Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980 53 þeir félagar Gouldman og Stewart hafa getaö gert betur fyrr. Þess má geta að þeir kappar eiga báðir nýjar sólóplötur á markaðnum, Eric „Girls“ og Graham „Animal- ympics" er báöar eru unnar í kringum samnefndar kvikmyndir. Kannski eru betri lögin þeirra á þeim plötum, hver veit! En „Look Hear“ er ekki toppur- inn á ferli 10 cc, svo mikið er víst. „MY FAVOURITES“ Janis lan (CBS) Janis lan hefur ekki átt mörg vinsæl lög en nokkur þó og þar á meðal er perlan „At Seventeen" sem er vitanlega á þessari plötu sem lan valdi sjálf lögin á. Janis er síður þekkt sem mikil Winter". Tilfinningatónlist sem þessi á við dreymandi fólk. „THE BEAT“ BEAT (Columbia) Beat er hljómsveit Paul Collins, byggð á poppi og beat tónlist áranna 1963—66. Eins og hjá fleirum nýjum svokölluðum ný- bylgjuhljómsveitum er mjög mikill kraftur í tónlistinni, lögin létt og grípandi, hnitmiðuð og einföld. Paul Collins er lipur lagasmiður og söngvari, minnir á kraftinn í Rhythm & Blues hljómsveitum beat-tímabilsins eins og Rolling Stones, Kinks, Pretty Things o.fl. Beat eru í sama flokki og Elvis Costello, Knack, Joe Jackson og Squeeze. Clapton og Brooker saman í hljómsveit Eric Clapton er kominn með nokkur stór nöfn í hljómsveit sína. Albert Lee, gítarleikari, byrjaði aö leika með honum í febrúar 1979, eftir aö hafa leikið með Emmylou Harris um skeið. í september 1979 komu í hljómsveitina Chris Stainton, hljómborðsleikari, Dave Markee, bassagítarleikari og Henry Spin- etti, trommuleikari. Ekki nóg með heldur bættist þeim liðsauki nú eftir áramótin í Gary Brooker, fyrrum söngvara og píanóleikara Procol Harum, sem hefur haft lágt um sig síðan Procol Harum hættu, en gaf þó út breiöskífu í byrjun síðasta árs. Eric Clapton er aftur á móti á leiðinni með nýja plötu, eins og skýrt var frá hér í síðustu viku, en nú er komið nafn á hana, „Just One Night“ en hún er tvöföld hljóm- ieikaplata tekin upp í lok síðasta árs í Budokan höllinni í Tokyo í Japan. Platan kemur á markað erlendis 2. maí sem þýðir að hún átti að koma hingaö fyrir lok þessa mánaðar í síðasta lagi. Clapton er líka að taka upp nýja stúdíóplötu sem Brooker verður á en hvort hann er á „Just One Night" er okkur ekki kunnugt um. Þess má geta að Clapton og kompaní eru að hefja hljómleika- ferð um England í byrjun maí og verða í London 15., 16. og 17. maí. HIA. 10 cc söngkona en frekar fyrir afar viökvæma texta og fyrir að opna tilfinningar sínar í textum og deila þeim og blanda saman við tilfinn- ingar annarra. Lögin spanna feril hennar síðan „Stars" kom út, en næsta LP plata hennar „Between the Lines“, „When The Party’s Over“ og „In The Winter" sem öll eru hér. „Aftertones” og „Miracle Row“ voru vinsælar hérlendis en minna er Between The Lines” og „Janis lan“ varð lítið vinsæl. „Night Rains” kom út á síðasta ári en á henni var lag sem hún samdi ásamt diskójöfrinum Georgio Moroder, „Fly Too High" sem hefur lyft nafni hennar upp á ný en þetta lag er eitt líflegt á þessari nýju safnplötu sem er tilvalin fyrir þá allra viðkvæmustu. En í alvöru talað þá eru sum laga hennar perlur, eins og „At Seventeen”, „Stars”, „When The Party’s Over“ og það besta „In The Hljóðfæraleikurinn á plötunni er einfaldur en þó fer gítarleikarinn út í sóló í nokkrum laganna og þassar það vel inn í. „Don’t Wait Up For Me“ er sterkasta og kröftugasta lagiö, en Beat fluttu það í Skon- rokki ekki alls fyrir löngu. „U.S.A.” er líka sérstætt, í stíl rokkaðri Beach Boys laga „You Won’t Be Happy” er líka sérstakt og hresst í gamaldags Kinks stíl. Þessi fyrsta plata er sérlega efnileg og ef þróunin heldur áfram hjá Paul Collins og Beat ætti næsta plata aö vera mjög góö. Pálmi hugs- ar sér til Pálmi kemur með plötu sína seinna í vor, og vonandi verður ekki löng bió á skífu þeirra Ragnhildar og Björgvins. Langt er nú um liöiö síðan fyrst var frá því skýrt að vænta mætti „sóló-plötu” frá Pálma Gunnarssyni. Nú er ákveöiö að platan komi út með vorinu, en nafn hefur platan enn ekki hlotið. Þegar hafa verið hljóðrituð 12 löng lög, og til stendur að hljóörita tvö í viðbót, þar af annað eftir Magnús Eiríksson. Undirleik á plöt- unni annast valinkunnir hljóð- færaleikarar, og má nefna meðal þeirra Sigurð Karlsson, Þórð Árna- son, Friðrik Karlsson og Karl Sig- hvatsson, að ógleymdum Magn- úsi Kjartanssyni, sem hefur verið hægri hönd Pálma við gerð plötunn- ar. Líklegt þykir að plötunni verði fylgt eftir með hljómleikum hér í Reykjavík, og ef af þeim yrði, myndu þetta verða ágóðahljómleikar. Þá hefur einnig komið til greina að Pálmi myndi sína eigin hljómsveit, er þeysti um landið vítt og breitt og kynnti efni plötunnar, en engin ákvöröun þar að lútandi hefur verið tekin. SA. hreyfings Á IBIZA? Vel kann svo að fara að í júlímánuði verði hljómsveitin Brimkló komin suður á Ibiza þeirra erinda aö skemmta sólarstrand- arförum. Ef af förinni verður, mun hún standa yfir í hálfan mánuð eða svo og um 20 manns munu taka þátt í henni, þ.e. Brimklóarmenn, eiginkonur og börn. Þegar heim kemur tekur síðan við landreisa ein mikil og með Brimkló verða í förinni Halli og Laddi og sennilega HLH- flokkurinn. Reisa þessi hefst um verzlunarmannahelgina og mun síðan standa út ágústmánuð. Úr því verið er að tala um listamenn Hljómplötuútgáfunnar, er rétt að víkja nokkrum orðum að árangri fararinnar til Cannes fyrr í vetur, en þar voru gerðir margir samningar um útgáfur laga erlendis og annað í þeim dúr. Enn hefur ekkert gerst í þeim málum, utan hvað bréfaskriftir eru í fullum gangi og mörg símtöl munu hafa verið hringd til erlendra aðila. —SA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.