Morgunblaðið - 27.04.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRIL 1980
15
George N. Holmes Sr. faðir eins sjóliðans, sem fórst í hinni
misheppnuðu björgunartilraun Bandaríkjamanna í Iran, ræðir við
fréttamenn um björgunartilraunina. Á veggnum eru nokkrar fjölskyldu-
myndir.
Símamvnd AP.
Þeir fórust í tilraun Bandaríkjamanna til að bjarga gíslunum úr sendiráði Bandaríkjanna í Teheran. Á
myndinni eru (f.v.). Lynn Davis Mclntosh, flugstjóri í bandaríska flughernum. Hann var 33 ára, frá Valdosta
í Georgíu. George N. Holmes Jr., 22 ára liðþjálfi í sjóhernum, frá Pine Bluff í Arkansas. Hann var þyrlustjóri.
John Davis Harvey, 21 árs undirforingi í sjóher, frá Roanoke í Virginíu. Hann var sérfræðingur í flugleiðsögu.
Símamynd AP.
I
Fréttaskýrendur ekki ánægðir
með skýringar Carters og Browns
Washington. 25. apríl, frá önnu
Biarnadóttur fréttaritara Mbl.
BANDARÍSKA þjóðin vaknaði
við þær fréttir á föstudagsmorg-
un, að leynileg tilraun Banda-
ríkjanna til að bjarga gíslunum
50 í bandaríska sendiráðinu i
Teheran hafi mistekizt. Jody
Powell, blaðafulltrúi Jimmy
Carters forseta, las yfirlýsingu
þess efnis klukkan 1 aðfaranótt
föstudags, að Bandaríkjaforseti
hefði ákveðið, að tilraun björgun-
arliðs til að bjarga gislunum
skyldi hætt, þegar tækjabúnaður
liðsins brast.
Björgunarliðið var statt í eyði-
mörk í íran, þegar horfið var frá
tilrauninni. Átta liðsmanna létust
við brottflutninginn. Bandaríkja-
forseti harmaði dauða þeirra.
Hann sagði í ávarpi árla föstu-
dagsmorguns, að allir liðsmenn-
irnir væru farnir frá íran. Fréttir
frá Teheran hermdu hins vegar,
að fjöldi liðsmanna væri enn í
eyðimörkinni og íranskar þotur
leituðu þeirra. í Teheran var
einnig sagt, að liðsmennirnir átta
hefðu látizt, þegar íranskar flug-
vélar hröktu vélar þeirra á flótta.
Carter sagði, að íranska stjórn-
in hafi ekki vitað um tilraun
Bandaríkjanna, fyrr en eftir að
horfið hafði verið frá henni.
Harold Brown, varnarmálaráð-
herra, sagði á blaðamannafundi á
föstudag, að undirbúningur fyrir
björgunarferð til íran hafi hafizt í
nóvember. Hann sagði að ákveðið
hefði verið að láta til skarar
skríða nú, vegna þess að allar
aðrar leiðir virtust vonlausar, og
áður en landfræðilegar aðstæður
kæmu í veg fyrir björgunarferð.
Ákvörðunin var tekin fyrir tveim
vikum síðan. Henni var haldið
leyndri fyrir bandamönnum
Bandaríkjanna til að koma í veg
fyrir að fréttir lækju út.
Bilanir
Brown sagði, að herskip hafi
flutt flugvélar og þyrlur til ferðar-
innar í Persaflóa, en þaðan hófst
ferðin. 3 af 8 þyrlum af gerðinni
RH-53 biluðu á leiðinni til Teher-
an. Sú fyrsta lenti í eyðimörkinni
og áhöfn hennar var tekin upp í
flugvél. önnur sneri við á miðri
leið og sú þriðja átti við vandamál
að stríða þegar komið var til
mótsstaðar í eyðimörkinni. Vél-
arnar hittust í eyðimörkinni um
200 mílur frá Teheran til að taka
eldsneyti. Þar var hætt við ferð-
ina. Ákveðið hafði verið fyrirfram,
að hætt skyldi við ferðina, ef færri
en 6 þyrlur þyldu hið langa flug til
Teheran. Við flugtak rakst þyrla á
eina flugvélanna, sem voru af
gerðinni C-130, og eldur brauzt út.
Atta manns létust og nokkrir
særðust. Lík hinna látnu eru enn í
íran. Björgunarliðið var skipað 90
mönnum og áhöfn vélanna.
Óstaðfestar fréttir herma, að
björgunarliðið tilheyri leynilegu
herliði, sem er sérstaklega þjálfað
til að fást við hryðjuverkamenn.
Það á að hafa verið stofnað árið
1978 og halda til í Norður-Karó-
línu. Sagt er, að ekkert sé til
sparað við að gera það sem bezt úr
garði.
Tóku 50 fanga
Brown sagði, að liðsmenn björg-
unarflokksins hafi boðizt til ferð-
arinnar og komið úr öllum fjórum
deildum hersins. Hann sagði, að
ferð 50 íranskra borgara hafi
verið hindruð á meðan á tilraun-
inni stóð, en um leið og hætt var
við hana, var þeim leyft að fara
leiðar sinnar. Hann sagði, að
íranskur herafli hafi hvergi komið
nálægt björgunartilrauninni.
Hann vildi ekki segja, hvernig
bjarga átti gíslunum. Carter hefur
verið gagnrýndur í dag fyrir að
hafa ekki haft nein samráð við
fjölskyldur gíslanna og að lífi
gíslanna hafi verið stofnað í hættu
með þessari tilraun.
Það hefur mikið verið talað og
skrifað undanfarna daga um
óánægju innan starfsliðs Carters
og meðal leiðtoga þingsins með
yfirlýsingar Carters um hugsan-
legar hernaðarráðstafanir gegn
íran. Starfsmenn hans vilja sumir
að frekari þolinmæði verði sýnd.
Leiðtogar þingsins hafa minnt
Carter á samþykkt öldungaráðsins
frá 1973, sem krefst þess, að
forseti ráðfæri sig við þingið áður
en hann grípur til hernaðarráð-
stafana. Áherzla er lögð á það, að
tilraun Carters á fimmtudag hafi
verið björgunarráðstöfun, en
Frank Church, formaður utanrík-
isnefndar þingsins, sagði á föstu-
dagsmorgun, að hann væri ekki
alls kostar ánægður með aðgerðir
forsetans.
Vilji fyrir
aðgerðum
Skoðanakannanir, sem the
Washington Post gerði dagana
9.—13. apríl sl. sýndu, að þeir
væru helmingi fleiri sem vildu að
Carter gripi til hernaðaraðgerða
gegn íran, jafnvel þótt það gæti
stofnað lífi gíslanna í hættu, en
þeir sem voru ánægðir með frið-
samlegar aðgerðir Carters. Ef
dæma má af þessum niðurstöðum É
ætti bandaríska þjóðin að vera
ánægð með að Carter reyndi þó að
bjarga gíslunum með valdi.
Fréttaskýrendur í útvarpi og í
sjónvarpi virðast ekki vera full-
ánægðir með skýringu forsetans
og varnarmálaráðherra á hvers
vegna tilraunin misheppnaðist og
telja eitthvað meira búa undir. En
það er engin leið að dæma um það,
að svo komnu máli.
Frambjóðendur til forseta
brugðust misjafnlega við fréttun-
um á föstudagsmorgun. Ronald
Reagan, frambjóðandi repúblik-
ana, hafði ekkert um þær að segja,
en George Bush varði aðgerðir
forsetans. John Anderson, sem
háir sjálfstæða baráttu, gagn-
rýndi þær og líkti þeim við
misheppnaða innrásartilraun
Bandaríkjanna inn í Kúbu árið
1962. Edward Kennedy, keppi-
nautur Carters um útnefningu
demókrataflokksins, sagði, að
hugur manna væri nú hjá gíslun-
um og fjölskyldum þeirra.
* t* ... 1 mmmm« n - i.
Bræðurnir frá Laugar-
dælum sigurvegarar í
skólaskák Sunnlendinga
Hveragerði 23. apríl.
UM siðastliðna helgi fór fram
skólaskákmót í Hveragerði.
Fréttaritari Mbl. bað Erlend
Finnboga Magnússon, kenn-
ara, að segja frá mótinu, en
hann hefur annast skákæf-
ingar nemenda skólans hér í
Hveragerði í vetur og að sögn
foreldra unnið frábært starf í
þeirra þágu, sem honum beri
mikið þakklæti fyrir.
Erlendur sagði svo frá:
„Skólaskákmóti Suðurlands
lauk með veglegu úrslitamóti er
fram fór í félagsheimili Ölfusinga
í Hveragerði 19. og 20. apríl. Til
leiks mættu 14 keppendur víðs
vegar að af Suðurlandi. Úrslit
urðu þau, að í yngri flokki sigraði
Úlfhéðinn Sigurmundsson, Sel-
fossskóla. Annar Karl O. Garð-
arsson, Flúðaskóla. Þriðji Ólafur
P. Jónsson, Kirkjubæjarklaustri. í
eldri flokki sigraði Ingimundur
Sigurmundsson, Selfossskóla,
annar varð Elías Sveinsson,
Hvolsvelli, þriðji Lúðvík Sigur-
vinsson, Vestmannaeyjum.
Mótsstjóri var skólaskákmeist-
ari Suðurlands 1979, Friðrik Vig-
fússon, Hveragerði.
í vetur hafa 620 sunnlenzkir
grunnskólanemendur keppt á 52
skóla- og sýslumótum á vegum
skólaskákar Suðurlands og hafa
þau mælzt mjög vel fyrir. Tilgang-
ur skólaskákar er að veita ungum
skákiðkendum jafnt úr dreifbýli
sem þéttbýli sem jöfnust tækifæri
til skákiðkana, auka kynni þeirra
og samskipti með samræmdri fyr-
irgreiðslu eldri skákáhugamanna
og annarra, sem leggja vilja þessu
lið.
Það sem eftir hefur verið leitað
hafa nú sem hingað til allir verið
boðnir og búnir til þess að mótin
gætu farið fram með sem mestum
myndarskap. Gestgjafar úrslita-
mótsins voru Foreldrafélag
Hveragerðis og skólahverfis Ölf-
ushrepps, en auk þess lögðu
hreppsnefnd Hveragerðis og fé-
lagsheimili Ölfusinga fram aðstoð
og framlög til að gera dvöl hinna
ungu skákmeistara þeim og öðrum
sem eftirminnilegasta.
Sigurvegarar mótsins, bræðurn-
ir Ingimundur og Úlfhéðinn Sig-
urmundssynir frá Laugardælum,
verða fulltrúar Sunnlendinga á
landsmóti skólaskákar, sem fram
fer á Varmalandi í Borgarfirði
24.-27. apríl næstkomandi."
— Sigrún.
Skólafólk í
Múlasýslum
SKÓLASKÁKMÓT Austurlands 1980
var haldið á Reyðarfirði laugardag-
inn 19. apríl. Teflt var í eldri (7.-9.
bekk) og yngri flokki (1.—6. bekk) og
voru keppendur 4 í hvorum flokki.
Rétt til þátttöku í mótinu áttu 2
efstu menn í sýslumótum í kjördæm-
inu og mættu fulltrúar S- og N-Múla-
sýslu til leiks en A-Skaftfellingar
voru ekki meðal keppenda.
I eldri flokki varð Magnús Stein-
þórsson, Egilsstöðum, hlutskarpast-
ur með 5 vinn. af 6 mögulegum
(tvöföld umferð). Önnur úrslit:
1. Magnús Steinþórsson, vinn.
Egilsstöðum, S-Múl. 5
2. Ólafur Sigmarsson,
Vopnafirði, N-Múl. 4
3. Þorvaldur Logason,
Neskaupstað, S-Múl. 3
í yngri flokki bar Helgi Hansson,
Neskaupstað, sigur úr býtum. Hann
hlaut 4‘Æ vinn. af 6 mögulegum
(tvöföld umferð).
Útslit:
1. Helgi Hansson, vinn.
Neskaupstað, S-Múl. 4'/í
2. Viðar Ásgeirsson,
Borgarfriði eystra, N-Múl. 3'k
3. Aðalsteinn Kristjánsson,
Jökulsárhlíð, N-Múl. 3