Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980 VIORöJ^- KAFC/NU \ GRANI GÖSLARI o O L 1 cz v/> U E3 F Ug ©PIB 'íSto COMBHACIN Við vorum að horfa á sjónvarpið og á meðan hafa þeir hreiniega tæmt ibúðina! Mig langar að segja þér dálitla sögu! Ég geri þetta til að hann fái líka séð eitthvað af umheimin- um! m ? ) ,, E U { ' 5 t? • ; . \ - , p .V 5^ á | I • W ; '5 . ! lí ? f Eru Bessastaðir háskóladeild? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í öllum kennslubókum stendur að meðhöndla beri sektardobl af mestu varúð og bridgekennarar bæta þar um og segja að ekki megi dobla ncma maður geti sjálfur hreint og beint talið örugga tvo niður. En reglur eru bara reglur. Hver hefði ekki doblað með spil vesturs í dag. Norður gaf, allir voru á hættu. Norður S. Á743 H. ÁK2 T. DG1095 L. D COSPER COSPER Vestur S. DG109 H. 9876 T. - L. ÁKG97 Austur S. 865 H. G5 T. ÁK76432 L. 8 Suður S. K2 H. D1042 T. 5 L. 1065432 Sagnirnar: Nurður Ausfur Suður Vestur 1 Tigull Pass 1 Grand Dobi 2 tiglar Dobl 3 Lauf Dohl Allir Pass Ekki er hægt að segja að sagnir suðurs séu til fyrirmyndar en eðlilega var vestur öruggur með sig. 2 tíglar doblaðir hefðu ekki verið svo slæmir. 3 slagir hefðu fengist á tromp norðurs, 4 á hálitina og vörnin hefði mátt passa sig sérstaklega svo ekki fengist áttundi slagurinn með því að trompa spaða í blindum. En gegn þrem laufum dobluðum spilaði vestur út spaðadrottningu. Suður tók slaginn heima og spilaði strax tromptvisti. Vestur tók slag- inn en þegar áttan kom í ákvað suður að fara varlega. Vestur vantaði innkomu á hendi makkers en spilaði aftur spaða, sem tekinn var með ás og trompaði svo spaða með þristi. Því næst hjarta á blindan og síðasti spaðinn tromp- aður með fjarka. Og útlitið batn- aði þegar hjartagosinn kom næst í kónginn og aumingja vestur fylgdi þegar sagnhafi tók tvo næstu slagina á hjarta. Þegar hér var komið átti vestur aðeins eftir fjögur tromp og trompaði til- neyddur þegar suður spilaði tígli en suður beið rólegur eftir að fá níunda slaginn á tromptíuna. Unnið spil! Ég sé nú ekkert fyndið við sorgargöngulag Chopins. Það eru ekki mörg embætti, eða vegtyllur er ætlaðar eru próflausu fólki. Varla fæst nú að skúra gólf í vissum stofnunum, án þess að hafa mikil próf, og nægir að minna á auglýsingar Sjónvarps- ins, er skila ber á þar til gjörðum eyðublöðum, svo unnt sé að úti- loka þá frá störfum, er ekki hafa notið skólagöngu. Svo að segja hvar sem er, þá eru próf tekin framyfir reynslu, eða lífsins skóla. Húsmóðir, er stjórn- að hefur heimili og alið upp börn af prýði, oft við örðugar aðstæður fær það ekki metið á vinnumark- aði. Þannig fær húsmóðir er ræð- ur sig í vinnu á sjúkrahús (ekki sérfræðistörf) ekkert hærri laun en unglingsstúlka, því reynsla húsmæðra í þjóðfélaginu er utan- við ríkjandi punktakerfi. Þó eru nokkrar stöður enn til, er ekki hafa enn verið njörvaðar eða felldar inn í menntamannakerfið, en þar má nefnda bæjarstjóra- stöður og ýms embætti innan sveitarstjórna, og svo eru það borgarfulltrúar og alþingismenn, er fólkið getur valið, án tillits til prófa. En þá er ekki allt talið. Forseta- embættið er ekki ennþá opinber- lega ætlað sérstökum fræðum, en þó virðist nú að því draga, því mér er sagt að Albert Guðmundsson alþingismaður muni ekki geta orðið forseti, af því að hann sé aðeins stjórnmálamaður og hafi ekki lokið prófi frá háskóla. Ég spyr: Gerir almenningur sér grein fyrir þeirri hættu er þarna er að skapast? Sumsé þeirri er felst í því að ef það verður almennt viðurkennt að embætti forseta íslands skuli vera einskon- ar háskóladeild í lokuðum fræð- um. Ég hefi á nokkuð langri ævi kynnst mörgu fólki, venjulegu fólki, er með elju og vönduðu líferni hefði vel komið til greina í forsetaembættið, þrátt fyrir ann- ars takmarkaða skólagöngu. Nefni ég þar af handahófi menn einsog Þorstein bónda á Vatnsleysu, Ein- ar Guðfinnsson útgerðarmann í Bolungarvík, Kristján, skipstjóra á Gullfossi og marga fleiri. íslensk alþýða á og hefur átt mörg forsetaefni, þótt eigi hafi þau verið boðin fram, og ég hygg að ef Albert Guðmundsson verður ekki kjörinn forseti að þessu sinni, muni íslenskur alþýðumaður, haf- inn og mótaður af sjálfum sér aldrei ná að Bessastöðum, og þjóðarheimilið verður þá sem hingað til aðeins deild úr Háskóla íslands, en ekki embætti allra manna með hreina æru. Lög landsins segja að allir sem náð hafa 35 ára aldri og hafa ekki afbrotaferil að baki, og nægan fjölda meðmælenda megi bjóða sig Ánægjuleg messuferð Hvatar í Þykkvabæinn Sjálfstæðiskvenr.afélagið Hvöt efndi á uppstigningardag til fjölskylduferðar í Þykkva- bæinn, þar sem hlýtt var messu í Hábæjarkirkju hjá séra Auði Eir. Var fjölmenni í ferðinni þrátt fyrir heldur óhagstætt veður, bæði börn og fullorðnir. Ekið var austur fyrir Fjall og komið í hús verkalýðsfélagsins á Hellu, þar sem Sigurður Ósk- arsson og Eva kona hans helltu upp á könnuna. Á leið í Þykkva- bæinn voru hellarnir á Ægissíðu skoðaðir undir leiðsögn Þor- bjargar Karlsdóttur. Þar gafst börnunum í ferðinni kostur á að sjá sauðburð við mikinn fögnuð. Sr. Auður Eir messaði í sókn- arkirkju sinni í Þykkvabænum, sem er nýbyggt, glæsilegt hús. Kirkjukórinn undir stjórn Sigur- bjarts Guðjónssonar söng og flutti sig m.a. niður í kirkjuna til að efla fjöldasöng kirkjugesta. Og sr. Auður lét börnin syngja sérstaklega. Þá var drukkið kaffi í félags- heimilinu í Þykkvabænum, og sáu kvenfélagskonur á staðnum um rausnarlegar kaffiveitingar undir stjórn formannsins, Eyglóar Ingvarsdóttur. Og á eftir var ekið um sveitina og það markverðasta skoðað undir góðri leiðsögn Sigríðar Magnús- dóttur í Oddsparti og Egils Friðrikssonar í Skarði. M.a. var komið þar að sem Þykkvbæingar voru að setja niður kartöflur með nýtísku vélabúnaði. Var síðan ekið heim. Leiðsögumaður í ferðinni var Ragnhildur Páls- dóttir. Sr. Auður Eir messaði í Hábæjarkirkju. Hér er presturinn með formanni Hvatar, Björgu Einarsdóttur, og elsta þátttakandanum i ferðinni, Meyvant Sigurðssyni á Eiði sem á sínum tíma var fyrsti bilstjórinn til að aka i Þykkvabæinn og mjólkurbilstjóri þangað lengi. Þegar komið var að Ægissiðu til að skoða hellana þar, var ær alveg nýborin i einum hellismunnanum og þótti kaupstaðarbörnunum það mjög forvitnilegt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.