Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 Halldór Þorsteinsson frá Vörum — Minning Fæddur 22. febrúar 1887. Dáinn 3. janúar 1980. í dag er til moldar borinn frá Útskálakirkju einn af elstu borg- urum þessa byggðarlags, Halldór Þorsteinsson frá Vörum í Garði. Því er haldið fram, að dauði gamals manns sem lokið hefur hlutverki sínu hér á jörðinni, sé aðeins staðfesting á þeim lögmál- um sem gilda um líf og dauða. Öll verðum við að beygja okkur fyrir þeirri staðreynd. En dauðanum fylgir söknuður og eftirsjá, sér- staklega þegar um kæran vin og góðan félaga er að ræða. Halldór var sterkur tengiliður fjölskyldu sinnar. Hann var kvæntur Kristjönu Pálínu Krist- jánsdóttur, sem látin er fyrir fáum árum. Eignuðust þau þrett- án börn, tólf. lifa foreldra sína. Stór ættstofn er kominn frá þess- um heiðurshjónum. Allt fram á síðustu ár kom fjölskyldan saman í Vörum við hátíðleg tækifæri. Þá var gamli maðurinn hrókur alls fagnaðar, og var þá tekið lagið og sungið af lífi og sál. Nú þegar nýafstaðin áramót eru liðin, þá koma í huga minn allar samveru- stundirnar, þegar staðið var við orgelið í Vörum og sungið, „Nú árið er liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka“ og, „Hvað boðar nýárs blessuð sól...“ Nú eigum við öll sameiginlega bjartar minningar og sáran sökn- uð. Þegar ég kveð tengdaföður minn Halldór Þorsteinsson í hinsta sinn, er mér efst í huga sár söknuður og jafnframt þakklæti fyrir það veganesti sem hann gaf okkur öllum með breytni sinni. í trú, von og kærleika mótaði hann umhverfi sitt. Halldór var sannur maður, sá persónuleiki sem við öll myndum vilja vera. Hann vann öll sín störf af mikilli trúmennsku. Það þurfti ekki undirskrift Hall- dórs til að standa við gefin loforð. Munnlegt loforð var í huga hans sama og vottfast. Þetta brýndi hann fyrir börnum sínum og fylgdi því eftir, sama gilti fyrir barnabörnin og fjölskylduna alla. Þetta get ég borið um þar sem ég var aðeins sautján ára er ég tengdist fjölskyldu hans. Ég á Halldóri mikið að þakka. Margs er að minnast. Ég man. allar samverustundirnar í stúk- unni okkar, sönginn á kirkjuloft- inu á hverjum sjómannadegi, þeg- ar sungið var „Ég er á langferð um lífsins haf, og löngum breytingar kenni, Mér stefnu Frelsarinn góð- ur gaf, ég glaður fer eftir henni.“ Allar samverustundirnar í Karla- kórnum Víkingum, allar há- tíðarstundir fjölskyldunnar, þegar allir sameinuðust í söng og gleði. Trúmaður var Halldór. Trúin á handleiðslu Guðs var honum heil- agt mál. Allt fram á síðustu stundu sem hann mátti mæla, var honum efst í huga þakklæti til Guðs fyrir líf og heilsu, og að fá tækifæri til að fylgjst með sínum stóra afkomendahóp sem hann bar mikið traust til. Það traust var vissulega endurgoldið, því allur þessi stóri hópur virti og elskaði þennan gamla mann, og reyndi á allan hátt að gleðja hann. Allt fram á efri ár starfaði Halldór sem forystumaður í stúk- unni Framför nr. 6. Allt fram á síðasta fylgdist hann með störfum stúkunnar sinnar og gladdist með hverjum unnum áfanga. Eru hon- um nú að leiðarlokum þökkuð öll hans störf í þágu bindindismála, sem aldrei verður hægt að meta að verðleikum. Er það trú mín, að hverju því byggðarlagi sem hefur átt og mun eiga slíkan hugsjóna- mann og Halldór í Vörum var, sé vel borgið í öllu menningarlegu tilliti séð. Við hlið Halldórs stóð eiginkona hans, traust og umfram allt góð, sem með breytni sinni gaf afkom- endum sínum það veganesti sem sönn móðir ein getur gefið. Því eru minningarnar um þessi mætu hjón okkur sem eftir lifum svo kærar. Hafi þau þökk fyrir allt og allt. Ég bið þeim Guðs blessunar um alla eilífð. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð, Guð blessi þau öll. Kjartan Ásgeirsson. í dag verður til moldar borinii Halldór Þorsteinsson, útgerðar- maður, í Vörum. Með Halldóri er genginn einn af traustustu og fremstu mönnum byggðarlagsins okkar. Hann hóf ungur sjóróðra hér heima á opnum árabátum. Þegar aflabrestur varð og lengra þurfti að sækja, lét hann smíða vélbát ásamt fleirum, sem sótt var á frá Sandgerði vegna hafnleysis hér. Um tíma stundaði hann sjóróðra austur á Fjörðum að sumarlagi. Meðan Halldór stundaði róðra frá Sandgerði flutti hann allan afla heim og verkaði hér. Hann var harður sjósóknari og ágætur afla- maður. Síðar er Halldór hætti skip- stjórn, annaðist hann rekstur út- gerðar sinnar og var jafnframt um langt skeið fiskmatsmaður. Halldór var alla tíð mikill fé- lagsmálamaður. Hann átti sæti í hreppsnefnd Gerðahrepps og í skólanefnd Gerðaskóla. Þá, og ekki síst, var Halldór mikill bind- indismaður og tel ég það ómetan- legt íbúum hreppsins hve mikil störf hans voru á því sviði. Með karlakórnum Víking söng hann alla tíð. Svo sem áður kemur fram má hiklaust telja Halldór einn af héraðshöfðingjum Garðsins. Áreiðanleiki og drengskapur ein- kenndi hans samskipti við aðra. Dugnaður hans var ótakmark- aður. Hallaðist þar ekki á með Halldóri og konu hans Kristjönu Kristjánsdóttur, né þeirra börnum öllum. Störf Varafjölskyldunnar voru og eru metin mikils, m.a. var Halldór Þorsteinsson sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og undrar engan sem til þekkir. Lífsmynstur Halldórs féll vel að skoðunum Sjálfstæðisflokksins og var hann einarður fylgismaður hans alla tíð. Við hjónin söknum nú vinar í stað er við kveðjum Halldór í Vörum. Við þökkum vinskap og samverustundir og biðjum honum blessunar Guðs. Ættingjum öllum vottum við innilega samúð. Björn Finnbogason Að vaka, vinna og stríða er v. rkahringur sá. er oft um veröld víða er veittur guði frá, og sérhvcr er sá tryggur og sínu starfi dyggur. er oft að ððrum hyggur, sem aðstoð þarf að fá. (sáim. J.J.) Halldór Þorsteinsson var fædd- ur 22./2. 1887 og dáinn 3./1. 1980. Þegar leiðir skilja er ljúft og skylt að þakka góða samfylgd, og sér- staklega ánægjulegt ef maður er svo lánsamur að hitta góða og hrífandi persónuleika, sem eru hin besta fyrirmynd í öllu því sem mannlífið má prýða. Að koma ung í þennan stóra og myndarlega hóp var sérstök reynsla sem mér lærðist að meta betur og betur með aldrinum. Það var góð byrjun að vera í silfur- brúðkaupi Halldórs og Kristjönu árið 1935. Þar var hinn stóri hópur systkina Halldórs og allflestir nábúar og verðandi samferða- menn okkar hér í Garðinum. Einnig átti þessi mannfagnaður eftir að verða mér upphaf allra þeirra dásamlegu hátíðarstunda í fjölskyldunni, sem eru ógleyman- legar, og Halldór átti stærstan þátt í að gera svo ánægjulegar með hinum mikla söng af lífi og sál við orgelið í Vörum. Fyrir þetta vil ég þakka og allt hið góða sem hann og þau bæði voru fyrirmynd í, reglusemi, orð- heldni og drenglyndi í þess orðs bestu merkingu. Að síðustu þakka ég samveruna í stúkunni Framför og allt hans mikla starf fyrir stúkuna okkar, ég veit að það var honum ánægja og mikið hjartansmál að geta og gera sem mest fyrir hana. En fyrir stúkunnar hönd þakka ég innilega þann dugnað að koma á 90 ára afmæli st. Framfarar, þá sjálfur nær 92 ára, okkur fannst það mjög ánægjulegt að hafa Halldór með okkur þennan stóra dag í starfinu, hjartans þökk. Við kveðjum hér hinn sanna og góða dreng sem trúði á og túlkaði fyrir okkur kærleiksorðið sem hið besta og fegursta að lifa eftir, þökk fyrir allt. Megum við hittast á landi ljóss og friðar. í trú, von og kærleika. Steinunn Sigurðardóttir. Halldór var fæddur að Melbæ í Leiru þann 22. febrúar 1887. Faðir hans var Þorsteinn Gíslason, sem var fjórði ættliður í beinan karl- legg frá Snorra Björnssyni presti að Húsafelli. Móðir hans var Kristín Þorláksdóttir, ættuð úr Kjósarsýslu. Þau fluttust að Meiðastöðum í Garði og eyddi Halldór þar ungl- ingsárunum. Þann 10. nóvember 1910 gekk hann að eiga Kristjönu Pálínu Kristjánsdóttur frá Hellukoti á Vatnsleysuströnd, en hún átti þá heima í ívarshúsum í Garði. Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson og Vilborg Halldórsdótt- ir. Þau bjuggu fyrsta veturinn í Kothúsum hjá Þorvaldi og Guð- rúnu. Vorið eftir hófu þau búskap að Vörum í Garði, sem þau síðar keyptu. Bjuggu þau þar síðan allan sinn búskap. Halldór og Kristjana eignuðust þrettán börn. Komust þau öll upp nema eitt, Helga, sem dó stuttu eftir fæðingu. Fyrsta barnið, Þorsteinn Krist- inn, fæddist 22. febrúar 1912. Síðan komu börnin Vilhjálmur Kristján, Gísli Jóhann, Halldóra, Steinunn, Guðrún, Elísabet Vil- borg, Þorvaldur, Kristín, Marta Guðrún, Helga, Þorsteinn Nikulás og Karitas Hallbera. Afkomendur Halldórs og Krist- jönu, sem nú eru á lífi, munu hafa náð tölunni 107. Vissulega hefur þeim hjónum fylgt mikil barna- gæfa. Halldór og Kristjana áttu myndarlegt heimili alla tíð. Hall- dór stundaði sjómennsku í fjölda ára og hvíldi þungi heimilishalds- ins því á konu hans. Hún stóðst þá raun með mestu prýði. Síðustu tólf Móöir okkar t JOHANNA INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR Reynimel 68, lést 11. janúar. Björn Ásgeirsson, Jón Snorri Ásgeirsson, Sigurður Ásgeirsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐMUNDA GUDNADÓTTIR, fró Skólholti í Grindavík, lézt í Landspítalanum 11. janúar. Börn og tengdabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, SIGURÐAR KR. ÞORVALDSSONAR vélstjóra, Heiðarbraut 5, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum viö færa Oddfellowreglunum á Akranesi. Svava Símonardóttir, Þórir Sigurösson, Tómas Sigurösson, Andri Sigurösson, Viktor Sigurösson, Sigrföur Siguröardóttir, Sigrún Siguröardóttir, Bryndís Siguröardóttir, og barnabörn. Ingibjörg Þóroddsdóttir, Kristjana Ragnarsdóttir, Sesselja Magnúsdóttir, Anna Björnsdóttir, Ágúst Símonarson, Hinrik Hallgrfmsson, Tómas Friöjónsson t Útför mannsins míns, fööur og tengdaföður, GUDJÓNS GUDMUNDSSONAR fró Saurhóli, Furugerói 1, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 14. janúar kl. 10.30. Sigríöur Halldórsdóttir, Anna Margrét Guöjónsdóttir, Elínborg Guöjónsdóttir, Jón Ólafsson, Guömundur Guójónsson, Selma Guömundsdóttir, Anna Guöjónsdóttir, Guölaugur L. Guömundsson, Halldór Guöjónsson, Oddný Aöalsteinsdóttir. árin hélt Halldóra, dóttir þeirra, heimili fyrir þau. Henni ber mikil þökk fyrir að hafa gert gömlu hjónunum kleift að vera á sínu eigin heimili síðustu ár þeirra. Fórnfýsi Halldóru mætti vera öðrum gott fordæmi. Kristjana lézt 1. ágúst 1975. Halldór lifði konu sína og var á 93. aldursári þegar hann lézt 3. jan- úar síðastliðinn. í maí 1979 fékk hann áfall, sem olli því að hann var lagður inn á Borgarspítalann í Reykjavík. Síðar var hann fluttur á spítalann í Keflavík. Honum var ofarlega í huga að geta þakkað fyrir sig. Ég vil því koma á framfæri kæru þakklæti til starfs- fólks þessara spítala, en það reyndist honum í alla staði vel. Hann var mikill trúmaður og taldi barnatrúna hafa enzt sér vel. Hann var frjálslyndur í trú sinni og trúði sterkt á annað líf. Halldór hafði mikið yndi af söng. Hann tók virkan þátt í starfi karlakórs og kirkjukórs í Garðin- um. Börnin erfðu þetta og má finna gott söngfólk og músikelskt innan hópsins. Minnisstæð verða okkur jólin þegar komið var sam- an í Vörum og sungnir jólasöngv- arnir. Það var gert í mörg ár. Halldór hafði einnig mikinn áhuga á stúkustarfi. Hann var umboðsmaður stúkunnar Fram- farar númer sex og tók þátt í starfi hennar um langa hríð. Einnig var Halldór mikill dýra- vinur. Húsdýr voru alltaf einhver á heimilinu, honum og öðrum til ánægju. Árið 1904 gerðist Halldór for- maður á áttæringi föður síns. Fóru síðan í hönd mörg ár, sem hann var formaður á opnum skipum. Þegar Halldór leit yfir farinn veg, taldi hann það ævi- skeið hafa verið sitt ánægju- legasta. Hann var með farsælustu formönnum og hafði mikla ánægju af að sigla. Um eins árs skeið var Halldór formaður á varðbátnum Ágúst, einum fyrstu varðbáta í Faxaflóa. Árið 1916 lét hann byggja fyrsta vélskipið ásamt Þorsteini föður sínum, Jóhannesi Jónssyni á Gauksstöðum og Halldóri Daní- elssyni lækni. Það var byggt í Reykjavík og hlaut nafnið Gunnar Hámundarson. Fyrsta opna skipið sem Halldór eignaðist hafði einnig borið það nafn. Skip þau sem eftir komu báru einnig sama nafn, en því hefur fylgt gæfa alla tíð. Næsta skip var byggt 1942 á Akranesi. Halldór átti það skip með tveim sonum sínum, Gísla og Þorvaldi. Það skip var siglt niður af enskum togara á Faxaflóa árið 1950. Mannbjörg varð, þótt hurð skylli nærri hælum. Margir skip- verjar voru úr fjölskyldunni og má nærri geta um kvíðann sem setti að við fyrstu fregnir um slysið. Þriðja vélskipið var byggt í Ytri-Njarðvíkum árið 1954. Hall- dór átti það skip á móti tveim sonum sínum, Þorvaldi og Þor- steini. Þetta skip er gert út enn. Ekki verður annað sagt en að Halldóri hafi farnast vel sitt ævistarf, sinni fjölskyldu og þjóð til heilla. Halldór hélt allgóðri heilsu fram á síðastliðið vor. Allt fram að þeim tóma tók hann þátt í útgerðinni. Hann fylgdist alltaf vel með aflafréttum og var með allan hugann við gang útgerðar- innar. Sú þátttaka hefur eflaust létt honum síðustu árin. Ég átti þess kost að eyða æskuárunum í næsta nágrenni við Varir. Því leita margar minningar á hugann, sem tengdar eru afa mínum og ömmu, þegar þessar línur eru skrifaðar. Ég vil þakka þeim báðum fyrir gott veganesti sem ég hlaut frá þeim og þá miklu hlýju, sem þau áttu allaf í minn garð. Að endingu bið ég góðan Guð að blessa afa minn og taka vel á móti honum. Hann vsi honum veginn eins vel á næsta tilverustigi, eins og Hann hefur gert á því sem nú er nýlokið. Vissulega er líf að loknu þessu. ILÞ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.