Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 Leituðu að flóttamönnum áður en við létum úr höfn — ENGINN flóttamannastraum- ur var hafinn frá Kúbu þegar við vorum þar, en þarna er mun meira eftirlit með ferðum okkar og strangar fylgst með öllum athöfnum en við eigum að venjast og leitað vandlega í skipinu þegar við fórum til að athuga hvort nokkrir laumufarþegar væru um borð, sagði Hafliði Baldursson skipstjóri á flutn- ingaskipinu ísnesi, sem sigldi til Kúbu nýverið. —Við fórum frá landinu í end- aðan febrúar og var ferðinni heitið til Kúbu með loðnumjöl, sem við höfðum lestað á þremur stöðum á landinu. Siglingin suður tók 16 daga, en mikil bræla var svo til alla leið, sem tafði talsvert fyrir okkur, en leiðin er um 3.800 sjómílur. Þegar við komum til Isabella á laugardagskvöldi voru 4—5 vindstig og lóðsinn komst ekki út og því urðum við að bíða betra veðurs. Á mánudagsmorgun komst lóðsinn um borð og var þá siglt inn á innri leguna og þá komu 34 menn um borð til að „innklara" skipið og leituðu toll- verðir hátt og lágt um skipið. Við venjulegar aðstæður t.d. hér heima hefðu komið svona 4—5 tollverðir um borð. En á mánu- dagskvöld komumst við upp að bryggju og gátum hafið losun og dvöldum við í Isabella og síðan í annarri borg, Nuevitas, í 18 daga og héldum þaðan á föstudaginn langa, 4. apríl. Rætt við Hafliða Baldursson skipstjóra á Isnesi sem sigldi nýverið til Kúbu Hvað gerðu skipverjar meðan mjölinu var skipað upp? —Stýrimaður og annar maður með honum fylgdust alltaf með uppskipun og aðrir af skipshöfn- inni voru við ýmis konar við- haldsstörf um borð á daginn, eins og venjulega, en á kvöldin var leyft að fara í land og máttum við vera í landi milli kl 6 og 10 á kvöldin. Skipstjórinn er þó öllu frjálsari og má fara um að eigin geðþótta. Menn fóru náttúrlega í I Hafliði sagði að húsin væru fremur lasburða, en allt var þó hreinlegt og snyrtilegt. BÓT — VERKSMIÐJUUTSALA — BOT Verksmiðjuútsalan sem allir hafa beðið eftir Mjög glæsi legt úrval af buxum á alla fjöl- skylduna Barnabuxur úr denim, flauel og flannel, dömubuxur úr denim, flauel, flannel og kakhi, herrabuxur úr flauel, kakhi og denim. Bútar í glæsilegu úrvali. Einstakt tækifæri að verzla ódýrt fyrir sumarið. Opið í dag frá kl. 9—7 e.h. Opið á morgun frá kl. 9—6 e.h. Fatagerðin BÖT, Skipholt 3, 2. hæð, •ími 29620. FATAGERÐIN BOT H.F, Frá hafnarsvæðinu, ísnes fjærst tií vinstri á myndinni. — Ljósm. Guðm. Jafetss. land á þessum leyfða tíma, en það var ekki mikið hægt að gera, ganga og skoða sig um, þokkalegir matstaðir voru á báðum stöðunum og nokkrir barir. Strákarnir fundu að vísu líka eitthvert diskótek, en það var ekki opnað fyrr en eftir klukkan 10 svo þeir komust aldrei þangað. En verzlanir voru fáar og við sáum t.d. hvergi matvörubúð og yfirleitt var mjög lítið um að vera þarna, en bæirnir sem við komum til voru með kringum 4 þúsund og 30 þúsund íbúa. Þið hafið ekki þurft að afla ykkur vista ? —Nei, við lögðum upp með tveggja mánaða birgðir, en pönt- uðum þó kjöt og ávexti og eitthvað fleira smávegis, en fengum ekkert kjötið og Havana vindla var ekki hægt að fá. En fólkið tók vel á móti okkur og þótt við gætum ekki talað við nema fáa, ræddum við örlítið við tollarana og lóðsana um lífið á Kúbu. Þeir töluðu ágæta ensku og t.d. sagðist einn tollar- inn, sem ég held að hafi lært ensku í Bandaríkjunum, viðhalda henni með því að horfa á banda- ríska sjónvarpið, en þarna ná þeir 2 eða 3 stöðvum frá Flórída og er mikið horft á þær. —Algeng laun eru um 7 pesos á dag eða sem svarar til 5 þúsunda ísl. króna. Sígarettupakki kostaði 1,65 pesos svo ekki er mikið hægt að veita sér fyrir þessi laun. Húsakosturinn var lélegur en þrifalegur, en mikið er lagt upp úr hreinlæti. Þó er sápa skömmtuð og margar aðrar vörur eins og kaffi og sykur. Bílar sáust sára- fáir og voru þeir annað hvort frá Rússlandi eða bandarískir bílar frá því fyrir 1959. í dag fá allir nægan mat, en fyrir tíð Castros voru margir sem bjuggu við nær- ingarskort. Var mikið eftirlit með ykkur þegar þið fóruð í land ? —Þegar skipverjar fóru í land var tekið af þeim vegabréfið og þeim afhentur landgöngupassi við hafnarhliðið. Þar var einnig skráð hvað þeir höfðu meðferðis af fjármunum, úr, hringir og þessir persónulegu hlutir allir skráðir og bornir saman við skrána þegar menn komu aftur að hliðinu. Mér voru líka skammtaðir peningar þannig að ég gat ekki látið strák- ana fá nema lítið í einu og var það eflaust gert til að þeir gætu ekki borist mikið á eða fært fólki pening, sem það gæti síðan not- fært sér til að komast burtu. —Þegar við lukum uppskipun og ætluðum að láta úr höfn að kvöldí fengum við ekki leyfi til þess, því að umferð um hafnirnar hefur verið bönnuð eftir sólsetur. Það hafði komið fyrir nokkrum mán- uðum áður að menn komust undan á lóðsbátnum í skjóli myrkurs og eftir það voru reglurnar hertar. Og síðan þegar við ætluðúm að halda af stað frá Kúbu komu 12 hermenn um borð til að athuga hvort nokkrir flóttamenn væru um borð. Þeir lokuðu alla áhöfn- ina inni í einu herbergi og leituðu síðan um allt skipið í fylgd 1. stýrimanns, en fundu sem betur fór engan. Það er fyrirtækið ísskip, sem gerir út ísnes og Selnes, sem eru 4.500 og 5.800 tonna skip og er Selnes stærsta skip íslenzka flot- ans í dag. Eftir að hafa losað mjölið á Kúbu hélt Hafliði með skip sitt til Bandaríkjanna, lestaði vörur til Noregs og tók svo þar hráefni til járnblendiverksmiðj- unnar að Grundartanga og varð útivistin alls um tveir mánuðir. Hafliði var að lokum spurður hvort líklegt væri að þeir færu aðra ferð til Kúbu: —Það er ekkert því til fyrir- stöðu af minni hálfu, en það voru farnar 4 aðrar ferðir með loðnu- mjöl til Kúbu og voru þær farnar með erlendum leiguskipum. Það gæti því alveg farið svo að við sigldum þangað aftur. Alþjóðleg skótaus sýning í Oporto DAGANA 13.—15. júní verður haldin alþjóðleg skótaussýning í Oporto í Portúgal, en þar eru margar helztu skóverksmiðjur landsins og svo sem alkunna er kaupa íslendingar verulegt magn af skótaui frá Portúgal. Munu áttatíu fyrirtæki sýna þar varning sinn. Fjöldi er- lendra gesta sækir venjulega þessa sýningu, sem haldin er árlega. Framleiðsla á skófatnaði í Portúgal var fram til 1960 ekki meiri en svo að fullnægði inn- anlandsmarkaði, en síðan hefur hún verið efld mjög og síðustu tíu árin hafa Portúgalar látið mjög að sér kveða á þessum vettvangi og árið 1977 voru flutt út 8 milljón pör af skóm af framleiddum 18 milljónum. Prófjjrédík- anir í dag AÐ ÞESSU sinni Ijúka sex kandi- datar j)rófi í guðfræðideild Há- skóla Islands. Flytja þeir prédik- anir sína, sem eru seinasti þáttur prófsins, í Háskólakapellunni í dag, föstudag. Hefst athöfnin kl. 14. Þeir sem prédika, eru Gerhard Hansen, Guðmundur Karl Ágústs- son, hilmar Baldursson, Kjartan Jónsson, Torfi Hjaltalín Stefáns- son og Þorbjörn Hlynur Árnason. Þessi athöfn í kapellunni er opin almenningi. Gerhard Hansen er fyrsti Færeyingurinn, sem stund- að hefur nám í guðfræðideildinni og lýkur þaðan prófi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.