Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 1
Sunnudagur
20. apríl 1980
Bls. 33-64
Sigurður Magnússon í Stykkishólmi 100 ára:
Ingibjörg Daðadóttir og Sigurður Magnússon. Á bak viö þau má sjá heiöursskjalið, en Sigurður var geröur að heíöursborgara í Stykkishólmi er hann varö nírssður.
„Er vel giftur og hefur
konan alltaf bætt mig upp“
Hann er 100 ára, hún er orðin 97
ára og móöir hennar náöi 106 ára
aldri. Er nokkur furöa þótt spurt sé
hver sé eiginlega leyndardómurinn
viö þennan háa aldur? Hjónin eru
enn vel ern, hún prjónar og er iétt á
fæti þegar hún vindur sér milli
herbergjanna, en hann hefur oröiö
aö halda sig æ meira viö rúmiö. Fer
þó alltaf á fætur, en getur helzt ekki
gengiö óstuddur nema þá viö staf.
Sigurður Magnússon heldur
upp á sitt 100 ára afmæli í dag
og konan hans 97 ára heitir
Ingibjörg Daðadóttir en þau
búa við Laufásveg í Stykkis-
hólmi ásamt dóttur sinni, Aðal-
heiði, sem heldur fyrir þau
heimili. Sigurður sagði þó að
eitthvað væri á reiki með hans
rétta fæðingardag.
— Fæðingardagur minn er
ýmist talinn 3. eða 4. apríl árið
1880, en þegar ég var fermdur
kom fram á fæöingarvottoröi
að ég væri fæddur 20. apríl og
ég hefi haldið mig við þá
dagsetningu síðan og miðað
aldur minn við hana.
Sigurður er beöinn að rifja
fyrst upp nokkur atriöi úr æsku
sinni:
— Ég er fæddur á ísafirði og
dvaldist þar fyrstu árin, en fór
þaöan ungur. Þegar ég var
orðinn fjögurra ára hafði ég
misst báöa foreldrana og var
ég fyrst tekinn í fóstur á ísafirði
af Vedholm veitingamanni þar.
Fóstra mín kenndi mér að lesa,
en ég hef ekki setið á neinum
skólabekk um ævina.
Ég man vel eftir því þegar
móðir mín dó. Kona, sem
vitjaði hennar oft kom einn
morguninn til mín þegar ég
vaknaði og bað mig að hafa
ekki hátt. Eg sá að breitt hafði
verið hvítt klæði yfir andlit
hennar og hugsaði ekki meira
út í það, en var sendur yfir til
Vedholms og var þar fram eftir
deginum. Síðar, þegar mig fór
að lengja eftir mömmu minni,
var mér sagt hvers kyns var og
þá sprakk ég alveg. Fékk ég
miklar blóðnasir og reyndist
erfitt að stööva, en ég jafnaði
mig síðar og um kvöldið sofn-
aði ég í blóði drifnum fötunum.
Ég man einnig eftir því við
kistulagninguna og jarðarför-
ina að mér var sagt að ég
mætti ekki gráta og reyndi því
að harka af mér,- Var það
sérstaklega erfitt við jarðarför-
ina, en lagaðist þegar farið var
að syngja og lærði ég þar sálm
sem ég hefi alltaf kunnað
síöan.
Sigurður hefur stundað ýmis
störf um ævina, verið til sjós,
stundað bústörf, hreppstjóri í
mörg ár, trésmíðar o.fl. Eftir að
hann fluttist frá ísafiröi fór
hann að Ytra-Leiti á Skógar-
strönd þar sem hann var tekinn
í fóstur. Var hann eiginlega
boöinn upp af sveitinni.
Já, eða öllu heldur boðinn
niður, því sveitin ákvað að
SJÁ NÆSTU SÍÐU