Morgunblaðið - 27.04.1980, Page 3

Morgunblaðið - 27.04.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRIL 1980 3 Náttúruham- faratrjggingu fyrir Islendinga HEILBRIGÐIS- og tryggingaráð- herra skipaði i gær nefnd til þess að kanna möguleika á því að tryggja þjóðina fyrir áföllum af meirihátt- ar náttúruhamförum. Formaður nefndarinnar er Ás- geir Ólafsson, forstjóri Brunabóta- félagsins. Verkefni nefndarinnar er þannig kynnt í skipunarbréfi: 1. Endurskoðun laga um Viðlaga- tryggingu Islands, t.d. vegna eigna sem nú falla utan tryggingar. 2. Nefndin flokki náttúruhamfarir í skilningi laganna og geri spá um hugsanleg tjónatilvik í hverjum flokki. 3. Nefndin geri almennt grein fyrir fjárhagslegum og félagslegum afleiðingum meiriháttar tjóna. 4. Nefndin kanni möguleika og kostnað við endurtryggingar vegna eignatjóns og framleiðslutaps þjóð- arbúsins. 5. Nefndin geri tillögur sem stefnumörkun varðandi byggð og mannvirkjagerð eftir áhættusvæðum. Hlífðarfatn- aði stolið úr björgunarskýli Siglufirdi, 26. april. BROTIZT heíur verið inn í slysa- varnaskýlið i Almenningum i Mánárskriðum, en skýlið er skammt írá þjóðveginum þar á milli Siglufjarðar og Fljóta. Hef- ur verið numinn á brott hlífðar- fatnaður og illa gengið um skýl- ið, þannig að þar er nú litið um aðbúnað fyrir þá sem þar gætu þurft að leita skjóls. Björgunarsveitin Strákar í Siglufirði sér um skýlið og kom stuldurinn í ljós á dögunum er menn úr sveitinni komu í skýlið til eftirlits. Segja björgunarsveit- armenn að oft hafi verið illa um það gengið, en nú hafi keyrt um þverbak þegar tekinn hafi verið nær allur hlífðarfatnaður. Segjast þeir hafa grun um hver hér hafi verið að verki og að þeir muni ekki gera þetta að lögreglumáli verði búnaðinum skilað strax, en annars verði málið gert opinbert. m.j. Spurðust fyrir um eina milljón fjár á fæti... í NÝLEGU fréttabréfi Sam- bandsins er greint frá því, að ástandið í tran hafi haft ýmis áhrif á heimsmarkað- inn fyrir kindakjöt. Þar seg- ir frá stórum samningum, sem Ný-Sjálendingar og Ástralir hafi gert við Irani. „Sérstakir íranskir slátrar- ar voru sendir til Nýja- Sjálands til að aflífa lömbin í samræmi við reglur mú- hameðstrúar og múham- eðstrúarprestur varð að ferðast á milli sláturhús- anna og ákvarða hvernig siátrararnir ættu að snúa, þannig að þeir sneru andlit- inu til Mekka meðan þeir aflífuðu." segir í Sambands- fréttum. Búvörudeild Sambandsins hefur fengið allmargar fyrir- spurnir um afgreiðslu til þessa heimshluta og hafa sumar þeirra verið ærið stór- ar í sniðum, „Til dæmis var í einu tilvikinu um að ræða afgreiðslu á einni milljón fjár á fæti og tugþúsundum lesta af kjöti. Slíkar afgreiðslur stranda þó alfarið á kröfum þessara aðila um skurð kinda og bænalestur við slátrun í samræmi við trúarbrögð þeirra," segir í fréttabréfinu. r Háskóli Sameinuðu þjóðanna á Islandi: Sjö erlendir styrkþeg- ar nema jarðhitafræði ANNAÐ starfsár Iláskóla Sam- einuðu þjóðanna er haíið og verða sjö eriendir styrkþegar þetta starfsár við sérhæfða þjálfun á hinum ýmsu sviðum jarðhita- fræða. Sex þeirra dvelja hérlendis i um sex mánuði. en einn í þrjá mánuði. Tveir styrkþegar koma frá Kína, tveir frá Filippseyjum og einn frá E1 Salvador, Hondúr- as og Indlandi. Þrír verða við þjálfun í jarðeðl- isfræðilegum mælingum í borhol- um, tveir við þjálfun í efnafræði jarðhitavatns og tveir við jarð- fræðilegar athuganir í borholum. Sex styrkþeganna eru hér á vegum Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en einn á vegum Þróunaraðstoðar SÞ. 60 fyrirlestrar verða fluttir um hin ýmsu svið jarðhitafræða og stendur fyrirlestrarflokkurinn í um 4 vikur. Auk fyrirlestranna eru umræðufundir, verklegar æfingar og kynnisferðir. Fyrirlesarar eru 13 og koma þeir úr röðum jarðhita- sérfræðinga Orkustofnunar og HI. Auk erlendu styrkþeganna sækja fyrirlestrana fimm starfsmenn Jarðhitadeildar Orkustofnunar og fjórir verkfræðingar frá ráðgjafa- verkfræðistofum. Erlendu styrkþegarnir eru frá Kína, Filippseyjum, E1 Salvador, Hondúras og Indlandi og eru þeir á myndinni ásamt forstöðu- mönnum Háskóla SÞ og Orkustofnunar. (Ljósm. Kristján). ' • ' . , ■ - ■ ; 25. maí - örlá sæti laus. 14. júní - uppselt. 28. júní - fá sæti laus. 5. júlí - uppselt í 3 vikur. 12., 19., 26. júlí - laus sæti. 2. og 9. ágúst - biðlisti. 16., 23., 30., ágúst - laus sæti. I 8. og 29. maí - uppselt. [ 5. júní - uppselt í 3 vikur. 19. júní - laus sæti. 26. júní - uppselt. 10., 17., 31., júlí-fá sæti laus. 7. ágúst — uppselt í 3 vikur. 121. og 28. ágúst-laus sæti.i I 11. og 18. september / \ - uppselt. / \ 2. október — / l \ \ laus sæti. / / 31. maí - örfá sæti laus. 21., 28. júní-sæti laus. 5., 12., 19., 26. júlí - sæti laus. 2. ágúst - uppselt í 3 vikur. 9. ágúst - fá sæti laus. 16., 23., 30. ágúst - laus sæti. V. Æ Lengið sumarið með vorferð Fjölbreyttasta ferÖaúrvalið er hjá Utsý GleÖilegt sumar í Útsýnarferð Feröaskrifstofan Austurstræti 17. Símar 26611 og 20100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.