Morgunblaðið - 04.05.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.05.1980, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1980 Hitaveita Reykjavíkur heimsótt fyrir skömmu, en verið er að vinna kvikmynd um hana. „Super 8W* kvikmyndahátíð Kvikmyndaklúbbs Álftamýrarskóla í dag: Sýndar verða 25 kvikmyndir gerðar af nem- endum skólans Þar af ein, Haukur Þór Hauksson, sem verður frumsýnd á hátíðinni Kvikmyndaklúbbur Álfta- mýrarskóla stendur í dag fyrir kvikmyndahátíð, „SUP- ER 8’80“ og verða þar sýndar 25 8 mm kvikmyndir og flest það sem tengist kvikmynda- gerð áhugamanna. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem slíkur áhugamannaklúbbur stendur fyrir kvikmyndahátíð hér á landi, en áður hafa Samtök áhugamanna um kvikmynd- agerð haldið slíkar hátíðir og eru reyndar með á þessari hátíð. Sýndar verða verð- launamyndirnar frá tveimur síðustu hátíðum samtakanna. Marteinn Sigurgeirsson kennari, sem hefur aðstoðað nemendur skólans í þessari iðju sinni, auk þess að sjá um kennslu í kvikmyndagerð, sem er valgrein í 9. bekk skólans, sagði í samtali við Mbl. að ástæðan fyrir því að klúbburinn færi út í það að halda kvikmyndahátíð, væri sú að liðin væru fimm ár frá því að hafist var handa fyrir alvöru við kvikmyndagerð innan veggja skólans. Annars segir Marteinn m.a. um þróun kvikmyndagerðar í skólanum í sýningarskrá: „Fyrir um það bil þremur árum fóru kennarar skólans í skemmtiferð austur í sveitir. Ekki var það svo merkilegt að það þurfi að rifja upp nú áratug síðar, nema hvað Karl Jeppesen hafði. með sér 16 mm kvikmyndatökuvél, sem hann mundað í hinar ýmsu áttir sem eru þær sömu og í dag. Geta menn því áttað sig á og endurlifað augnablik líðandi stundar. Með mynda- vélinni velur þú stutt brot úr sögunni til geymslu í lifandi formi, ef þú ert með kvik- myndavél, en frystir augna- blikið ef um ljósmynd er að ræða. Ekki ýkja merkilegt segir þú. Það hugsar maður oft á líðandi stundu. Finnst ekki taka því að vera að þessu „myndaveseni". Tíminn segir hins vegar oft annað. Þá líða hér um það bil fimm ár. Undirritaður hafði ekki áhuga á þeim leikritum sem voru í handritamöppum þegar átti að fara að æfa Frá starfinu í fyrravetur. Unnið að gerð myndar um flug, en sú vinna tók á þriðja ár. Nokkrir hinna ungu kvikmyndagerðarmanna i útvarpsupptöku fyrir nokkrum árum, er hróður þeirra barst fyrst út. Tveir upprennandi kvikmynda- gerðarmenn i heimsókn hjá sjónvarpinu i vetur. undir jólaskemmtun. Því var leitinni að áhugaverðu verk- efni beint í ýmsar átti. Fyrir valinu varð gömul upptrekkt tökuvél, sem innbyrti vísi að litlu skaupi hjá 4,—L ’74—’75. Um þær mundir hófu þeir félgar Karl Jeppesen og Orl- ygur Richter, töku myndar- innar „Det store roveri“, en þar komu flestir kennarar skólans við sögu þegar upp var staðið. Veturinn 1975-1976 hófst klúbbstarfsemi tengd Æsku- lýðsráði Reykjavíkur. Þá var notast við þá upptrekktu auk véla frá nemendum. Gerðar voru stuttar grínmyndir og skaup, grín um kennara og nemendur sem hefur verið fastur liður síðan. Þá var gerð fyrsta fræðslumyndin um umferðarmál. Þá er svo 1976—1977 sem tæknibyltingin hefst og hljóðsýningavél er keypt til skólans, og hófst þá gerð mynda sem tengdar voru náminu fyrir alvöru, auk þess sem gerð var mynd um náms- för 7. bekkjar skólans. Veturinn 1977—1978 var keypt hljóðtökuvél og gerðar nokkrar myndir m.a. mynd um reykingar, sem sýnd var á Hótel Loftleiðum. Veturinn eftir er svo fyrsta tilraunin til þess að framleiða leikna mynd gerð, er nefndist Brunuvallabræður og var frumsamin við hana tónlist. Þá tókum við þátt í Lista- hátíð barnanna á Kjarvals- stöðum og sýndum þar 10 myndir. Á yfirstandandi ári er svo kvikmyndun og ljósmyndun tekin upp sem valgrein í 9. bekk, 2 tíma í viku og voru 7 nemendur í vetur. Næsta vet- ur hafa hins vegar 14 nem- endur látið skrá sig. Kvik- myndaklúbburinn var svo formlega stofnaður í vetur og tók hann á sig fast form.“ Aðspurður um uppbygg- ingu námsins sagði Marteinn að farið væri yfir öll helztu atriði kvikmyndagerðar, s.s. gerð handrits, tökuna sjálfa, klippingu og hljóðvinnslu. A kvikmyndahátíðinni verður frumsýnd ein mynd, Haukur Þór Hauksson, sem tveir nemendur skólans hafa samið og unnið að öllu leyti. Þá sagði Marteinn það skoðun sína að auka ætti kvikmyndagerðarkennslu í skólunum almennt enda kæmi hún inn á mjög mörg svið námsins eins og t.d handavinnu og íslenzku. „Draumurinn er svo auðvit- að að komast í samband við erlenda aðila til þess að skiptast á efni og fá almenni- legan samanburð," sagði Marteinn að síðustu. Hátíðin verður opin frá 13.00—18.00 og verða sýndar myndir í fjórum stofum sam- tímis, auk þess sem gestum verður gert kleift að prófa hina ýmsu þætti kvikmynda- gerðar með eigin höndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.