Morgunblaðið - 30.05.1980, Side 19

Morgunblaðið - 30.05.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 19 IDACUR HE5TSINS A MELAVELU LAUGARDAGINN 31. MAI KL.14.00 íslenski hesturinn á engan sinn jafningja Dagskrá: að fjölhæfni og listfengi. • Dagur hestsins á Melavelli býður upp á • stórkostlega dagskrá snjöllustu gæðinga • og knapa. • Skemmtun fyrir börn og fullorðna, hátíð hesta- manna. Forsala aðgöngumiða á Melavelli föstudag 12-18 og laugardag frá kl. 10. LúðrasveitinSvanurleikurfrákl. 13:00 íslenski hesturinn og saga hans 14 stóðhestar sýndir sem einstaklingar 6 afkvæmahópar stóðhesta og stofnfélaga Unglingar í Fáki sýna hóp- og einstaklingsatriði Félag tamningamanna sýnir snjöllustu gæðinga landsins Tignarleg kveðjuathöfn allra þátttakenda HH./FT. Minning: Guðmundur Halldórs son skipstjóri í dag fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík útför Guðmundar Hall- dórssonar, fyrrverandi skipstjóra, sem andaðist í Borgarspítalanum hinn 23. þessa mánaðar eftir stutta legu. Guðmundur var fæddur 6. júní 1903 í Hnífsdal við ísafjarðardjúp, sonur hjónanna Guðríðar Móses- dóttur og Halldórs Pálssonar út- vegsbónda, sem þekktur var á sinni tíð um alla Vestfirði og viðar sem afburðaaflamaður, enda sótti hann sjóinn fast þótt skip hans væri ekki stórt fremur en annarra á þeim tímum. Guðmundur ólst upp í glaðværum systkinahóp, en systkin hans eru Páll, Margrét, Aðalheiður og Helga. Auk þeirra ólst upp á heimilinu Jóakim Páls- raun bar vitni, enda hændust menn að honum og áttu þar góðan og tryggan vin. Hann var alla tíð Fædd 24. ágúst 1913 Látin 24. maí 1980 Hún er dáin eftir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Oft meðan hún háði sitt stríð, læddist að manni sú ósk, að hún fengi hvíld. En nú, þegar guð á sinn alvísa hátt hefur stillt stríð hennar og veitt henni lausn, kem- ur sorgin, söknuðurinn og það þó að minningin um hana muni lifa innra með manni, heil og sterk og maður trúi einnig á síðari endur- fundi. í dag verður Sigríður lögð til hinztu hvíldar. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Jónsdóttir Ottesen og Einar Pétursson bygg- ingarmeistari. Ekki naut Sigríður lengi ástríki móður sinnar. Eg held, að móðir hennar hafi látizt, mikill gleðimaður og hafði yndi af söng, enda söngmaður góður, en hvergi naut hann sín þó eins vel og í faðmi fjölskyldunnar og með vinum og vandamönnum við söng og hljóðfæraslátt og átti þá til að taka lagið á harmonikkuna. Hinn 6. júní 1929 giftist Guð- mundur eftirlifandi konu sinni, Gróu Ólafsdóttur Thorlacius, og héldu þau því upp á fimmtíu ára hjúskaparafmæli sitt fyrir tæpu er Sigríður var 6-7 ára. Nokkrum árum síðar kvæntist faðir hennar Guðrúnu Oddsdóttur, hinni ágæt- ustu konu og gekk hún henni og bræðrum hennar tveimur í móður stað. Sigríður Einarsdóttir var engin hversdagskona. Hvar sem hún fór hlaut hún að vekja athygli vegna glæsileika síns, reisnar og fágaðr- ar framkomu. Kynni okkar Sigríðar hófust er við stunduðum nám í Verzlun- arskóla íslands og hafa haldizt æ síðan. Að loknu námi í Verzlun- arskóla íslands fór hún til fram- haldsnáms til Englands. Að því loknu og skömmu eftir að hún kom heim giftist hún Gísla Hall- dórssyni, verkfræðingi og eignuð- ust þau hjónin þrjá syni, Halldór Sigríður Einars- dóttir Minningarorð ur, vélstjóri, búsettur í Reykjavík og Þorgeir, rafvirki, búsettur í Bandaríkjunum. Þegar hann nú siglir síðasta spölinn, óska ég honum farar- heilla til sólríkrar strandar og þakka trausta vináttu á liðnum árum. Eftirlifandi eiginkonu, börnum og barnabörnum sendum við hjón- in innilegustu samúðarkveðjur. Gísli Jónasson. leg. í hópi góðra vina var hún ætíð glöðust. Það var unun að sækja hana heim. Henni var sýnt um að láta gestum sínum líða vel og rausn hennar var mikil og rómuð. Sigríður var alltaf fremur veit- andi en þiggjandi. Einn þátt í fari hennar hef ég ekki minnzt á: hversu dul hún var á innstu hræringar sálar sinnar og hjarta. Ég held ég hafi aldrei kynnzt dulari konu. Hún bar ekki tilfinningar sínar á torg. Sigríður var mikil þrekkona, svo sem sjá mátti á síðustu viðureign hennar við dauðann. Aldrei kvart- aði hún, en bar sína þjáningu með ótrúlegri stillingu. Ég þakka það, að mér auðnaðist að eiga hana að vini og ég held ég megi fullyrða, að við, skólasystk- ini hennar öll, hugsum til hennar í dag með hlýju og söknuði og sendum sonum hennar og tengda- dóttur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hrefna Þorstcinsdóttir son, sem þau hjónin tóku að sér sem barn. Hugur Guðmundar beindist snemma að sjónum, og mun hann fljótlega hafa farið á sjóinn með föður sínum, eða strax og kraftar leyfðu. Um eða innan við tvítugt var hann orðinn formaður á bát frá Hnífsdal. Guðmundur gekk í barnaskóla í Hnífsdal eins og önnur börn þar, en árið 1924 tók hann minna fiskimannapróf á ísafirði og árið 1928 hið meira fiskimannapróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Á þessum árum lét Guðnjiundur sér ekki nægja að sækja sjóinn á þeim litlu bátum, sem þá voru í Hnífsdal, heldur réði sig á togara til frænda síns úr Hnífsdal, hins þjóðkunna aflamanns, Aðalsteins Pálssonar, en hann var þá skip- stjóri á togaranum Kára Söl- mundarsyni og síðar á togaranum Belgaum. Hjá Aðalsteini var Guð- mundur um margra ára skeið, fyrst sem háseti og síðar sem stýrimaður. Öll stríðsárin sigldi hann ýmist sem stýrimaður eða skipstjóri, en þá var hann á togaranum Karls- efni með Halldóri Ingimarssyni, en síðast var Guðmundur skip- stjóri á togaranum Búðanesi þar til hann hætti sjómennsku árið 1957. Eftir að hann hætti sjó- mennsku, vann Guðmundur ýmis störf í landi, t.d. netagerð um hríð, en hann hafði lokið meistaraprófi í netagerð árið 1943. Þá vann hann um tíma í frystihúsi Isbjarnarins hf. Hann lagði ætíð ríka áherslu á að leysa vel af hendi öll þau störf, sem honum voru falin, sem sjá má af því m.a., að hann sótti nám- skeið fiskimatsmanna, sem sjáv- arútvegsráðuneytið efndi til árið 1955, í því skyni að auka þekkingu sína og auka afrakstur vinnu sinnar. Enda var hann sérlega farsæll maður í störfum sínum, bæði á sjó og í landi, og einstak- lega verklaginn. Síðustu tíu árin hefur Guð- mundur verið húsvörður við Iðnskólann í Reykjavík. Guðmundur var óvenjulega léttlyndur maður, og kom það sér oft vel fyrir hann, þar sem hann hafði svo mikil mannaforráð sem ári síðan. Gróa bjó manni sínum fallegt og myndarlegt heimili og stóð við hlið hans með miklum myndarskap og rausn, auk þess sem hún hefur um áratuga skeið verið í stjórn Kvennadeildar Slysavarnafélagsins í Rvík. og mjög virkur félagi þar. Þeim hjónum varð fjögurra barna auð- ið, en þau eru Gunnar, skipstjóri, búsettur í Bandaríkjunum, Guð- ríður, húsmóðir í Kópavogi, Ólaf- verkfræðing, Einar, kennara og trúboða, og Steindór forstjóra. Eftir 12-14 ár slitu þau hjón samvistum og kom þá í hlut Sigríðar að annast uppeldi son- anna og koma því til leiðar að hver fengi að læra það og starfa að því, er hugur hans stóð til. Ég held, að öllum, sem kynntust Sigríði hafi orðið hún ógleyman-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.