Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 . HLAÐVARPINN . Akureyr- ingar dansa á íslenzku lerki ÞEIR félagar Hallgrímur Arason og Stefán Gunnlaugsson í Baut- anum á Akureyri hafa fitjað upp á mörgum nýjungum í starfi sínu sem veitingamenn og veitinga- staður þeirra þykir í fremstu röð. Fyrir nokkru innréttuðu þeir sal á neðstu hæð hússins og kalla hann Smiðjuna. Salurinn er leigð- ur út fyrir minni samkvæmi, árshátíðir, þorrablót, brúðkaups- veizlur og fleira þess háttar og tekur hann 50—60 manns. Þarna hafa þeir Hallgrímur og Stefán látið útbúa dansgólf úr lerki úr Vaglaskógi og er enginn vafi á því að danslistin mun blómstra á þessu óvenjulega dansgólfi. Unnið var kappsamlega að því að full- gera dansgólfið nú í vikunni og í gærkvöldi, föstudag, átti að reyna það í fyrsta sinn, en þá var einkasamkvæmi í Smiðjunni. Á myndinni sjást þeir félagar Hallgrímur (t.v.) og Stefán á fína gólfinu. Ljósm. Emilia. Hildur Einarsdóttir — verður með sjónvarpsþætti. „VEGIR LIGGJA TIL ALLRA ÁTTA“*Í Hildur með sjónvarpsþætti HILDUR Einarsdóttir, ritstjóri ræða og verður fyrsti þátturinn Lífs er nú að láta af störfum við sýndur í sjónvarpinu á laugar- blaðið eins og kunnugt er. Hún dagskvöldið. Þættirnir, sem vinnur nú að gerð sjónvarps- Hildur vinnur nú að, nefnast þátta fyrir sjónvarpið. „Vegir liggja til allra átta“. Hér er um skemmtiþætti að I LAGADEILDINNI: Þær sneru aftur til náms eftir fjarveru ÞAÐ hefur sífellt færst í vöxt að fólk snúi aftur að námi eftir fjarveru. Segja má að hugarfars- breyting hafi orðið hér á landi hvað fullorðinsfræðslu snertir með tilkomu öldungadeildarinn- ar. Fólk settist aftur á skólabekk og lét drauminn rætast — að læra meira. í lagadeild Háskóla íslands stunda nú nám, meðal fleiri, fimm konur, sem allar sneru aftur að námi eftir að hafa horfið frá því um lengri eða skemmri tíma. Þær eru Margrét R. Bjarnason, Sigriður Jóseps- dóttir, Guðný Björnsdóttir, Sól- veig Ólafsdóttir og Ragnhildur Benediktsdóttir. Tvær þeirra hófu á sínum tíma nám í öldungadeildinni, þær Sig- ríður Jósepsdóttir og Guðný Björnsdóttir. Ragnhildur Bene- diktsdóttir stundaði á sínum tíma nám í MR en hætti og fluttist út með manni sínum, sem nam lækn- isfræði. Hún hóf nám á nýjan leik í Ohio í Bandaríkjunum og þegar heim kom skellti hún sér í laga- deildina. Þær Margrét R. Bjarna- son og Sólveig Ólafsdóttir höfðu stúdentspróf, Margrét frá MR en Sólveig frá Verzlunarskóla íslands. Stund milli striða — frá vinstri, Guðrún Björnsdóttir, Sigríður Jósepsdóttir, Ragnhildur Benediktsdóttir, Margrét R. Bjarnason og Sólveig Ólafsdóttir. Ljósmynd Emilía. Hann f ær ekki að sjá dóttur sína „Nú eru hálft þriðja ár síðan ég sá dóttur mína síðast — ég hef ekki fengið leyfi til þess. Og svo virðist sem ég fái ekki að sjá hana um ófyrirsjáanlegan tíma þar sem i nóvember síðastliðnum féll dómur í Hæstarétti þar sem úrskurðað var að ég fengi ekki umgengnisrétt við barn mitt,“ sagði Hilmar Pétursson líffræð- ingur i viðtali við blaðamann Mbl. Hann hefur nú i fjögur ár staðið í baráttu fyrir því að fá að umgangast dóttur sina en beðið lægri hlut. Lögin gera nefnilega ekki ráð fyrir neins konar rétti feðra, sem eiga óskilgetin börn. Hefur þú einhvern tíma um- gengist dóttur þína? Já, hún er nú á áttunda ári og þrjú fyrstu ár ævi hennar bjó ég með móður hennar. Síðan þegar slitnaði upp úr samvistum okkar var dóttir mín hjá mér næstu sjö mánuðina. Síðan gerðist það að hún var tekin frá mér með lög- regluvaldi í Bandaríkjunum en þar bjuggum við er ég var við nám. Það var í Bandaríkjunum í desember 1975. Þar er mér sagt að brotin hafi verið á mér lög, fyrir tilstuðlan íslenskra yfirvalda. Móðirin hafði í höndum vottorð íslenskra yfirvalda um forráðarétt yfir barninu. Hún hafði haft samband við ræðismann í USA, sá hafði samband við sendiráðið í Washington. Þeir komu henni í samband við lögreglu, sem tók barnið. Það fór aldrei fyrir neina dómstóla þar úti og þar sem íslenzk lög gilda ekki þar skilst mér að lögbrotið hafi verið í því fólgið að málið fór aldrei fyrir dómstóla ytra. Barnaverndarnefnd Reykja- víkur hafði lýst yfir stuðningi við Hiimar Pétursson — hefur ekki séð dóttur sina i hálft þriðja ár. LjAsm. Mbl. Kristinn hana þegar hún fór að sækja barnið á sínum tíma. Mér hefur verið sagt af löglærðum mönnum að framkoma nefndarinnar í því máli hafi verið ámælisverð þó að skiptar skoðanir hafi verið um hvort hafi verið farið að lögum. Það var nefnilega aldrei gerð minnsta tilraun til að kanna aðstæður hjá mér, hvað þá tala við mig. Málið fór til barnaverndar- ráðs — þar sagði að ekki hefði tekist að koma á umgengnisrétti. Það var mælt gegn umgengnis- rétti fyrst um sinn, svo að móðir og barn mættu jafna sig, eins og það var kallað. Það var í febrúar ’77, en málið fór siðan til dómstóla og var þar í hálft þriðja ár að velkjast. Dómur féll síðan — mér var neitað um að umgangast barn mitt, mér er neitað að sjá barn mitt — þó að ég sé faðir þess. Spurningin sem lögð var fyrir dóminn í raun var einföld — hef ég rétt til að umfangast mitt eigið barn. Lögin segjá að ég megi ekki slíkt. En nú hefur frumvarp legið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.