Morgunblaðið - 27.04.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.04.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980 19 Svölukaffi í Súlna- salnum 1. maí EINS og undanfarin ár efna Svölurnar. íélag fyrrverandi og núverandi flugfreyja. til kaffi sölu i Súlnasal Hótels Sögu 1. maí. Er þetta gert til að efla fjárhag félagsins, sem hefur það aðalmarkmið að vinna að velferð þeirra, sem minna mega sín í þjóðf élaginu. Á þessu starfsári veitti félagið þremur kennurum þroskaheftra barna styrki til framhaldsnáms, samtals að upp- hæð 1,2 milljónir króna, en á næsta starfsári er ætlunin að veita í sama skyni 2,5 milljónir. Auk þess verða á næstunni veitt- ar 2 milljónir króna í kennslu- gagnamiðstöð fyrir sérkennslu Oskjuhliðarskóla. Auk kaffisölunnar í Súlnasaln- um á fimmtudaginn fer fram tízkusýning á fatnaði frá verzlun- unum Urði og Lótus, og að vanda verður skyndihappdrætti. Súlnasalurinn verður opnaður kl. 14 fimmtudaginn 1. maí, og Um leið og kaffisalan fer fram verður tízkusýning þar sem sýnd verða föt frá verzlununum Urði og Lótus, en mynd þessi var tekin af Bylgju Tryggvadóttur á tizkusýningunni i fyrra. verða þar á boðstólum heimabak- aðar kökur og smurt brauð. Formaður Svalanna er Edda Gísladóttir Laxdal, en í stjórninni eru einnig Erla Ólafsdóttir, Sig- rún Sigurðardóttir, Ragnhildur Björnsson og Sólveig Hannam. Formaður fjáröflunarnefndar er Ragna Þorsteins. Norðmenn gefa rit Kirkju- og kennslumála- ráðuneytið norska hefur sent Örnefnastofnun Þjóminja- safns að gjöf tvö stór, norsk ritverk: hið fágæta og afar verðmæta norska fornbréfa- safn, Diplomatarium Norveg- icum, samtals 21 bindi, og 13 bindi, sem komin eru út af ritverkinu Bygd og by i Norge. Rit þessi eru mikilvæg hjálp- argögn við rannsókn íslenzkra og norskra örnefna. (Frá Örnefnastofnun Þjóð- minjasafns). Ný umbrotahrina á Kröflusvæði í maí? LAND hefur risið á Kröflusvæðinu síðan um- brotunum þar lauk í síð- asta mánuði. Landrisið var mjög hratt fyrstu dagana eftir umbrotin, en síðan hefur dregið úr risinu eins og venja er til. Jarðvís- indamenn búast við að land hafi náð sömu hæð og fyrir síðustu umbrot fyrir miðjan maí. Axel Björnsson jarðeðlis- fræðingur sagði í gær, að hið hraða landris mætti túlka sem aukið innrennsli kviku í kvikuhólfið. Það sýndi að á þessu svæði væri óróa alls ekki lokið, en spurningin væri sem áður í hvaða myndumbrotin yrðu. STALHE SINDRA Fyrirliggjandi i birgðastöö Bitajárn Allar algengar stæröir U.N.P. H.E.B. I.P.E. LJ H I Borgartúni31 sími27222 Hamlyn-bók . fylai? hamináiuóskunum! J^rchiteáu Dricd U ÍONK MMUIS ÍBKB.1IS1B ^RINES S? Colourful 1fci «ai*&**V r M\m w Companíon P OME. M MMIWNCl L Tra\ellers vOQi teæuKí Handbock lAMltSW n Oix: WNMM , Látió Hamlyn-bók fylgja hamingjuóskunum! Myndin sýnir aðeins örlítið brot af hinum sívinsælu gjafabókum frá Hamlyn útgáf- unni. Hamlyn bækurnar fást í úrvali hjá eftir- töldum bóksölum: Bókabúð Máls og Menningar. Bókaverzlun Snæbjarnar. Bókaverzlun Andrésar Níelssonar, Akranesi. Bókaverzlun Jónasar Tómassonar, fsafirði. Bókaverzlun Jónasar Jóhannssonar, Akureyri. Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar, Húsavík. Bókaverzlun Höskuldar Stefánssonar, Neskaúpstað. Bókabúðin Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum. Bókabúð Keflavíkur. Tjarnargötu, Hamlyn umboðið Hafnarstræti 4 Reykjavík S:14281.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.