Morgunblaðið - 27.04.1980, Side 32

Morgunblaðið - 27.04.1980, Side 32
r Síminn á afgreiðslunni er 83033 SUNNUDAGUR 27. APRfL 1980 PIERPOHT OUARTZ — úr Þessi heimsþekktu úr fást hjá flestum úr- smiðum. Ljósm.: Rax. Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins: Hljótum að stefna að fullverð- tryggðum lánum sem fyrst Samningamál flug- manna í strand: FÍ A telur kjarasamninga brotna og neitar viðræðum FÉLAG ísl. atvinnufluKmanna hef- ur ákveðið að taka ekki þátt i samnindaviðræðum við F'luslciði þar sem félajíið telur að kjarasamn- im;ar. sem nú er unnið eftir, séu ekki haldnir. A síðasta samninKa- fundi. er var á föstudag, lýstu fulltrúar FÍA því yfir að þar sem kjarasamninjíurinn væri ekki hald- inn sæi félaxið ekki ástæðu til að taka þátt í viðra*ðum um nýja kjarasamninga. Að sögn Gunnars G. Schram hafa verið fundir í vikunni og taldi hann nokkuð hafa þokað nær markinu, en 2 undirnefndir starfa og fjallar önnur um sameiningu starfsaldurs- lista flugmannafélaganna og hin um kjarasamningana sjálfa. Nýr fundur er boðaður á morgun, en fulltrúar FÍA munu ekki taka þátt í honum. Þau atriði er FÍA menn telja að brotin séu eru varðandi greiðslur í sjúkratryggingasjóð, einkennisföt og útreikning áhafnarþarfar, en Flug- leiðir segja hér um túlkunaratriði að ræða. Um atvinnuástand flugmanna hafa fulltrúar Loftleiðaflugmanna upplýst Mbl. að það sé sæmilegt hjá þeim í svipinn, endurráðnir hafi verið þeir 9 flugmenn er sagt var upp og útlit fyrir næg verkefni. Fjórir flugmenn FÍA af 9 er sagt var upp, hafa ekki verið endurráðnir og mun nokkur urgur í FIA mönnum m.a. vegna þess að senn bætist í flugflota Flugleiða ný Boeing 727 flugvél og eldri vél af þeirri gerð ekki enn seld. Telja þeir útlit fyrir að sú vél standi verkefnalítil í sumar, en þota Arnar- flugs ásamt áhöfn verði fengin til að annast ákveðinn hluta áætlunarflugs Flugleiða. Telja þeir eðlilegra a.m.k. meðan eldri Boeing vélin er ekki seld, að þeir annist allt flug Flugleiða, en ekki verði leigð Arnarflugsvélin. „MÉR sýnast ýmis hættumerki á lofti hjá okkur. Staða bankanna versnaði mjög i þessum mánuði, það var mikið fjárútstreymi og það stefnir í erfiðleika með við- skiptajöfnuðinn við útlönd. það er mikil gjaldeyrisnotkun. Þensl- an er þvi mikil. Fiskaflinn hefur verið mikill, sem út af fyrir sig er ánægjulegt, en lítið sem ekkert af þeim viðbótartckjum hefur skilað sér í sparnaði. Ég tel því, að við hljótum að stefna að fullverð- tryggðum sparireikningum sem fyrst og það nær þá auðvitað til útlána líka," sagði Steingrímur Hermannsson formaður Fram- sóknarfiokksins í samtali við Mbl. í gær. Steingrímur sagði Ijóst, að fyrsta markmið niðurtalningar ríkisstjórnarinnar næðist ekki, þar sem nauðsynlegar verðlags- leiðréttingar áður en til niðurtaln- ingarinnar kemur stefndu í 4% hækkun á vísitölu, en gert hefði verið ráð fyrir 2% hækkun þeirra vegna og niðurtalningamarkið við mánaðamót maí/júní sett á 8%. Þannig stefndi í 12% vísitölu- hækkun 1. júní í stað 10%, sem ríkisstjórnin hefði reiknað með. „Við verðum því að standa fastar á bremsunni í framtíðinni og reyna að tryggja með öllum ráðum að það markmið ríkisstjórnarinn- ar náist, að verðbólgan á árs- grundvelli verði svipuð hér og í helztu viðskiptalöndum okkar 1982,“ sagði Steingrímur. Kvaðst Steingrímur hafa lagt fram tillögu í ríkisstjórninni um að aðilar hennar settu saman nefnd til að gera tillögur um betri samræmingu opinberra aðgerða í efnahagsmálum. Fjörur gengn- ar og leitað úr lofti FJÖRUR á Suðurlandi milli Hólsár í Vestur-Landeyjum og Dyrhólaeyj- ar voru gengnar í gær og leitað reks úr vélbátnum Jökultindi er fórst siðdegis sl. miðvikudag. Þá flaug flugvél Landhelgisgæzlunn- ar yfir strandlengjuna og Vest- mannaeyjar. Félagar úr Björgunarfélaginu í Vestmannaeyjum ætluðu í gærdag að halda að þeim stað sem talið er að lóðað hafi verið á Jökultind á um 50 metra dýpi skammt norðvestur af Vestmannaeyjum. Átti þá að kanna staðinn og flakið. Auk björgunar- sveitarmanna sem gengu fjörur í gær hafa bændur verið beðnir að fylgjast með ströndinni ef eitthvað kynni að reka hjá þeim síðar. Mun mikilvægara en Jan Mayenmálið segir Matthías Bjarnason um fiskveiðar og fiskverndunarmál við Grænland „ÉG HEF fyrir löngu látið hafa það eftir mér, að það ætti fyrir löngu að vera búið að taka upp viðræður við Dani og Efnahagshandalagið um veiðiréttindi og fisk- verndunarmál á miðlín- unni við Grænland,“ sagði Matthías Bjarna- son alþingismaður í sam- tali við blaðamann Morg- unblaðsins í gær. Kvaðst Matthías vera þeirrar skoðunar, að hér væri á ferðinni mun meira hags- munamál fyrir íslend- inga heldur en um væri að ræða við Jan Mayen, án þess að hann vildi á nokkurn hátt gera lítið úr mikilvægi samninga við Norðmenn um það svæði. „I lok viðræðnanna við Efnahagsbandalagið á sínum tíma settum við fram tillögu eða grundvöll að fiskvernd- unarsamningi,“ sagði Matt- hías ennfremur, „en ekki varð af viðræðum um hann vegna þess að á þeim tíma hafði bandalagið ekki áhuga á öðru en fiskveiðiheimildum sér til handa. En á grundvelli þess sem þá var lagt fram hefðum við fyrir löngu átt að vera búnir að hefja viðræður. Þó Jan Mayen sé mikilvægt mál fyrir okkur, þá eru þessi mál sjálfstæð og aðgreind, og sé útfærsla Dana fyrir norð- an 67. gráðu höfð í huga, er augljóst að í reynd skiptir það mál okkur miklu meira máli en Jan Mayenmálið. Þarna eru sameiginlegir fiskstofnar, loðnuveiðin gæti öll orðið handan Grænlands- línunnar síðla sumars, á haustin og fram á vetur, rækjumið eru þarna, karfa- mið, þorskurinn gengur á milli Islands og Grænlands, kolmunnaveiði er þarna mik- ilvæg og fleira mætti nefna. Því er ekki hægt að bíða öllu lengur að mínum dómi. Óska verður viðræðna við Dani og Efnahagsbandalagið um þessi mál, svo nauðsynlegt sem okkur er að farsælt samkomulag takist um þau,“ sagði Matthías að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.