héraðsstjórinn var að fara. Börnin og fullorðna fólkið voru hrædd við hann. Hann var grimmur og stal frá fátæka fólkinu. Nú lét hann það boð út ganga að hann ætlaði að halda veislu að skilnaði. Mér var boðið og pabba hans Abdulla og mörgum, mörgum öðrum. I veislunni voru nokkrar kýr og nokkur naut. Þegar ég var að koma var einmitt búið að klára allt veislukjötið. Þeir báðu okkur að bíða smá- stund. Þeir tóku eina kúna, slátruðu henni og steiktu kjötið í smábitum, en sumir borðuðu kjötið bara hrátt. Það vildi ég ekki, því að þá getur maður fengið orma í magann. Svo fór vondi héraðsstjór- inn upp í jeppabílinn sinn og vinkaði til fólksins. Þá lagð- ist pabbi hans Abdulla á jörðina og kyssti hjólförin og þóttist vera að gráta og kveina. Margt annað fólk gerði hið sama. Þetta þótti mér mjög einkennilegt. Full- orðið fólk getur oft verið svo skrítið. Ég vona að hann Abdulia sé orðinn fullorðinn núna og sé góður maður og ef til vill fæ ég að sjá hann einhvern tíma aftur. Ykkar Gísli Halldór. Vel svarad Loðvík 14. Prakkakonungur sagði eitt sinn við góðvin sinn: „Hvernig líst yður á þessi lélegu vers, sem ég hef ort?“ Loðvík rétti honum blaðið, sem hann hafði ritað versin á. Þegar vinur hans hafði lesið blaðið, svaraði hann. „Ekkert er yður ómögulegt, herra konungur! Þér hafið ætlað að yrkja léleg vers, og yður hefur tekist það.“ Teikning: Sigrún Haraldsdóttir, 12 ára, Hafnarfirði. Undur hafsins — eitt af furðuverkum í náttúrunnar ríki. Teikning: Guðrún, 5 ára. Jólin komu og fóru — og mikið var gaman að gleðjast með öðrum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.