Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 19
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980
AUGLYSING
Halldór Laxness:
Hann erof mikill höfð-
ingi til að berast á
Snemma í aðdraganda forset-
akjörs sem nú fer í hönd sagðist
ég mundu leggja lóð mitt, þó létt
sé, í vogarskál fyrir Pétur
Thorsteinsson. Hvers -vegna?
Persónuleg viðkynni okkar hóf-
ust þegar ég var sem mest á
faraldsfæti erlendis, en hann
farinn að starfa í utanríkisþjón-
ustunni. Viö höfum reyndar orð-
iö vinarfólk allar götur frá þeim
degi að við Auður vorum einu
gestirnir í brúðkaupsveislunni
sem frændi Péturs, Skúli Thoro-
ddsen og Drífa Viðar, héldu
þeim Oddnýu á Strand Hóteli í
Stokkhólmi. Pétur var úngur
settur til að halda á málum
íslands á stöðum, fjarri ættjörð-
inni, í fyrstu sem staðgeingill
sendiherra; en fljótlega báru
hæfileikar hann áfram til hærri
ábyrgðar, þar sem fylgja sjálf-
stæðar ákvarðanir, og áðuren
lángt um leið var hann orðinn
fullgildur sendiráðherra íslands
og fór með það umboð hjá
ýmsum helstu þjóðhöfðíngjum
heimsins.
Störf hans í þágu utanríkis-
þjónustunnar þekki ég reyndar
aðeins úr þeirri fjarlægð sem
liggur milli venjulegs feröa-
manns og þessarar háttvirtu
þjónustu. En mér er minnisstætt
þegar ég var í Moskvu 1953, að
hjálpa til viö æfíngar á leikriti, og
var til húsa á sama hóteli og
Pétur og Oddný, hve ríka
áherslu hjónin bæði lögðu á það,
og hún ekki síður en hann, að
temja sér sem fullkomnasta
frammistöðu í embætti sínu, t.d.
læröi Oddný rússnesku líka.
Tímann sem Pétur hafði dvalist
sem fulltrúi íslands án sérstakra
mannviröínga í Rússlandi í
stríöinu hafði hann notað til að
læra rússnesku og hann lét ekki
við sitja aö tala og skrifa máliö
fullkomlega, heldur snaraði hann
í hjáverkum sínum, að því er
virtist áreynslulaust, á kórrétta
íslensku, Mávinum eftir Tsjekov.
Svona verk vinnur aðeins maður
sem hefur meiren almenna til-
finníngu gagnvart embætti með
stórum vanda sem honum hefur
verið trúað fyrir. Þarlendir menn
sem höfðu kynst við hann, virtu
hann sérstaklega fyrir þetta bók-
mentalega átak, enda þótti
íslendíngum einsýnt að gera
hann að sendiráðherra í þessu
mikla heimsveldi skömmu síðar.
Valdi á óskyldu túngumáli ná
menn aðeins með straungu
sjálfsnámi og samviskusamri
skoðun smáatriða. Grúsk af
þessu tagi er sérstakt persónu-
legt framlag í starfi einsog því
sem Pétur hafði tekist á hendur,
og spáði vel fyrir velfarnaði hans
í þeim verkahríng sem hann
hafði valið sér. Enda var þess
ekki lángt aö bíða að Pétur yrði
tilkvaddur að gerast sendiráð-
herra íslands í hverju heims-
ríkinu á fætur öðru: Bonn, Wash-
ington, París og mörgum fleir-
um. Nú er hann enn fulltrúi
okkar í Austurlöndum, tam Kína,
Japan, Indlandi og íran, og vitjar
þessara landa í tvær reisur á ári.
Þessi maöur er ekki aðeins
kempa að vallarsýn og mikill
yfirlitum, heldur kom á úngum
aldri og einlægt síðan fram af
fullkominni hæversku og látleysi,
sannvirðulegur fulltrúi smáþjóð-
ar sem á stórt mál að verja í
heiminum.
Pétur Thorsteinsson er maður
sem ævinlega hefur unnið fullan
vinnudag og oft meira; en of
mikill höföíngi í eðli sínu til aö
berast á. Hann er á aungvum
vettvángi líklegur til að láta sig
útí ónýtt gambur, hvort heldur
embætti hans verða hærri eða
lægri. Virðulegri mann fáum við
ekki að Bessastöðum. En fyndni
á hann til sem hittir í mark; og
ekki þarf aö óttast að honum
vefjist túnga um tönn í ávarpi við
menn sem mæla á fjarskyldum
túngum.
Forsetakjör er þlessunarlega
hafið yfir skemtanir handa strák-
um, en svo er ekki alténd um
þíngmálafundi. Samt erum við
ekki komnir eins lángt og þeir í
Sviss, þar sem oft man einginn
hvað forsetinn heitir, því síður að
menn hafi séö hann á mynd; en
því landi er svo vel stjórnaö að
helst einginn verður var við
stjórnina, og þar er skift um
forseta meö sjálfvirkum hætti á
ári hverju. Þó dylst ekki, jafnvel í
svo meinlausum kosníngum sem
forsetakosníngum á íslandi, að
viö kunnum betur við að hafa
hugsanleg kóngsefni frammá hjá
okkur; og er sá smekkur líklega
úr íslendíngasögum ef ekki úr
þjóðsögum Jóns Árnasonar.
Ég held Pétur Thorsteinsson
fari millileiðina milli þessa róm-
antíska forseta sem okkur smá-
þorgara dreymir um úr íslend-
íngasögunum, og forsetans í
Sviss sem kemur, nýr maður á
ári hverju, við það aö upplýkst
hurð án þess nokkur hafi tekið
eftir því.
Halldór Laxness
Bárður Halldórsson, Akureyri:
Hann hefur það, sem
til embættisins þarf
i Hörður Hjartarson,
Seyðisfirði:
í augum ýmissa eru forseta-
kosningar eins konar fegurðar-
samkeppni þar sem valið veröur
eingöngu éftir útliti — jafnvel
kynferði.
Þetta æðsta embætti þjóðar-
innar er hins vegar að mínum
dómi miklu mikilsveröara og fjöl-
þættara en svo að barnaskapur
megi ráða atkvæði.
Forseti íslands hefur sam-
kvæmt stjórnarskrá umtalsverð
völd og á hann reynir mjög ekki
aöeins við stjórnarmyndanir held-
ur ekki síður, þegar kynna þarf
málstað Islands erlendis.
Pétur Thorsteinsson, sendi-
hérra hefur allt sem til þessa
embættis þarf.
Mér finnst það undarlegt, þeg-
ar ég heyri fólk tala um það, að
þeir frambjóðendur, sem ekki
hafa haft nein kynni af embættinu
og ekki starfað á vettvangi þeim,
sem beztur er til undirbúnings
fyrir embættið, muni seinna læra
að gegna embættinu.
Það er eins og að ætla að fá
mann til að gera við bílinn sinn,
sem lofar að hann muni læra að
gera við, þegar hann sé búinn að
taka að sér verkið.
Pétur Thorsteinsson er fjöl-
menntaður maður, hefur áratuga-
kynni af íslenzkum stjórnmálum,
efnahagsmálum og kynningu ís-
Hákon Aðalsteinsson, Húsavík:
Hvernig skal ekki
kjósa forseta
lands utan lands og innan, býr yfir
mikilli þekkingu á erlendum þjóð-
um og tungum.
Hann hefur einfaldlega það,
sem til þarf í embætti forseta
íslands.
Síöustu árin hefur komið til
erfiðra stjórnarmyndana á íslandi.
Minnstu munaði nú fyrir skömmu,
að þjóöin missti meö öllu trú á
æöstu stjórn landsins.
Ég treysti því, að Pétur verði
ákveðinn og röggsamur við
stjórnarmyndanir í framtíöinni,
svo að við þurfum ekki aftur að
horfa upp á dáðleysi og ódugnað
líkan þeim, sem við máttum líta á
haustdögum og fram á miöjan
vetur.
Ég skora á alla þá, sem meta
forsetaembættið að verðleikum
að fylkja liði á bak viö Pétur
Thorsteinsson.
Þeim hjónum má
treysta til æðstu
metorða fyrir land og lýð
Hinn 29. júní n.k. verður
gengið til kjörs forseta íslands,
hins fjórða í röðinni frá stofnun
lýðveldisins.
Þegar þessi orð eru rituð,
hafa þegar fimm framþjóðend-
ur komiö fram á sjónarsviöið.
Meöal þessa fólks er Pétur J.
Thorsteinsson sendiherra. Að
öðrum frambjóöendum ólöst-
uðum er mér sérlega Ijúft aö
lýsa yfir hér og nú, að ég tel
Pétur J. Thorsteinsson mjög
vel hæfan til að gegna embætti
forseta íslands.
Störf þeirra hjóna, frú
Oddnýjar og Péturs J. Thor-
steinssonar fyrir íslensku þjóð-
ina, hvort heldur hefur verið á
erlendri grund sem sendiherra
llla er nú komið fyrir alþjóð,
þegar hún á aö kjósa sér forseta.
Ýmsar vangaveltur hefur maður
orðið var við og er margur
óákveðinn og reikull í rásinni. Þó
virðist mönnum almennt koma
saman um það að Pétur Thor-
steinsson sé hæfastur til aö
gegna æðsta embætti þjóðarinn-
ar, en prófkjör sem farið hafa
fram á ýmsum stöðum hafa sýnt
að Vigdís Finnbogadóttir á mikið
fylgi og síöan Guðlaugur Þor-
valdsson. Þessi prófkjör munu
hafa farið fram í mjög þröngum
hópum og meira í gríni en alvöru.
Samt viröast þau hafa verkað
þannig á marga að þrátt fyrir þaö
að þeir vilji engan annan en
Pétur í forsetaembættið þá segj-
ast þeir verða að kjósa Guðlaug
til aö' fella Vigdísi. Þetta er
svolítiö öfugsnúið ef fólkið sem
styöur Pétur kýs Guðlaug til að
Vigdís komist ekki að.
Það lítur þá þannig út að ef
Guðlaugur hlýtur kosningu sem
forseti þá fer hann ekki inn á
eigin fylgi heldur á andstöðu
almennings við framboð Vigdísar
Finnbogadóttur.
Þetta finnst mér ekki vera rétt
aöferð til að kjósa forseta, þar
sem meirihluti þjóðarinnar á aö
láta vilja sinn í Ijós.
29. JUNI
Undirbúningur 2. tbl. „29. júní“ er
þegar hafinn, þótt útgáfudagur sé ekki
ráöinn enn. Þeir, sem óska aö koma
einhverju varöandi kosningarnar á fram-
færi í því tölublaði eöa þeim næstu þar
á eftir, sendi efni til aöalskrifstofu
stuöningsmanna Péturs Thorsteinssonar,
Vesturgötu 3, Reykjavík, sem fyrst.
lands síns eða hér heima fyrir,
bera þess gleggstan vott, að
slíku fólki má treysta til æöstu
og virðingarmestu metorða
fyrir land og lýö.
Fullvíst má telja, aö ásjóna
íslands hafi stækkaö aö mun í
augum peirra útlendinga, sem
kynnst hafa Pétri J. Thor-
steinssyni á undanförnum ára-
tugum, enda glæsilegri en jafn-
framt yfirlætislausari fulltrúi
þjóðlands vandfundinn, bæði
til orðs og æðis.
Framþróun undirstöðuat-
vinnuvegar þjóöarinnar og þar
með lífskjör landsmanna hafa
átt hauk í horni, þar sem Péturs
J. Thorsteinssonar hefuf notiö
við, enda hvíldi meginþungi
hinna stóru viðskiptasamninga
eftirstríðsáranna á honum og
samstarfsmönnum hans, sem
ekki voru margir á þessum
fyrstu brautryöjendaárum lýö-
veldisins.
Um leið og ég læt í Ijósi þá
von, aö komandi kosningabar-
átta megi fara vel og drengi-
lega fram, vil ég eindregið
hvetja alla þá sem láta sig
þjóðmál varða að kynna sér hin
farsælu störf Péturs J. Thor-
steinssonar í þágu lands og
þjóöar. Ef menn gera það með
réttu hugarfari, er ég ekki í
vafa, hvar menn merkja við á
kjörseðilinn hinn 29. júní n.k.
og hver niðurstaða komandi
forsetakjörs veröur.
Ég hvet alla góöa íslendinga
til liösinnis við Pétur J. Thor-
steinsson.
29. JÚNÍ
Utgefendur: Stuöingsmenn Péturs J. Thorsteinssonar.
Ritnefnd: Hersteinn Pálsson (ábm.), Arnór Hannibalsson, Guörún Egilson, Hákon
Bjarnason, Haraldur Blöndal og Sveinn Guöjónsson.