Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980 greiöa meö mér þeim sem vildi taka mig aö sér fyrir minnst verö. Ekki man ég hvar byrjað var aö bjóöa, en minnir aö talan hafi endað einhvers staö- ar við 70 eöa 80 krónur á ári, en þaö var sú upphæð sem greiða átti meö mér. Þessar greiöslur féllu annars fljótt niður, en næstu 20 árin bjó ég þarna hjá Magnúsi Márussyni og Jófríöi Hallsdóttur. — Ég man líka enn hvaö fólkiö var aö gera þegar ég kom á bæinn. Þetta var í upphafi sumars og var veriö aö raka í hrúgur af túninu. Sigurður man líka ýmislegt fleira, hvort sem það geröist fyrir nokkrum áratugum eöa aöeins stundu. Hann mundi t.d. nöfn komumanna þegar Morgunblaðsmenn heimsóttu hann eina dagstund og viröist hann því ekki farinn aö tapa minninu. Leiöir þeirra Ingibjargar og hans lágu saman er hann var á þrítugsaldrinum. Aldrei rifist — Viö sátum í festum í 3 ár og áttum reyndar ekkert til þegar viö bundumst. Fór Ingi- björg þá til Reykjavíkur og vistaöi sig hjá Sigurði Thor- oddsen verkfræðingi, en ég fór vestur á firöi og var hjá Jónasi Jónassyni snikkara, segir Sig- urður. Þau settu upp bú og stundaöi hann jafnframt sjóinn lengi vel.Gifting þeirra fór fram í desember 1907 og hafa þau því verið gift í meira en 72 ár. Og aldrei rifist? — Nei, viö höfum aldrei rifist og ég er viss um aö mín tilvera byggist á því hvaö ég er vel giftur, hún hefur alltaf bætt mig upp, segir Sigurður. . . . Allt má nú segja ókunn- ugum, skýtur Ingibjörg inní... — Já, hún hefur gert mig aö betri manni og ég hef ætíö reynt aö haga svo til aö hún hafi ekki þurft aö hljóta kinn- roöa mín vegna. En aldurinn, ég þakka bara Guöi almáttug- um hversu langt ég hefi náö og það má segja aö þaö sé eins og einhver forsjón hafi alla tíö fylgt mér. Sérstaklega í sam- bandi viö töluna 7 hefi ég tekið eftir þessu. Oft í lífshættu — Þegar ég var smábarn heima skildi móöir mín mig eftir heima á loftinu um stund meöan hún skrapp út. Eitthvaö fór ég aö leita hennar og þegar ég kom aö dyrunum gat ég ýtt þeim og þær stóöu opnar. Ég skreiö áfram og fram á skörina Hjónabandið komið á 73. ár Stundum er sagt aö menn sem taka (nefið missi síöur háriö á efri árum og víst hefur Siguröur haldið sínu- Ljósmyndir Ragnar Axelsson. og stingst síðan á höfuðiö beint niður á gólf og steinrot- ast. Þar var komiö aö mér og sagöi læknir sem kallað var á að viö þessu væri ekkert aö gera, ég væri í roti. Leiö síöan fram á 7. daginn aö þá vaknaði ég til lífsins en ennþá má finna dæld í höfuðkúpunni eftir bylt- una, hún hefur veriö svo lin þá aö hún dældaðist aðeins en brotnaöi ekki. — Annað sinn var ég til sjós, á öðrum túr mínum meö togara sem Keflavík hét og Duus-verzlun átti. í 'þá daga komst enginn á togara nema gegnum kunningsskap viö skipstjórann eöa útgeröina og var ég búinn aö reyna í mörg ár aö komast á togara. En viö vorum þarna í öörum túrnum og komnir suðurá banka þegar skall á sunnan ruddi meö hríö og var ekki viðlit aö hefja veiöar strax. Því var lagst undan og vorum við í drift á þriöja sólarhring þegar viö loks gátum fariö aö krusa á miöin. Þangaö vorum við svo komnir eftir eins og hálfs sólarhrings siglingu og vorum viö fjórir sendir fram á til aö taka fremsta segliö. Skipstjóri kallar þá og segist ætla aö hálsa riðiö, þ.e. aö snúa uþþ í brotsjó og við gripum því í næsta hald um leiö og brotið reið yfir og færöi framendann alveg í kaf. Ég missti af haldinu og fór út og vissi ekki af mér strax en þegar mér skaut upp var ég nokkra metra frá skipinu sem ég sá þá aö hálfu í kafi. Ég reyndi aö klóra mig að skipinu og þegar félagarnir sjá mig er ég kominn inn á dekkið og þá var kallað til okkar aö rifa stórsegliö. Þetta var auðvitað fullkominn lífsháski og hefi ég þá trú að þarna hafi fylgt mér einhver æöri máttur eins og ég hefi oft orðið var síöan. — Einu sinni veiktist ég hastarlega þegar ég var á sama togara og fékk lungna- bólgu. Fékk ég háan hita og svaraöi engu af viti þegar á mig var yrt. Þannig lá ég í sex daga og á þeim 7. var hitinn oröinn minni og ég gat farið á ról. Ekki vildi þó skipstjórinn aö ég færi aö standa mína vakt, en fékk aö renna og hann hjálpaði mér síðan við aö draga. Ekki þurfti ég heldur aö sinna aðgerð, en þaö kom á daginn eftir túrinn aö minn hlutur var sízt minni en hinna þrátt fyrir aö ég væri ekki í aögerðinni, því alltaf kom fiskur á færiö strax og þaö kom í sjóinn. En þegar í land kom sagöi læknir mér aö ég hefði ekki veriö búinn aö ná upp öllum sjónum eftir feröina á undan. Þessi atriði sýna þaö aö yfir mér hefur veriö haldiö verndarhendi og segja má líka að talan 7 hafi komið merki- lega við sögu í þessu sam- bandi. Sigurður fluttist til Stykkis- hólms og fékkst þar framan af viö ýmis störf, m.a. trésmíöar og sitthvað fleira sem til féll. Eftir nokkurra ára búsetu þar var hann beöinn aö taka viö starfi hreppstjóra þar. Hreppstjóri fram yfir nírætt — Ég var nú orðinn 68 ára þegar þetta var, áriö 1948 og bar því viö aö aldurinn væri oröinn of hár fyrir slíkt trúnaö- arstarf. Ég haföi líka heyrt þaö aö prestar og aðrir slíkir emb- ættismenn hættu störfum um sjötugt og var ekki langt í þaö hjá mér. Þaö var samt ekki hlustað á þessi rök mín og ég beöinn að taka aö mér starfið. Ekki haföi ég heldur menntun, eins og áöur er getið, en þetta varö sem sagt ofan á og gegndi ég starfinu fram yfir nírætt. Siguröur var á níræðisaf- mæli sínu heiöraöur af hreppn- um og geröur heiöursborgari Stykkishólms, en af starfi hreppstjóra lét hann ekki fyrr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.