Morgunblaðið - 27.04.1980, Side 1

Morgunblaðið - 27.04.1980, Side 1
64 SÍÐUR 95. tbl. 67. árg. SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Gíslunum dreift um landið „Almenn viðbragðs staða“ fyrirskipuð 26. apríl. AP. TILKYNNT var í Teheran í morgun. að bandarísku gíslunum. 53 að tölu. hefði verið dreift um borgina. og yrðu þeir nú fluttir á ýmsa staði. víðsvegar um landið. til að koma í veg fyrir að Bandaríkin geri aðra tilraun til að ná þeim. Boðskapur þessi er hafður eftir öfgamönnunum, sem hafa bandaríska sendiráðið á valdi sínu, en þeir leggja að stjórn landsins að efla mjög vörð um aðsetur Khomeinis trúarleiðtoga, svo og út; varpsstöðina í Teheran. í yfirlýsingu öfgamanna er staðhæft, að bandaríska björgunarsveitin hafi reitt sig á hjálp „málaliða“ í Te- heran, og styður þetta óstað- festar fregnir frá Bandaríkj- unum um að liðsauka hafi Hinir særðu komnir heim Kamstcin. V-Þýzkalandi. 26. apr. AP. Bandarikjamennirnir fjór- ir, sem særðust í tilrauninni til að frelsa gíslana hafa verið fluttir til Bandaríkjanna, að því er skýrt var frá í morgun. Þeir höfðu skamma viðdvöl í bar.dariskri herstöð í Ram- stein, þar sem gert var að sárum þeirra til bráðabirgða, áður en bandarisk sjúkra- flutningavél flaug þeim til Bandaríkjanna. Afangastað- ur þar er ókunnur. Lík mannanna átta, sem létu lífið í tilrauninni, urðu eftir á slysstaðnum í Iran þar sem tvær leiðangursvélar rákust á. íransútvarpið skýrði frá því í morgun að fjögur lík hefðu fundizt á slysstað, en þau hefðu verið óþekkjanleg. verið að vænta í Teheran. Jafnframt er á kreiki orð- rómur um að í björgunar- sveitinni hafi verið 40 Iranir, sem hlotið hafi herþjálfun í Bandaríkjunum. Teheran-útvarpið sagði frá því í morgun, að íranskar orrustuþotur hefðu varpað sprengjum á tvær þyrlur, sem bandaríska liðið yfirgaf í eyðimörkinni, auk þess sem Iransher hefði fjarlægt það- an þrjár þyrlur aðrar, svo tryggt væri að Bandaríkja- menn sneru ekki aftur til að sækja þær. Þetta stangast á við fyrri yfirlýsingar frá íran um að fimm þyrlur hafi farizt, en ekki var nefnt hvað gert hefði verið við vélarnar tvær, sem rákust á. Þá hefur útvarpið sagt frá því að fyrirmæli hafi verið gefin um „almenna við- bragðsstöðu“, og beri öllum, sem hlotið hafi herþjálfun skylda til að gefa sig fram við næstu herstjórn, einkum þeim sem búi í Khorasan- héraði. Þá hefur klerkum, sem ekki hafa hlotið þjálfun, verið boðið að skrá sig til „skyndiþjálfunar um helgina, en slíkur undirbúningur á að tryggja þeim rétt til þátttöku í heiðursgöngu að aðsetri Khomeinis hinn 1. maí, að því er segir í orðsendingunni. Rússar sprengja WashinKton, 26. apríl. AP. BANDARISKA kjarnorku- stofnunin skýrði frá því í dag að í gær hefðu komið fram á mælum merki um að Rússar hefðu sprengt kjarnorku- sprengju neðanjarðar í Semi- palapinsk-kjarnorkutilrauna- stöðinni í Síberiu kl. 15.57 að islenzkum tíma á fimmtudag. Þetta er fyrsta kjarnorkutil- raun Rússa sem vart verður við á þessu ári, en í fyrra gerðu þeir 23 tilraunir með kjarnorku- sprengjur neðanjarðar. Brak úr brezku Dan-Air-þotunni, sem fórst á Tenerife með 146 manns. AP-simamynd. Kólumbía: Sendiherrunum sleppt úr haldi? BoKota. 26. apríl. AP. BÚIST er við að til tíðinda dragi í dag eða á morgun í deilu Kólumbíustjórnar og skæruliða er halda 16 sendiherrum í gíslingu í sendiráði Dóminíkanska lýðveldisins í Bogota. óstaðfestar fregnir herma að skæruliðarnir haldi til Kúbu um helgina og að samkomulag í deilunni liggi í loftinu. Háttsettur embættis- maður sagði í dag að samn- ingaviðræður hefðu gengið vel síðustu daga. Sendi- herra Kúbu hefur átt fund daglega með skæruliðunum í sendiráðinu, og sagði hann fréttamönnum í dag, að verið væri að undirbúa farþegaþotu í Havana til að sækja skæruliðana. Þá hefur spurst út að skæruliðarnir hyggist taka nokkra af gíslunum með sér til Kúbu til að tryggja að ekki verði reynt að yfirbuga þá á undankom- unni. Vistin í sendiráðinu hefur haft slæmt áhrif á ýmsa af sendiherrunum, að því er skýrt hefur verið frá. Þotan kann að haf a sprungið í lofti 70% styðja Carter New York, 26. apríl. AP. NIÐURSTÖÐUR skoð- anakannana, sem gerðar voru í Bandaríkjunum nokkrum stundum eftir að fregnin um hina mis- heppnuðu tilraun til að frelsa bandarísku gísl- ana í Teheran, benda til þess að yfirgnæfandi hluti Bandaríkjamanna styðji þessar aðgerðir Carters Bandaríkjafor- seta. og vilji að áhlaup verði reynt aftur. Svo virðist sem 68% telji rétt að beita harka- legri aðgerðum, enda þótt 62% séu þeirrar skoðunar að stefna forsetans í írans-deilunni þegar á heildina er litið sé ekki líkleg til að bera árangur. Santa Cruz, 26. april. AP. EMBÆTTISMENN sögðu í dag að ýmislegt benti til þess að Boeing-727 þotan sem fórst á Kanaríeyjum með 146 innanborðs í gær hefði sprungið á flugi. Á slysstaðnum, sem væri þétt skóglendi, hefðu eng- in tré fallið, heldur nokkr- ir trjátoppar skaddast, og benti það til þess að þotan hefði ekki hrapað í heilu lagi til jarðar, heldur í mörgum smápörtum. Leifar þotunnar og far- þeganna voru dreifðar yfir þriggja kílómetra breitt belti við Teidefjallið. Ógerningur hefur verið að segja hversu mörg lík hafa fundist þar sem þau eru illa farin, og frekar um lík- amsleifar að ræða en heil- leg lík. Ekkert bendir til að einhverjir hafi komist lífs af úr slysinu, þrátt fyrir umfangsmikla leit. Enn hefur „svarti kass- inn“ úr flugvélinni ekki fundist, en upplýsingar sem hann hefur að geyma eiga að leiða í ljós hvað gerst hefur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.