Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980
35
Klukkuna góðu, sem slær enn é hálftima freati, fengu þau í brúöargjöf.
en hann var kominn ári fram
yfir nírætt. Hann fylgist meö
daglegum fréttum í útvarpi, en
sjón hans hefur daprast nokk-
uð og getur hann því ekki lesið.
— Utvarpið er ágætt nema
hvað mér finnst sumar sögurn-
ar sem valdar eru til flutnings
ekki merkilegar. Ben Húr var
góð saga og vel flutt, en mér
hefur líka fundist skorta á að
menn vandi sig við upplestur.
Jafnvel leikararnir eru ekki
betri en hver annar oft, því þeir
flýta sér alltaf svo mikiö.
Alltaf fylgt íhaldinu
En ertu á ferli úti við?
— Það er nú lítiö nú oröiö,
nema ég get farið milli húsa í
bíl og hef t.d. tekiö þátt í
kosningum, kaus í síöustu
þingkosningum og kaus prest-
inn þegar þaö var hérna um
árið og hef líka reynt aö vera
með á kosningafundum. Fyrst
neytti ég kosningaréttarins
þegar ég var 26 ára og hef alla
tíð fylgt íhaldinu aö málum og
ekki kært mig um að fara
annað jafnvel þótt Tryggvi
fyndi upp slagorðiö aö allt væri
betra en íhaldið. En fyrir fáum
vikum varö ég fyrir því óhappi
að detta hér innanhúss og
bráka rif og því á ég erfitt meö
gang um þessar mundir, en
annars sit ég oft úti á bekk
þegar gott er veður.
Hefurðu feröast mikið um
landið?
— Ekki er það nú mikiö
kannski, en ég fór oft suður og
víðar þegar ég stundaði sjóinn
og hef einnig dvalist austur í
sveitum og heimsótt dótturina
sem býr á Akureyri.
En til útlanda?
— Nei, því miður hefur þaö
ekki oröiö, en munaði ekki
miklu einu sinni þegar viö
vorum tveir strákar aö vinna
með fiskimönnum frá Esbjerg
sem voru við Vestfirði eitt
sumar. Þegar karlinn var á
förum um haustiö bauö hann
okkur tveimur aö koma með
sér til Esbjerg, en ég fékk ekki
fararleyfi þegar til kom.
En hefurðu feröast á milli í
flugvél?
— Já, ég hef farið hér á milli
Reykjavíkur og Stykkishólms í
flugvél og kann ekki illa við
það.
Viltu kannski skreppa með
okkur suður á eftir?
— Já, því ekki það. Jæja,
nei annars, þaö er von á
gestum á sunnudag og líklega
bezt að vera heima við, sagði
Siguröur aö lokum og sendum
viö honum afmæliskveðjur um
leið og spjallinu er látiö lokið.
Austurrfki
Vinarborg
3ja vikna
í t
rmm..
ferð til
Vínarborgar
Brottför
10. maí.
Ferðatilhögun:
Flogiö aö morgni 10. maí beint til
Vínarborgar. Gisting á góðu hót-
eli í Vín allan tímann. Skipulagð-
ar skoöunarferðir um Vín og
nágrenni. Heim verður haldið
síðdegis þann 31. maí og flogiö
beint til Keflavíkur.
Þetta er ferð fyrir þá sem kunna
að meta Austurríki.
Ferðaskrifstofan
dTKXVtMC
Iðnaðarmannahúsinu v/Hallveigarstíg
Símar 28388 — 28580
Austurríki
— ítalfa
Vín — Rimini-Riccione
3 vikur — Brottför 10. maí
Feröatilhögun:
Flogiö að morgni 10. maí beint dagflug til Vinarborgar, þar sem gist veröur. Daginn eftir
verður svo ekiö til Wörthersee við Klagenfurt, þar sem gist verður. Á þriöja degi er ekiö til
Riccione, sem er sumardvalarstaöur á Riministröndinni. Þar veröur svo haldiö kyrru fyrir í 10
daga. Gefinn verður kostur á dagsferöum og tveggja daga ferö til Rómar, fyrir þá sem þess
óska.
23. maí verður svo ekið til Feneyja og dvaliö þar í einn dag. Síðan verður ekiö til Graz og
hafður þar næturstaður. Daginn eftir, þann 25. maí, veröur svo komiö aftur til Vínarborgar og
dvaliö þar í 6 daga. I Vín veröa skipulagöar skoöunarferðir. Heim veröur svo haldiö síödegis
þann 31. maí með beinu flugi til Keflavíkur.
Þetta er einetök ferð og er
framboð á sætum takmarkað.
Ferðaskrifstofan
dTCfxvm
Iðnaðarmannahúsinu v/Hallveigarstíg
Símar 28388 — 28580