Morgunblaðið - 04.05.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1980
3
Manuela og
Helga slógu
í gegn ...
EgilsstöAum. 2 mai.
MANUELA Wiesler og Helga
Ingóifsdóttir héldu tónleika i
Egilsstaðakirkju 1. maí á
vegum Tónlistarfélagsins á
staðnum og léku þær verk
fyrir sembal og flautu.
Þeim stöllunum var ákaf-
lega vel fagnað enda leikur
þeirra frábær. Tónleikana
sóttu rúmlega 190 manns.
Formaður Tónlistarfélagsins
er Guðrún Þorbjarnardóttir á
Egilsstöðum.
Myndin var tekin á Egils-
staðaflugvelli þegar Helga og
Manuela komu hingað og sjást
þær ásamt formanni Tón-
listarfélagsins.
— Jóhann.
Erindi um
sund fiska
DR. CLEMENT Shreen
Wardle frá Aberdeen í Skot-
landi mun flytja fyrirlestur
um sund fiska mánudaginn 5.
maí kl. 16.00 að Grensásvegi
12.
Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á ensku og nefnist: „The
Physiology of Fish Swim-
ming“. Hann er haldinn í boði
rannsóknastofa í lífverkfræði
og lífeðlisfræði og er öllum
opinn.
JNNLENT
Sovéskir
kvikmynda-
dagar í Rvík
M.Í.R. gengst fyrir sovéskum
kvikmyndadögum í
Reykjavík dagana 5.-9. maí
n.k. Sýndar verða f jórar sov-
éskar kvikmyndir, sýn-
ingarnar fara fram í Laugar-
ásbíói.
Myndirnar eru „Traust,"
„Sónata á vatninu", „Stjúp-
móðir Samanischvili" og „Og
hér ríkir kyrrð og friður".
Við opnun kvikmyndavik-
unnar verða viðstaddir tveir
fulltrúar frá Sovétríkjunum,
Þeir Gunar Tsilinsky og N.
Orlov.
Kvikmyndin Traust verður
sýnd mánudaginn 5. maí, S6n-
ata í vatninu 7. maí, Stjúp-
móðir Saminschvili 8. maí. Og
hér ríkir kyrrð og friður 9.
maí.
Nauðsynlegt að flytja alla
vöruafgreiðslu í Sundahöf n
— sagði Halldór H. Jónsson stjórnarformaður Eimskips á aðalfundi félagsins
HALLDÓR H. Jónsson
stjórnarformaður Eim-
skipafélags Islands sagði
m.a. í ræðu sinni á aðal-
fundi félagsins á föstudag-
inn, að með miklum fyrir-
huguðum breytingum á
skipastól félagsins á næstu
árum, myndi þörfin fyrir
aukið athafnarými á og
upp af hafnarbakka
aukast mjög mikið. Þessar
breytingar hefðu það í för
með sér að sú hafnarað-
staða sem félagið býr við
nú verður mjög óhag-
kvæm, en félagið hefur nú
fimm til sex viðlegur í
Reykjavíkurhöfn, með tíu
vöruafgreiðslum í gömlu
höfninni og í Sundahöfn.
Halldór sagði að til þess að
aðstaða félagsins yrði viðun-
andi í framtiðinni þyrfti hún
öll að flytjast í Sundahöfn og
nefndi hann í því sambandi
vilyrði hafnarstjórnar
Reykjavíkur og borgarstjórn-
ar Reykjavíkur frá árinu 1975
til félagsins um viðbótar-
landrými í Sundahöfn við
Kleppsbakka. Halldór sagði
að enn hefði ekki fengist
samningur við borgaryfirvöld
um þessa aðstöðu, en þegar
hann fengist og aðstaðan
kæmist í gagnið myndi skap-
ast viðunandi aðstaða í
Reykjavík til fyrirsjáanlegrar
næstu framtíðar.
í sambandi við þessar við-
ræður við hafnaryfirvöld
sagði Halldór að rætt hefði
verið um, að Eimskipafélagið
flytti úr gömlu höfninni í
tveimur áföngum.
25. maí - örfá sæti laus.
14. júní - uppselt.
28. júní - fá sæti laus.
5. júlí - uppselt í 3 vikur.
I2„ 19., 26. júlí - laus sæti.
2. og 9. ágúst - biðlisti.
16., 23., 30., ágúst
nokkur sæti laus.
/ 8. og 29. maí - uppselt.
í 5. júní - uppselt í 3 vikur.
19. júní - laus sæti.
26. júní - uppselt.
10., 17., 31., júlí-fá sæti laus.
7. ágúst — uppselt í 3 vikur.
121. og 28. ágúst - örfá sæti i
i laus /
\ 11. og 18. september M
\ - uppselt. M
L \ 2. október -
\ V laussæti.^X /
31. maí - örfá sæti laus.
21., 28. júní - sæti laus.
5., 12., 19., 26. júlí
nokkur sæti laus.
2. ágúst - uppselt í 3 vikur.
9. ágúst - fá sæti laus.
16., 23., 30. ágúst - laus
sæti.
Flugfarseðlar um allan heim með bestu kjörum
Sérfrœðiqgq&Jzgggargjöldum. ■•*- i -
MBHBMMHaMMMi • f »*»- ' »“
....... 1 ííltW
Pantið réttu
ferðina tíman
lega
ára reynsla í ferðaþjónustu tryggir beztu kjörin
Fjölbreyttasta ferðaúrvalið er hjá Útsýn
Costa
del Sol
Lignano
Gullna
ströndin
Rhodos
Portoroz
JTSYIV
Austurstræti 17. Símar 26611 og 20100