Morgunblaðið - 27.04.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRIL 1980
23
Breytingartillögur
Alþýðuflokksins:
Skattstigar:
15% af fyrstu 2,5 milljónunum
30% af næstu 3,5 milljónum
50% af 6 milljónum og yfir
Persónuafsláttur: 400.000 krónur
Barnabætur:
140.000 meö 1. barni
215.000 meö ööru barni og fleirum
55.000 barnabótaviðauki með börnum undir 7
ára
Barnabætur einstæöra foreldra 270.000
Áhrif: 35 milljaröa tekjur fyrir ríkissjóð, miöaö viö
47% tekjuaukningu milli áranna 1978 og 1979, sem
þá þýöir 33 milljarða miðað viö 45% tekjuaukningu,
eins og reiknað er meö í breytingartillögum stjórnar-
liðsins og fyrstu breytingartillögum sjálfstæö-
ismanna.
Breytingartillögur
sjálfstæðismanna
fyrir 3ju umræðu:
Skattstigar:
20% af fyrstu 2,5 milljónunum
30% af næstu 3 milljónum
40% af 5,5 milljónum og yfir
Persónuafsláttur: 525.000 krónur (óbreytt)
Barnabætur:
150.000 meö 1. barni
215.000 meö ööru barni og fleirum
280.000 með hverju barni einstæðra foreldra
65.000 barnabótaviðauki meö börnum undir 7
ára (breyting: einstæöir foreldrar fá líka barna-
bótaviöauka).
Áhrif: 13—14 milljarða lækkun frá tillögum ríkis-
stjórnarinnar. Sjálfstæöismenn reiöubúnir til aö
standa að 10% skyldusparnaði á tekjur yfir 7 milljónir
króna, sem kæmi í staö 50% skattþreps hinna og
lækkaöi fjárþörf ríkissjóðs vegna skattstiga sjálf-
stæöismanna um 3 milljarða króna.
Breytingartillögur
Ragnars Arnalds
fyrir 3ju umræðu:
Skattstigar (óbreyttir frá samþykkt eftir
2. umræöu):
25% af fyrstu 3 milljónunum
35% af næstu 4 milljónum
50% af 7 milljónum og yfir
Lágmarksfrádráttur einstaklinga skal vera 550.000
Persónuafsláttur: 505.000 krónur
Barnabætur:
150.000 meö 1. barni
215.000 meö ööru barni og fleirum
280.000 meö hverju barni einstæöra foreldra
65.000 barnabótaviðauki meö börnum undir 7
ára (breyting: einstæðir foreldrar fá líka barna-
bótaviöauka).
Áhrif: Heildartekjur ríkissjóös nær óbreyttar frá
breytingartillögum stjórnarliösins, þar sem lækkun
persónuafsláttar gefur ríkissjóöi 2,6 milljaröa í
tekjuauka á móti 2,7 milljaröa kostnaöi vegna
hækkunar lágmarksfrádráttar og breytinga á barna-
bótum einstæðra foreldra.
Guómundur J. Guðmundsson þyng-
ist stöóugt í taumi Alþýðubanda-
lagsmanna í skattamálum. „Það á
eftir að sjást og sýna sig,“ segir
hann um sameiningu sína á kröfum
Verkamannasambandsins um
skattalækkanir og þingmannskröf-
um um skattahækkanir.
Halldór Blöndal felldi sig ekki við
niðurstöðu þingflokks sjálfstæð-
ismanna um tekjuskattsstiga og
boðaði breytingartillögu í neðri
deild. Stöðugar frestanir málsins
dugðu svo sjálfstæðismönnum til
að koma sér niður á einn skattstiga.
milljarða í stað 46 milljarða, sem
ríkisstjórnin vilji fá.
Fjármálaráðherra lýsti því
strax yfir að hann væri ekki
hlynntur frekara hringli með
skattstigann, heldur yrði vandi
framangreindra hópa leystur með
öðrum hætti. Sjálfstæðismenn
settust á rökstóla og föstudaginn
18. apríl komu fulltrúar þing-
manna í stjórn verkalýðsmálaráðs
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúa
flokksins í fjárhags- og viðskipta-
nefnd éfri deildar sér niður á
tillögur að nýjum skattstiga, sem
fól í sér 20, 30 og 40% skatt og var
40% markið sett við 5 milljónir
króna.
Sl. mánudag, 21. apríl, hafði
fjármálaráðherra fundið sína
lausn á málinu, sem fólst í 550
þúsund króna lágmarksfrádrætti
fyrir einhleypinga og einstæð for-
eldri, lækkun á persónuafslætti og
breytingum á barnabótum ein-
stæðra foreldra. Lækkun persónu-
afsláttarins er talin gefa ríkissjóði
2,6 milljarða króna í tekjuauka, en
hins vegar kostar hækkun lág-
marksfrádráttarins og breyt-
ingarnar gagnvart einstæðum for-
eldrum tæpa 2,7 milljarða, þannig
að fjármálaráðherra bætir sér
skattalækkun einhleypinganna
með skattahækkunum á hjónum.
Þennan sama dag gekk svo þing-
flokkur sjálfstæðismanna frá nýj-
um tillögum að tekjuskattstiga
með þeim breytingum, að 40%
markið var sett við 5,5 milljónir.
Sjálfstæðismenn héldu persónu-
afslættinum óbreyttum en tóku
upp breytingar fjármálaráðherra
á barnabótum.
Sjálfstæðismenn sögðu sinn
nýja skattstiga þýða 13—14 millj-
arða króna skattalækkun frá því
sem ríkisstjórnin ráðgerði, en
sögðust reiðubúnir, ef aðrir vildu
fallast á tekjuskattstiga þeirra, til
að standa að afgreiðslu á 10%
skyldusparnaði á tekjur yfir 7
milljónir króna, sem kæmi þá í
stað 50% skattþreps hinna flokk-
anna. Þessi skyldusparnaður
myndi lækka fjárþörf ríkisins
vegna skattstiga sjálfstæð-
ismanna úr 13 til 14 í 10 til 11
milljarða, sem mætt yrði með
niðurskurði.
Þegar hér er komið sögu voru
allir aðilar í raun búnir til 3ju ||
umræðu um málið, útvarpsum-
ræðunnar. Stjórnarliðar lögðu
áherzlu á að hún yrði sem fyrst og
nefndu til sl. miðvikudag, síðasta
vetrardag. Stjórnarandstæðingum
leizt hins vegar ekkert á þann dag.
Síðdegið, sem til greina kom, töldu
þeir ekki vænlegt til þess að mál
þeirra næði hlustum landsmanna ||
og allir voru stjórnmálamennirnir
sammála um, að útvarpsumræður
frá Alþingi væru ekki heppilegt
útvarpsefni að kvöldi síðasta vetr-
ardags. Stjórnarliðar vildu þá að
umræðan færi fram á föstudag,
25. apríl, en föstudagar eru ekki
reglulegir þingdagar og voru þing- Ijj
menn því búnir að líta hýru auga
til þess að eiga þar frídag eftir
sumardaginn fyrsta.
Stjórnarliðar voru harðir á )jj
föstudeginum, en sættust svo á, að jj
útvarpsumræðunni yrði frestað til S
mánudagsins 28. apríl gegn loforð-
um stjórnarandstöðunnar um að
sá frestur yrði ekki til að tefja |j
afgreiðslu málsins og stefnt yrði
að því að neðri deild afgreiddi það ■
á miðvikudag.
Þegar þetta er skrifað, síðdegis ||
á föstudag, stefnir því í útvarps-
umræður um skattamálin á mánu-
dagskvöldið.
— fj
r ^ v , -
UNGIR lEfn ALDNIR
ERU (TiEÐ
FORD mU/TANG ACCENT í mAÍ
PEUGEOT 305 í OKTÓDER
íslensk skemmtisnekkja meö öllum búnaöi til úthafssiglinga, aö
verömæti um 18,2 milljónir. Dregin út í ágúst.
100 bílavinningar á 2 og 3 milljónir hver, þar af tveir valdir bílar:
Ford Mustang í maí. Peugeot 305 í október.
Auk þess glæsilegur sumarbústaöur, 10 íbúöavinningar á 10 milljónir
og 35 milljónir, 300 utanferöir á 500 þúsund og ótal húsbúnaöarvinn-
ingar.
Sala á lausum miöum og endurnýjun ársmiöa og flokksmiöa
stendur yfir.
Dregiö í 1. flokki 6. maí.
miÐI ER mÖGULEIKI
Dúum ÖLDRUÐUm
ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD