Morgunblaðið - 27.04.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980 13
Guðmundur H. Garðarsson:
Að lofa#
og svíkja
Flestum er enn í fersku minni
hin miklu átök, sem áttu sér stað
á vinnumarkaðnum í ársbyrjun
1978. Þá var verðbólgan rúmlega
30%, atvinna mikil og lífskjör
góð. Kaupmáttur tekna láglauna-
fólks og ellilífeyrisþega var með
bezta móti. 3ja herbergja íbúð
kostaði þá 10—12 milljónir króna
og benzínverð var um 113.00
krónur líterinn.
Þrátt fyrir almenna hagsæld í
byrjun árs 1978 voru ýmsar
blikur á lofti, sem gátu teflt
atvinnu- og efnahagslífi lands-
manna í hættu og skaðað afkomu
almennings til frambúðar ef ekk-
ert væri að gert.
Ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar greip til aðgerða
gegn verðbólgu með hinum
landsþekktu febrúarlögum, sem
fólu m.a. í sér ákveðna skerðingu
kaupgjaldsvísitölu hjá þorra
launafólks, öðrum en láglauna-
fólki og ellilífeyrisþegum. Það
var einsdæmi í íslenzkri stjórn-
málasögu, að stjórnmálaforingi
beitti sér fyrir erfiðum og um-
deildum aðgerðum, sem hlaut að
vera ómerkilegum stjórnmála-
skúmum kærkomið tækifæri og
auðunnið að mistúlka, aðeins
3—4 mánuðum fyrir sveitar-
stjórnar- og Alþingiskösningar.
Þá sögu þekkja allir lands-
menn. Heitstrengingar vinstri
manna um samningana í gildi,
aukinn kaupmátt launa, lágvexti,
verðbólgulaust þjóðfélag o.s.frv.
o.s.frv. eru enn í fersku minni.
Osigur Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum vorið 1978 skyldi
verða sigur fólksins í baráttu
þess fyrir fegurra þjóðlífi og
betri lífskjörum.
Vinstri flokkarnir, A—A
flokkarnir unnu mikinn stjórn-
málasigur. En nú hefur komið í
ljós, að sá mikli fjöldi, sem veitti
þessum flokkum brautargengi
vorið 1978 og taldi sig vera meðal
sigurvegaranna,- er raunverulega
hinir sigruðu. Afrakstur hinna
ófyrirleitnu vinnubragða ákveð-
inna forustumanna vinstri fylk-
inganna vormánuðina 1978, er nú
að koma í ljós.
Það er dapurlegt að ræða þessa
dagana við sumt af því fólki, sem
trúði á falsrök og loforð vinstri
foringjanna í stjórnmálum og
kjaramálum árið 1978. Þetta er
vonsvikið fólk, sem finnur nú, að
það var blekkt. Það féll fyrir
falsspámönnum og er nú að
gjalda þess.
í stað kaupmáttartryggingar
hefur átt sér stað allt að 20%
kaupmáttarskerðing hjá lág- og
millitekjufólki samanber álits-
gerðir B.S.R.B. í stað minnkandi
verðbólgu, sem febrúarlögin frá
1978 áttu að tryggja þannig, að
hún færi í 20% og neðar, stefnir
verðbólgan í 70—80% árið 1980. í
stað 18—20% vaxta á lánum, eru
almennir lánsvextir nú 31 —
34,5% og vextir og verðtrygging
lána 50—60% . í stað þess, að 3ja
herbergja íbúð á sölumarkaði
kostaði 10—15 milljónir króna,
kosta þessar íbúðir nú 30—35
milljónir króna.
I stað þess að styrkja stöðu
atvinnuveganna með verðbólgu-
lausu þjóðfélagi er óðaverðbólg-
an að gera útaf við allan atvinnu-
rekstur ásamt skattníðslu, sem á
sér ekkert fordæmi í sögu þjóðar-
innar.
Er furða þótt almenningur sé
vonsvikinn? Er furða þótt hátt í
eitt þúsund Islendingar flytjist
árlega burt frá landinu í leit að
meira lífsöryggi. —
Og nú á að friða fólkið við
vondar aðstæður vegna stjórn-
málasvika með félagsmálapökk-
um, sem það er sjálft. látið
greiða.
Það er fyrir löngu orðið tíma-
bært að blekkingunum linni.
Að því verður nánar vikið
síðar.
Pétur Guðmundsson að störfum en þegar blaðamann bar að lá
félagi hans, Hörður Kristjánsson, í flensu. Mynd Mbi. Kristján.
Vinna að sjögu ís-
húsfélags ísfirð-
inga í málverkum
„VIÐ vorum beðnir að skreyta
stigaganginn hér með myndum
úr sögu Ishúsfélags ísifirðinga,"
sagði Pétur Guðmundsson, þegar
blaðamaður hitti hann að máli á
skrifstofum íshúsfélagsins en
þar var hann í óða önn að mála
myndir. Stór hluti skrifstofuhús-
næðisins var undirlagður mynd-
um eftir hann og Hörð Kristjáns-
son, sem hefur unnið að verkefn-
inu með honum, og eru myndirn-
ar á annan tug.
„Við einbeitum okkur einkum að
fólki og þeim breytingum, sem
hafa orðið á verkmenningunni.
Fyrirtækið var sett á stofn árið
1912, og var þá til húsa í litlum
kofa. Þá var einkum ísuð síld til
beitingar. Allar aðstæður voru
mjög frumstæðar en eftir því sem
árin hafa liðið hefur fyrirtækið
eflst. Þetta vonumst við til að geta
undirstrikað í myndum okkar en
við höfum gert okkur sérstakt far
um að einfalda hlutina sem mest.
Þetta hefur verið ákaflega
skemmtilegt verkefni. Við höfum
leitað víða heimilda, í fundargerð-
arbókum fyrirtækisins og öðrum
heimildum, svo sem dagblöðum.
Ef allt gengur að óskum, þá má
búast við því, að við klárum þetta
verkefni um mánaðamótin," sagði
Pétur ennfremur.
Húseignin Auðbrekka
44—46 Kópavogi til leigu
Gott húsnæði. Hentugt bæöi fyrir iönaö og verzlun.
Húsnæöinu má skipta í 2—4 hluta.
Upplýsingar í síma 19157.
Hótel Hjálpræðishersins á Isafirði:
Herbergi hefur vart
losnað í allan vetur
„Það hefur vart losnað herbergi
hjá okkur í allan vetur,“ sagði
Óskar Óskarsson, framkvæmda-
stjóri gesta- og sjómannaheimilis
Hjálpræðishersins á ísafirði, í' sam-
tali við blaðamann Mbl.„ Hér á
Isafirði er mikið um að vera,
uppbygging bæjarins hröð og því
mikil þörf á iðnaðarmönnum. Hjá
okkur hafa einkum iðnaðarmenn
verið en einnig talsvert um lausa-
gesti," sagði Óskar ennfremur.
Óskar er foringi í Hjálpræðis-
hernum en ásamt honum rekur
kona hans; Unni Kurseth, gesta-
heimilið á ísafriði. „Við höfum látið
gera miklar endurbætur á húsinu,
fyrir alls 25 milljónir. Eldhúsið var
innréttað, frystiklefi tekinn í notk-
un og einnig kæliklefi. Þá var skípt
um allar vatns- og skólplagnir. Við
munum einnig gera endurbætur á
stigagangi og þá mun húsið að
öllum líkindum verða málað í
sumar svo það er nóg að gera hér,“
sagði Óskar.
Hús Hjálpræðishersins á ísafirði
var byggt árið 1923 — þá eitt
glæsilegasta og veglegasta hús bæj-
arins. Það var einkum byggt fyrir
fé, sem safnaðist á Isafirði. Allar
götur síðan hefur Hjálpræðisherinn
rekið heimilið. Þá hefur Hjálpræð-
isherinn rekið samkomustarf á
Isafirði og að sögn Óskars eru
fastar samkomur tvisvar- í viku
fyrir fullorðna og að minsta kosti
einu sinni í viku fyrir börn. Gist-
ingarverði á heimili Hjálpræðish-
ersins er mjög stillt í hóf og einnig
matarverði.
Mynd Mbl. Kristján.
óskar og Unni ásamt bróðurdótt ur óskars, Inger Jóhönnu.
rfPARIÐJPOmnin
Hjá okkur fáið þér upplýsingar um framboð
og eftirspurn á fasteignum.
Opið frá 9—19 virka daga, 13—16 laugard. og sunnud.
TÖLVUVÆDD UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA
FYRIR FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Síðumúla 32.