Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 32

Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 32
PIERPOAT QUARTZ — úr Þessi heimsþekktu úr fást hjá flestum úr- smiðum. jor0u<uMíiMfo Síminn á afgreiðslunni er SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980 Lézt eftir umferðarslys í Siglufirði UNGUR drenKur. Freyr ómars- son. lézt í Borgarspítalanum í fyrrakvöld vegna meiðsla er hann hlaut er hann varð fyrir bifreið utan til í Siglufirði föstu- daginn 11. apríl sl. Freyr, sem var sex ára gar var fluttur með sjúkraflugvé. Reyjavíkur strax eftir slysið t lagður inn á gjörgæzludeild Borg arspítalans. Viðurkenndu að eiga smyglið YFIRHEYRSLUM yfir skipverj- unum fimm á Mánafossi lauk í fyrrinótt. Viðurkenndu þeir að eiga smyglvarninginn, sem fannst í skipinu daginn áður. Skipið lét úr höfn klukkan þrjú í fyrrinótt. Tveimur mönnum bjargað úr höfninni Björgunaraðgerðir á hafnarbakkanum í fyrrinótt Ljósm. Júlíus. TVEIR menn féllu í Reykja- víkurhöfn með hálftíma millibili i fyrrinótt. Lögreglan bjargaði þeim í land og var annar mann- anna meðvitundarlaus eftir dvöl- ina í ísköldum sjónum og mútti ekki tæpara standa. Báðir voru mennirnir á batavegi í gærmorg- un. Báðir mennirnir féllu í sjóinn á svipuðum slóðum, af miðbakkan- um nálægt Tollstöðinni. Sá fyrri, 23 ára gamall maður, féll í sjóinn um þrjúleytið. Lögreglubíll átti leið þar um á sama tíma. Höfðu lögreglumennirnir skjót handtök, hentu út bjarghring og drógu manninn upp á bryggjuna. Hálftíma síðar sá vaktmaður um borð í skipi er maður féll í sjóinn milli skips og brygju. Gerði hann lögreglunni á Miðborgarstöð þegar aðvart. Þrír lögreglumenn, Bene- dikt Lund, Guðmundur Baldursson og Hörður Harðarson stukku út í sjóinn manninum til bjargar. Tókst þeim að binda björgunar- belti utan um manninn, sem orð- inn var meðvitundarlaus, og var hann hífður upp. Aðstæður voru allar hinar erfiðustu því mjög lágsjávað var og þurfti að hífa manninn fimm metra upp. Hann var fluttur í skyndi á slysadeild Borgarspítalans. Hann er 25 ára. „MEININGIN er að láta klukk- una fjármagna verkefni, sem við höfum tekið að okkur um að bæta aðstöðu fatlaðra á útivistarsvæð- um í Reykjavík og nágrenni,“ sagði bröstur Jónsson formaður Kiwanisklúbbsins Kötlu í samtali við Mbl. i gær, en á fundi borgarráðs 11. apríl si. var sam- þykkt að fjármáladeild borgar- innar taki upp samninga við Kötlu um rekstur klukkunnar á Lækjartorgi. Sjómannasamningar fyrir vestan: Samningar undirritaðir á Flateyri og Suðureyri Náðu hagstæðari kjörum fyrir sjómenn á línubátum SAMKOMULAG tókst í fyrrinótt milli Verkalýðsfélagsins Súg- anda á Suðureyri og Útvegs- mannafélags Vestfjarða, en í gær höfðu félögin þó ekki samþykkt samkomulagið, sem undirritað var með fyrirvara. bá var í gær boðaður samningafundur klukk- an 16 milli Verkaiýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri og útvegs- manna og átti þar að ganga frá samningum á grundvelli Suður- eyrar-samkomulagsins. Samkomulagið hefur í för með sér nokkuð betri kjör fyrir línu- bátasjómenn, en Bolungaravíkur- samkomulagið. sem gert var um siðustu helgi. Samkomulagið er um breyt- ingar í 11 liðum á samkomulagi milli Alþýðusambands Vestfjarða og Utvegsmannafélags Vestfjarða og gildir það til áramóta eins og Bolungarvíkur-samkomulagið. Aðilar urðu ásáttir um að senda aflatryggingarsjóði erindi um hækkun á fæðispeningum á svip- aðan hátt og samþykkt var í Bolungarvík, að vinna skipverja á frívöktum á skuttogurum skuli greidd af óskiptum afla, 50 krónur á unna klukkustund og skal sú upphæð öll renna til björgunar- sveitar Slysavarnarfélagsins á Suðureyri. Þá var samþykkt, að á Slæmt ástand hjá byggingafyrirtækjum í Reykjavík: Nánast engum fjölbýlishúsa lóðum úthlutað sl. tvö ár ÁRMANN ÖRN Ármannsson, framkvæmdastjóri bygginga- og verktakafyrirtækisins Ármannsfells, sagði í samtali við MorgunblaA ið í gærdag, að allt frá því að núverandi borgarstjórnarmeirihluti tók við völdum í Reykjavík fyrir tæpum tveimur árum, hefði aðeins einu sinni verið úthlutað lóðum undir fjölhýlishús til byggingafyrirtækja, sú úthlutun var í Syðri-Mjóumýri fyrir rúmu ári. Sú úthlutun var til Bygginga- samvinnufélagsins Vinnunnar, Byggingasamvinnufélags starfs- manra Sambandsins og Einham- ars og að sögn Ármanns er ekkert útlit fyrir að neinar úthlutanir fari fram á næstunni, ekki hefði verið séð fyrir lóðum með nægi- legri fyrirhyggju. „Útlitið er því mjög slæmt fyrir þau liðlega 20 byggingafyrirtæki sem staðið hafa í þessum bygging- um undanfarin ár og áratugi, sérstaklega þegar það er haft í huga að engar fjölbýlishúsalóðir eru til,“ sagði Ármann Örn. Ármann Örn sagði að fyrirtæk- in hefðu lítillega leitað til ná- grannasveitarfélaganna, en það dygði skammt, því ástandið væri litlu skárra þar. „Þetta ástand er mjög slæmt sé það haft íhuga að gífurleg eftir- spurn er eftir fjölbýlishúsnæði, sem engan veginn er hægt að mæta með öðrum ráðum. Hlutirn- ir eru alltaf settir í nefnd hjá borginnni. T.d. höfum við á undan- förnum tólf mánuðum sótt um á einum sex stöðum í borginni, þar af látið teikna á tveimur og skipuleggja, en það hefur dagað uppi í nefndum," sagði Ármann Örn. Hann benti á að ástandið væri þó ekki alls staðar svona slæmt og t.d. á Akureyri hefðu bæjaryfir- völd staðið sig með prýði og eftirspurn og framboð alveg hald- ist í hendur. tímabilinu 1. maí til 1. október skuli landróðrarbátar eigi róa á laugardögum og að ekki verði farið á sjó á laugardögum eftir klukkan niu. Þá er í samkomulaginu ákvæði um að hlífðarfatapeningar verði greiddir 2. vélstjóra eftir sömu reglum og hásetum, að kauptrygg- ing 1. vélstjóra hækki til samræm- is við kauptryggingu 1. stýri- manns, enda vinni 1. vélstjóri á línubátum á þilfari við drátt á 10 böllum. Þá hækkar beiting í ákvæðisvinnu um 5%, á útilegu- bátum, sem veiða með línu, skulu skipverjar hafa 48 stunda frí minnst að lokinni hverri veiðiferð, enda taki hún eigi skemmri tima en 5 sólarhringa. Þá skal eitt frí í mánuði falla á helgi. Þá er það nú skilyrði að skipstjóra beri fyrir- fram að tilkynna áhöfn um töku hafnarfría. Þá segir einnig að eitt helgarfrí í júnímánuði skuli tekið á sjómannadaginn, að öðru leyti skuli þau vera eitt í mánuði á tímabilinu frá 1. maí til 30. september. Tveggja sólarhringa frí sé um páska og að gert skuli upp á útilegubátum að hverri veiðiferð lokinni innan 9 daga frá löndunardegi. Undanþegnir þessu síðasta ákvæði eru netabátar, sem landa annan hvern dag. Samningurinn gildir frá 1. apríl 1980 til 31. desember 1980 og er uppsegjanlegur með 2ja mánaða fyrirvara. Þá eru fylgiskjöl með samningnum að aðilar vinni sam- an að því við stjórn aflatrygg- ingasjóðs að fæðispeningar hækki og yfirlýsing um að breyta fyrir- komulagi á línubeitingu í haust, þó svo að það hafi ekki íþyngjandi áhrif fyrir útgerðina. I dag, sunnudag, verða fundir í verkalýðsfélögunum, þar sem samkomulagið verður borið undir atkvæði, bæði á Suðureyri og Flateyri. Jarðstöðin: Ákvörðun tek- in á morgun ÁKVÖRÐUN verður tekin um það á morgun hvort ráðist verður í það verk að skipta um hitamott- ur í skermi nýju jarðstöðvarinn- ar Skyggnis við Úlfarsfell, en sem kunnugt er reyndist einangr- un þeirra ekki nægilega góð. Ef ákveðið verður að skipta um motturnar mun það valda nokk- urra mánaða töf á því að stöðin komist í gagnið. Samkvæmt samn- ingi átti verktakinn að skila stöð- inni í lok þessa mánaðar en nú liggur fyrir að svo getur ekki orðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.