Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 25

Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 25 Háðfugl- inn Vs Hitch- cock NÝJA BÍÓ: LOFTHRÆÐSLA („High Anxiety") Leikstjórn: Mel Brooks Handrit: Mel Brooks, Ron Clark, Rudy DeLuca. Barry Levinson. Hér er á ferðinni makalaus gamanmynd, sem ekki hvað síst á eftir að skemmta Hitchcock-unnendum. Þetta nýjasta verk háðfuglsins Mel Brooks, er einmitt gert til heiðurs hinum aldurhnigna meistara þrilleranna. LOFT- HRÆÐSLA er morandi af velþekktum tilvitnunum úr Hitchcock myndum, jafnvel nafnið fengið að láni HIGH ANXIETY - VERTIGO; söguhetjan tapar hótelher- bergi sínu til einhvers McGuffin, aðdáendur þessara tveggja, gjörólíku snillinga fá hér mikið fyrir snúð sinn. LOFTHRÆÐSLA er að miklu leyti ein skopstælingin á eftir annarri á þekktum atriðum úr mvndum Hitch, t.d. THE BIRDS, PSYCHO, REAR WINDOW og VERT- IGO. Reyndar læðir Brooks, á sinn makalausa hátt, fingrum sínum í atriði úr BLOWUP, Antonionis, gerir grín að hetjuímynd Cary Grants, Jimmy Stewart og þeirra félaga; að Kim Novak og Grace Kelly; að notkun hljóðs og oft afkáralegri notkun og flutningi titiilaga. Svo mætti lengi telja. Söguþráðurinn skiftir í rauninni ákaflega litlu máli og verður því ekki rakinn hér. Þess nægir að geta að hann er í anda Hitchcocks og handrit- ið er gott og lúnað. Hvað annað þegar Brooks á í hlut? Mel Brooks stendur vel fyrir sínu sem skopstæling Cary Grants og co., sama máli gegnir um Madeleine Kahn í hlutverki hinnar gam- alkunnu Hitchcock/ Holly- wood ljósku. Harvey Korman og Cloris Leachman, sem löngum hefur fengið harða útreið hjá Brooks, eru sann- kallaðir senuþjófar. Myndir Brooks eru fjarri því að vera hnökralausar, frekar en verk annarra leik- stjóra, en hann kann ótvírætt lagið á því að fá áhorfendur til að hlæja, hressilega. Eink- um og sérílagi ef þeir eru þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa einnig unun af fárán- leikanum og fjarstæðu- kenndu gamni. Þá mun hin óborganlega sena á San Fransiskó flugvelli — er Brooks og Kahn reyna að komast framhjá vörðum lag- anna með þvi að látast súper- eðlileg, (gamalkunnugt frá Hitch) — verða þeim minnis- stæð. Kvikmyndaannáll 1979 Árið 1979 var einstakt að því leyti að aldrei íyrr í sögunni hefur þvílík gróska verið í innlendri kvikmyndagerð, hún stóð i miklum blóma. Framboðið var einnig óvenju gott — í þessum fyrrihluta kvik- myndaannálsins, er ég þeg- ar búinn að tina til 10 myndir sem velflestar ættu erindi inn á listann yfir 10 bestu myndir ársins, sem birtist á næstu síðu. í gegnum árin hefur það reynst mér mun meiri höf- uðverkur að fylla þennan lista en að grisja úr úrval- inu. En víkjum að heimaslóð- um. Velflestum ætti að vera kunnugt að hvorki fleiri né færri en þrjár, langar, alís- lenskar myndir voru teknar á árinu, auk hinnar venjulegu sjónvarps- og heimilda- myndagerðar. Þetta eru ÓÐ- AL FEÐRANNA, eftir Hrafn Gunnlaugsson, LAND OG SYNIR Ágústs Guðmunds- sonar og barnamyndin VEIÐIFERÐIN, gerð eftir handriti og leikstýrð af And- rési Indriðasyni með aðstoð Gísla Gestssonar. Hér eru valinkunnir menn á ferð og full ástæða til bjartsýni. Tilburðir okkar ungu kvikmyndagerðar- manna við gerð sjónvarps- og heimildamynda að undan- förnu, benda til þess að við getum í alvöru gert okkur vonir um vandaðar, atvinnu- mannslegar myndir, sem ættu ekki að gefa kvikmynd- um nágrannaþjóðanna neitt eftir. Um þetta mun framtíðin skera úr um í næsta mánuði — á kvikmyndahátíð —, hvað varðar myndir þeirra And- résar og Ágústs, og mynd Hrafns verður að öllum líkindum frumsýnd með vor- Hvað almennar kvik- myndasýningar varða, þá byrjaði árið 1979, með ágæt- um jólamyndum frá síðasta ári, eins og HEAVEN CAN WAIT, SILENT MOVIE, og DEATH ON THE NILE. Strax í janúar voru svo frum- sýndar margar úrvalsmyndir. Þá sá dagsins ljós hin eftir- minnilega mvnd Linu Wert- mullers, SEVEN BEAUTIES, þar sem Giancarlo Gianinni sannaði að hann er einn fremstu leikara ítala um þessar mundir. DERSU UZ- ALA var einnig á tjald brugð- ið, öllum kvikmyndaunnend- um til óblandinnar ánægju, þó tæpast væri um að ræða eina af merkari myndum Kurosawa. En Síberíumaður- inn sem lék einfarann og veiðimanninn Dersu Uzala rennur seint úr minni. ALICE DOESN’T LIVE HERE ANYMORE, er einnig minnisstæð sökum kröftugs leiks aðalleikara í titilhlut- verki, hér Ellen Burstvn. THE 7% SOLUTION, hvar- vetna lofuð mynd, skaut um svipað leyti upp kollinum, en gekk of stutt og undirr. varð af henni. í janúarlok, eða febrúar- byrjun hófust svo sýningar á vinsælustu mynd sem sýnd hefur verið hérlendis, GREASE. Þar kom rétt mynd á réttum tíma, hún hafði geysileg áhrif á útlit og gjörð- ir unglinga á vissu þroska- skeiði, og disco varð orðið. Að venju var boðið upp á margar úrvalsmyndir um páska og einnig hvítasunnu, og stóðu þar myndirnar Annie Hall, eftir Woody All- en, og THREE WOMEN, e. Robert Altman, uppúr. Þess- ar myndir áttu það sameigin- legt að fjalla fyrst og fremst um kvenfólk og báðar buðu þær upp á eftirminnilegan leik framúrskarandi kven- leikara; Diane Keaton, Sissy Spaceck, Janice Rule og Shelley Duvall. Myndin DOG DAY AFT- ERNOON bauð aftur á móti upp á stórleik karlleikara, eða þeirra A1 Pacino og hins nýlátna John Cazale, að ógleymdum Charles Durning. Diskóið hélt vinsældum, og í Stjörnubíói gekk myndin THANK GOD IT’S FRIDAY, um langa hríð. í sumarbyrjun hófust sýn- ingar á óvenjufagurri mynd fyrir augað, THE DUELL- ISTS, (sem einhver ágætur, erlendur gagnrýnandi líkti við fallegan, tóman konfekt- kassa). Leikstjórinn, Ridley Scott, vann einnig það afrek á árinu að gera einhverja ægi- legustu og vinsælustu hryll- ingsmynd sem um getur, AL- IEN, (ósýnd hér, er þessar línur eru skrifaðar). TEFLT A TÆPASTA VAÐIÐ TÓNABÍÓ: ÞÁ ER ÖLLU LOKIÐ („THE END“) Leikstjóri: Burt Reynolds Handrit: Jerry Belson Hinum geýsivinsæla Burt Reynolds, er ekki fisjað sam- an, virðist gera það eitt sem honum líkar. Hér tekur hann sér fyrir hendur að leikstýra, auk þess að fara með*aðal- hlutverkið, glórulitlu og endasleppu, en oft mein- fyndnu handriti. Megingalli þess er að höfundur þess, Jerry Belson, tekur verk sitt til að byrja með einum of alvarlega, gefur sig ekki fars- anum á yald. Það gerir Reyn- olds aftur á móti, bæði sem leikari og leikstjóri. THE END fjallar í stuttu máli um lífsglaðan fasteigna- sala, (Reynolds), sem dag nokkurn er tjáð að stutt eigi eftir ólifað. Hann er skelfing hræddur við þær kvalir og þjáningar sem framtíðin hlýtur óumflýjanlega að bera honum og hyggst þó stytta sér aldur á þægilegan hátt. Þá kemur nýtt babb í bátinn, þar sem í ljós kemur að Reynolds er jafnvel enn hræddari við dauðann. Uppúr þessum ískyggilegu tilraun- um er Reynolds síðan fluttur á geðdeild, þar sem hann kynnist meðal annars geð- klofanum Dom DeLuise. Restin er farsi. í þetta skiptið hefur senni- lega vakað fyrir Reynolds, að fara í buxur Brooks eða Allens kannski öllu frekar, en hann heldur þeim ekki al- mennilega uppum sig einkum vegna fyrrgreinds klofa í söguþræðinum. Eins er karl- mennskuímynd Reynolds á móti honum að þessu sinni. En þrátt fyrir það er THE END að mörgu leyti hnyttin gaq>anmynd og mörg atriðin gráthlægileg, einkum viðtal Reynolds við hjúkrunarkon- una í upphafi myndarinnar, undir titlum og þá er Reyn- olds lofar guði sínum öllu fögru, hálfdauður, undan sól- gylltum ströndum Kaliforníu. Oft jaðrar svartagaman myndarinnar við smekkleysu, líkt og símaatriðið á gjör- gæsludeildinni, en Reynolds kemst upp með margt á kostnað síns óumdeilanlega sjarma. En fleiri myndir í þessum dúr yrðu honum tæp ast til ábata. Woody Allen og Diane Keaton sem Olivia Newton-John og John Travolta settu allt Annie Hall, í samnefndri mynd. á annan endann í myndinni GREASE. í myndinni FUGLARNIR flúöi söguhetjan í upphafi undan krákum sem beittu óspart gogginum. í mynd Brooks er aö sjálfsögöu á annan veg fariö — hér á hetjan fótum sínum fjör aö launa undan dúfum — sem drita á hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.