Morgunblaðið - 27.04.1980, Síða 17

Morgunblaðið - 27.04.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980 17 Birgir ísl. Gunnarsson: Tvískinnungur Alþýðuflokksins henni. Sameiginlega töpuðum við hinsvegar þeirri lotu. Ríkis- stjórnarliðið samþykkti út- svarshækkunina á Alþingi og við fengum ekki rönd við reist. Þegar Alþingi hafði til meðferðar fyrir nokkrum vikum tillögur um hækkun útsvars úr 11% í 12.1% urðu miklar deilur um það á þingi. Ríkisstjórnin studdi þessar tillögur, þó að örfáir þingmenn stjórnarflokkanna hafi setið hjá við endanlega afgreiðslu. Þingmenn Alþýðu flokksins á móti Þingmenn Alþýðuflokksins gengu mjög hart fram í andstöðu við heimildina til útsvarshækk- unar og þingflokkur sjálfstæð- ismanna lýsti andstöðu sinni við þessar tillögur. Umræðurnar um útsvarshækkunina tengdust að sjálfsögðu mjög skattaæði ríkis- stjórnarinnar, sem ekki virðist sjá aðra lausn á neinum fjár- hagsvanda en að hækka skatta. Fellt að hækka framlag úr Jöfnunarsjóði í umræðunum á Alþingi stóð upp hver Alþýðuflokksþing- maðurinn á fætur öðrum og lýsti harðri andstöðu við útsvars- hækkun. Einn þingmanna Al- þýðuflokksins, Jóhanna Sigurð- ardóttir, flutti tilögu þess efnis að framlag til sveitarfélaga úr Jöfnunarsjóði yrði hækkað til að mæta hugsanlegri fjárþörf sveit- arfélaganna og Pétur Sigurðsson flutti tillögu sama efnis, en þó um nokkuð lægra framlag en tillaga Jóhönnu gerði ráð fyrir. Þingflokkur sjálfstæðismanna studdi þessar tillögur, en vegna andstöðu ríkisstjórnarliðsins varð fljótlega ljóst, að þær væru úr sögunni. Alþýðuflokksmenn hneykslaðir Andstaða Alþýðuflokksins við útsvarshækkun linaðist ekkert við það. Bæði í umræðum um það mál svo og fjárlögin gerðu Alþýðuflokksþingmenn mikinn hávaða út af þessu máli. Allar stórhetjurnar eins og Sighvatur Björgvinsson, Vilmundur Gylfa- son og Kjartan Jóhannsson lýstu hneykslun sinni á framferði ríkisstjórnarflokkanna. Dæmi um þennan málflutning er eftirfarandi ræðukafli úr um- ræðum um fjárlög, en þar sagði Sighvatur Björgvinsson: „Útsvar hefur verið hækkað um 10%. Þar með hafa skattar á landslýð verið hækkaðir im 5.1 milljarð. Útsvar er flatur brúttóskattur. Hann tekur ekki tillit til tekna fólks. Þessi skattur lendir ekki síður á lágtekjufólki en öðrum. Þetta var fyrsti skatturinn". (Alþbl. 10.4. 80). Umhyggja fyrir skattborgurunum Þetta var vel og drengilega Þingmenn Alþýðu- flokksins höfðu stór orð um út- svarshækkun á Alþingi. Töldu hækk- unina lið i skattpín- ingarstefnu ríkiss'tjórn- arinnar og að útsvarið kæmi sérstak- lega niður á iágiauna- fóiki. Alþýðuflokkurinn i borgarstjórn Reykvíkinga. Borgarfulltrúarnir orðum þingmanna flokksins um seilast i vasa skattborgaranna. mælt og bar vott um mikla umhyggju fyrir skattborgurun- um. Þannig var afstaða Alþýðu- flokksins á þingi og við sjálf- stæðismenn vorum sammála beitti sér fyrir hækkun útsvars á reyndust vera á móti öllum stóru að ekki væri endalaust hægt að En nú var önnur lota eftir. Ennþá var hægt að hlífa skatt- borgurunum við hækkun út- svara. Tillagan sem samþykkt var á Alþþingi var heimildar- ákvæði. Það var lagt í vald sveitarstjórnanna sjálfra, hvort þær vildu notfæra sér heimild- ina til að hækka útsvör úr 11% í 12.1%. í Borgarstjórn Reykja- víkur kom í ljós, að Alþýðuflokk- urinn hafði tvær stefnur í þessu máli. Með og á móti Á Alþingi var hann eindregið á móti útsvarshækkun, en í borgarstjórn eindregið með hækkuninni. Á Alþingi töluðu þingmenn Alþýðuflokksins af miklum sannfæringarhita um það, að útsvarshækkunin væri. hin mesta misvirða og lágtekju- fólki yrði að hlífa við slíkum skatti. I Borgarstjórn Reykja- víkur töluðu borgarfulltrúar Ál- þýðuflokksins af miklum alvöru- þunga um það, að Reykvíkingar yrðu að greiða hærra útsvar, á því væri full nauðsyn og í þeirri umræðu gieymdist alveg að tala um lágtekjufólkið. Nú sýndum við borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins fram á það að enga nauðsyn bar til að hækka útsvarið. Við fluttum raunhæfar breytingatillögur við fjárhagsáætlunina, sem hefðu gert útsvarshækkun ónauðsyn- lega, ef þær hefðu verið sam- þykktar. Borgarfulltrúar Al- þýðuflokksins snérust gegn þeim tillögum. Þau Björgvin Guð- mundsson og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir töldu það vera allt í lagi að hækka útsvörin á Reykvík- inga. Auðvitað eru það gerðirnar sem endanlega skipta máli. í þessu tilviki reyndist andstaða Alþýðuflokksins við skatta- hækkunum gasprið eitt. Þegar á átti að herða gafst flokkurinn upp og hækkaði skattana. og málgagnsins Tímans. Leit svo út, að bæði trúarsetningin „allt er betra en íhaldið" hefði endanlega sannast og nýr framsóknaráratug- ur væri að hefjast. Úr stjórnarherbúðunum berast hins vegar nú þær fréttir, að jafnvel framsóknarmönnum blöskri óráðsían. Þingflokkur þe:rra fjallar nú um lánsfjáráætl- un þá, sem samin hefur verið undir forystu Ragnars Arnalds fjármálaráðherra. Ofbýður ýms- um, hve langt skuli ganga í erlendum lántökum og varnaðar- orð um það efni hafa meira að segja birst í Tímanum. Þá blasir Ljósm. Mbl. Ól.K.M, það einnig við framsóknar- mönnum, að svonefnd niðurtaln- ingarleið þeirra er fokin út í veður og vind. „Barátta" ríkisstjórnar- innar við verðbólguna hefur ein- kennst af því að auka hraðann á snúningi hennar og telja hana upp, ef svo má að orði komast. Loks er ljóst að lögin, sem kennd eru við „ókrýndan foringja" flokksins, svonefnd Ólafslög, sem voru kóróna sköpunarverks fram- sóknaráratugsins, hafa verið huns- uð í öllum meginatriðum: Aðeins ákvæðin, sem skerða kaupmáttinn halda gildi sínu. Er óhætt að fullyrða, að engin ríkisstjórn hafi jafn skipulega unnið að því að brjóta niður landslög og núver- andi stjórn í aðför sinni að flestum ákvæðum Ólafslaga. Er nú svo komið, að þeir sem bera snefil af virðingu fyrir Alþingi ættu að sjá sóma sinn í því að leggja fram tillögu á þinginu um afnám laganna. Með þetta í huga hljóta fram- sóknarmenn að þinga núna. Kjós- endur flokks þeirra eiga siðferði- legan rétt á skýringu frá mið- stjórninni á því, hvers vegna störf ríkisstjórnarinnar ganga nú svo þvert á stefnu flokksins, sem raun ber vitni. í því efni dugar ekki, að Ólafur Jóhannesson sé „sæmilega ánægður á sinni þóftu" í ríkis- stjórninni, eins og hann orðaði það í útvarpi á dögunum. Að vísu fékkst hann ekki til að lýsa ánægju sinni yfir ríkisstjórninni með sterkari orðum, þótt hart væri að honum sótt í því efni af spyrlum. Segir það síná sögu. Ráðlausir kratar Ýmsir þingmenn Alþýðuflokks- ins hafa ritað greinar hér í Morgunblaðið undanfarnar vikur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við landsmenn, þar sem þeirra eigið málgagn kemur ein- ungis út í þeim tilgangi, að forystugreinar þess séu lesnar í útvarpinu. Af þessum greinaskrif- um má ráða, að krötum er mikið kappsmál að halda þeirri skoðun að mönnum, að þeir hafi stjórnað vel í síðustu ríkisstjórn og hrundið mörgu framfaramálinu í fram- kvæmd, á meðan þeir voru einir við stjórnvölinn. í þessu á við hið fornkveðna, að hverjum þykir sinn fugl fagur. Hins vegar minnast þingmenn Alþýðuflokksins ekki lengur á það, að þeir voru flestir kosnir á þing í fyrsta sinn undir kjörorðinu: Samningana í gildi. Sigldu þeir þar í samfloti með Alþýðubanda- laginu í skjóli pólitískra verka- lýðsrekenda. Og síðsumars 1978 sameinuðust þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason innan Verkamanna- sambands íslands um þá kröfu, að Alþýðuflokkurinn hefði ekki sam- starf við aðra en vinstri flokk- anna. I stjórnarmyndunartilraun- unum um síðustu áramót sýndust kratar aðeins vilja halda sig til vinstri. Og enn standa þeir saman innan Verkamannasambandsins Karl Steinar og Guðmundur J. I stjórnarandstöðu sinni eru kratar því ráðlausir. Þeir eru enn í sömu stöðu og í stjórnarmyndun- arviðræðunum 1978 og í vetur. Með því að halla sér að stefnu Sjálfstæðisflokksins nú í mál- flutningi ætla þeir að leika sama leikinn og 1978, þegar þeir slógust í lið með Alþýðubandalaginu um að gera kröfuna um samningana í gildi að kosningamáli. Það er ekki stórmannlegt að hengja sig þann- ig aftan í annan og reyna jafnvel að yfirbjóða hann í málflutningi. En víða um lönd er þetta einkenni smáflokka, sem tapað hafa áttum og eigin grundvelli. Þau vandræði, sem menn komast í, þegar þeir haga sér þannig í stjórnmálum, hafa síðast komið glögglega fram í „afstöðu" Sjafnar Sigurbjörnsdóttur til útsvars- hækkunar í borgarstjórn Reykja- víkur. Hún greiddi þar atkvæði með hækkun útsvarsins en ræðst síðan á ríkisstjórnina og meiri- hluta Alþingis fyrr að veita sveit- arstjórnum rýmri heimildir til að auka álögur á umbjóðendur sína. Líklega er ekki unnt að komast lengra í pólitísku ráðleysi. Pólitísk léttúð Þau sannindi eru alkunn, að oft vaxi menn með embættum sínum og frama. Margur Alþýðubanda- lagsmaðurinn hlýtur að efast um, að þetta eigi við um nýkjörinn formann þingflokks Alþýðubanda- lagsins, Ólaf Ragnar Grímsson. Hvert málið rekur annað, þar sem hann kemur þannig fram fyrir flokksins hönd, að vafi leikur á, hvort honum sé alvara eða stjórn- ist af pólitískri léttúð. Hátíðleiki mannsins gefur síður en svo til kynna, að hann sé bæði að skopast að sjálfum sér og þeim málstað, sem hann kynnir. Hvað sem því líður hefur honum tekist að gera eitt helsta baráttu- mál flokks síns, svonefnt her- stöðvamál, að aðhlátursefni. Er langt síðan staðið hefur verið jafn illa að kynningu máls bæði að því er varðar efni og aðferð og raun varð á, þegar Ólafur Ragnar efndi til uppákomunnar í veislu Alþing- is fyrir bandaríska þingmenn á leið til Oslo. Ekki er eftirleikurinn betri, því hvort tveggja er eins- dæmi, að alþingismaður hafi skot- ið sér á bak við erlendan sendi- herra til að verja gerðir sínar og síðan setið uppi með yfirlýsingu frá sendiherranum þess efnis, að ekki sé rétt eftir honum haft. í höndum Ólafs Ragnars Gríms- sonar sýnist Jan Mayen-málið á sömu leið. Norsk blöð hafa eftir honum, að verði Keflavíkurstöðin flutt til Jan Mayen sé hann reiðubúinn til að viðurkenna norsk yfirráð á eyjunni. í slíkri yfirlýsingu felst tvennt: Ólafi Ragnari er alveg sama um hags- muni Islendinga gagnvart Jan Mayen í hafinu og á landgrunninu. Hann er haldinn sömu blindu og skoðanabræður hans, að íslend- ingar hafi gert varnarsamninginn við Bandaríkin fyrir aðra en sjálfa sig. Hugsun hans byggist á þeirri rökvillu, að varnarliðið sé einung- is hér til að verja önnur ríki en Island. Næði stefna hans fram myndu íslendingar bæði verða af því, sem þeir krefjast gagnvart Norðmönnum umhverfis Jan May- en, og einnig sitja uppi varnar- lausir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.