Morgunblaðið - 04.05.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 04.05.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1980 Háskólafyrirlestur um kenningu Roberts Nozicks: Er lágmarksríkið eitt réttlætanlegt? í DAG ílytur Hannes Hólmsteinn Gissurarson sagnfræðingur fyrirlestur i Háskóla íslands. Er hann fluttur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki i stofu 101 í Lögbergi og hefst kl. 14.30. Nefnir Hannes fyrirlestur sinn: Er lágmarksríkið eitt réttlætan- legt? og fjallar hann að mestu leyti um kenningu ungs banda- rísks heimspekings, Roberts Noz- icks, um ríkið og réttlætið. Bók Nozicks, Stjórnleysi, ríki og staðleysur (Anarki, State and Utopia), kom út árið 1974 og vakti mikla athygli og einróma lof fræðimanna og verðlaun fyrir ritsnilld en höfundurinn beinir í bókinni rökstuddum skeytum að mörgum viðteknum stjórnmála- skoðunum nútímans. Hann telur að frekari ríkisafskipti en þau að gæta laga og réttar séu óréttlæt- anleg, meðal annars allar tilraun- ir til að tryggja svonefnt „félags- legt réttlæti". Robert Nozick heimspekingur. Hannes Hólmsteinn Gissurarson sagnfræðingur. VÉRZIUNARBANKINN Spyrjið um Safnlánið og fáið bækling í afgreiðslum bankans. Bridge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON ÍSLANDSMÓTINU í bridge í sveitakeppni lýkur i dag. Alls taka 8 sveitir þátt i lokakeppn- inni. Keppnin hefir aldrei áður verið eins jöfn og spennandi og hafa flestir leikirnir endað með jafntef li eða því sem næst i fyrstu fjórum umferðunum. Sveit Hjalta Elíassonar var þá í efsta sæti með 56 stig og hafði unnið alla leiki sína. Sveit Þórar- ins Sigþórssonar var í öðru sæti með 54 stig en hafði þó tapað tveim leikjum af fjórum. Sveit Sævars Þorbjörnssonar var í þriðja sæti með 52 stig og sveit Óðals fjórða með 46 stig. Svo jöfn er keppnin að sex sveitir af átta eiga góða möguleika til að vinna mótið. Bæjarkeppni milli Kópavogs og Seifoss Árleg sveitakeppni vinafélag- anna Bridgefélags Kópavogs og Bridgefélags Selfoss var haldinn föstudaginn 25. apríl. Kópavogsmenn sóttu Selfyss- inga heim og var spilað í Tryggvaskála. Sex sveitir tóku þátt í keppninni frá hvoru félagi og 32 spil spiluð við sveit. Úrslit urðu að Bridgefélag Kópavogs sigraði á öllum borðum og hlaut samanlagt 105 stig gegn 15 stigum heimamanna. Verðlaun var veglegur far- andbikar gefinn af Grími Thor- arensen BK og Guðmundi Geir Ólafssyni BS en þeir félagar eru heiðursfélagar Bridgefélags Selfoss. Fyrri farandbikar hafði BK unnið til eignar þar sem félagið hafði sigrað BS þrjú undangengin ár. Bridgefélag Kópavogs Fimmtudaginn 8 maí n.k. verður spilaður einskvölda tímenningur og verður keppnin lokaspilakvöld keppnisársins. Að spilamennsku lokinni verða verðlaun afhent fyrir keppnisár- in 1978-1979 og 1979—1980. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í aðalsveitakeppni, barometer, butler, hraðsveita- keppni og tvímenningi. Bridgefélag kvenna Eftir þrjár umferðir í hrað- sveitakeppni bridgefélags kvenna með þátttöku 15 sveita eru efstu sveitirnar þessar: Dóra Friðleifsdóttir 1664 Sigrún Pétursdóttir 1641 Alda Hansen 1621 Guðrún Bergsdóttir 1584 Hrafnhildur Skúladóttir 1558 Bridgefélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Starfsemi BRE 1979-1980 lauk með tveggja kvölda Hrað- sveitakeppni og var keppt um bikar sem Hraðfrystihús Eski- fjarðar gaf. í 5 efstu sætum urðu: Sveit stig Kristjáns Kristjánssonar 1269 ólafs Bergþórssonar 1254 Guðmundar Baldurssonar 1194 Magnúsar Bjarnasonar 1178 Bjarna Garðarssonar 1155 Ennfremur var kosin ný stjórn fyrir næsta tímabil. Formaður er Guðmundur Bald- ursson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.