Morgunblaðið - 30.05.1980, Side 12

Morgunblaðið - 30.05.1980, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 50 stúdentar brautskráðir frá Flensborgarskóla: Dúxinn lauk námi á aðeins 3 árum FIÆNSBORGARSKÓLA var slitið lauKardaKÍnn 24. maí «g brautskráðir 50 stúdcntar «g 9 nemendur með almennt verslunarprúf. Stúdentar skiptast þannig á hrautir. að 9 voru á eðlisfræðibraut. 14 á náttúrufræðibraut; 1 brautskráðist af þessum brautum báðum í senn; 7 af félagsfræðabraut, 13 af upp- eldishraut, 4 af málabraut «g 2 af viðskiptabraut. Bestum námsárangri á stúd- entsprófi náði Hlynur Helga- son,'eðlisfræðibraut, en hann lauk námi eftir aðeins 3 ára (6 anna) námstíma og hlaut 39 A af 52 einkunnum alls. í skólasiitaræðu Kristjáns Bersa Ólafssonar skólameist- ara kom fram að á þeim 5 árum sem liðin eru síðan Flensborgarskólanum var breytt í fjölbrautaskóla hefur hann alls brautskráð 293 stúd- enta, 144 úr bekkjarkerfi, en 153 síðan áfangakerfi var tekið upp við skólann. Við skólaslitin lék Erla Þor- ólfsdóttir, nemandi við skól- ann, einíeik á píanó, og kveðjur og gjafir fluttu Benedikt Árn- ason endurskoðandi, fulltrúi 50 ára gagnfræðinga, og Gunnar Linnet tölvufræðingur, fulltrúi 5 ára stúdenta. Frá skólauppsögn Menntaskólans í Reykjavík í Háskólabíói i gær, er stúdentar höfðu sett upp hvitu koilana. — Ljósm.: Emilía. 144 stúdentar frá M.R. í GÆR var Menntaskólanum i Reykjavik slitið i 133. sinn frá þvi að skóiinn fluttist frá Bessa- stöðum. Biskup landsins vigði latinuskólahúsið nýja 1. októ- ber 1846. 144 stúdentar voru brautskráðir, þar af tveir utan- skóla. Má til gamans geta þess að nýstúdentarnir fylla tólf bers- erkjaflokka eins og þeir voru að fornu, að því er einn yfirkennar- anna sagði í léttum tón eftir athöfnina í Háskólabíói. Dux scholae í þetta sinn varð Guðrún Þórhallsdóttir úr fornmáladeild I. Hún hlaut ágætiseinkunnina 9,54. Semidux varð Ragnhildur Hjartardóttir úr eðlisfræðideild I. Hún hlaut ágætiseinkunnina 9,46. Morgunblaðið óskar öllum stúdentum á þessu vori til ham- ingju með merk tímamót og mikinn áfanga. Nýstúdentar frá Flensborgarskóla. Nýstúdentar úr Verzlunarskóla íslands. Hildur Sandholt tekur við stúdentsskirteini úr hendi hins nýja skólastjóra, Þorvarðar Elíassonar, en hún hlaut hæstu meðaleink- unn að þessu sinni, 9,01. Verzlunarskóla íslands slitið: 93 stúdentar brautskráðir VERZLUNARSKÓLA íslands var slitið í 75. skiptið í gær í hátiðarsal skólans. Var þetta í 36. sinn sem brautskráðir eru stúdentar frá skólanum og fyrsta útskrift hins nýja skóla- stjóra Þorvarðar Elíassonar. Að þessu sinni voru 93 stúdent- ar brautskráðir. 72 úr hag- fræðideild og 21 frá máladeild. Fjöldi brautskráðra stúdenta frá upphafi mun þá vera 1327, 704 piltar og 623 stúlkur. Hæstu meðaleinkunn að þessu sinni hlaut Hildur Sandholt, 1. ág. 9,01 úr hagfræðideild. Úr máladeild hlaut Andrea Þ. Rafn- ar hæstu einkunn 8,69. I ræðu sem skólastjórinn flutti við þetta tækifæri sagði hann m.a.: „En því segi ég að tengslin milli atvinnulífs og skóla séu að rofna að nú markast stefna stjórnvalda í skólamálum í vaxandi mæli af hugmynda- fræðingum, sem oft eru næsta ókunnir starfsemi fyrirtækj- anna og harðri baráttu þeirra fyrir tilveru sinni.“ Kvað hann skólann hafa gegnt lykilhlut- verki í uppbyggingu atvinnulífs hér á landi í krafti þekkingar sinnar og lærdóms. „Tollkrit44 fær góðar undirtektir á Alþingi Kannað i sumar MATTHÍAS Á. Mathiesen mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um greiðslufrest toila og aðflutn- ingsgjalda — tollkrít — sem athuganir sýna að sparað geti þjóðarbúinu um þrjá milljarði króna á ári á núverandi verðlagi, samkvæmt útreikningum Rekstr- arstofnunar. Matthías sagði frumvarpið hags- munaatriði fyrir alla landsmenn, enda stuðlaði það að sparnaði, hag- ræði og lægra vöruverði til neyt- enda. Frumvarpið felur í sér heimild til að veita greiðslufrest tilla og aðflutninga, sem fyrr segir, og sparnaður vegna slíkrar fram- kvæmdar kæmi bæði fram í minni lagt fyrir í haust geymsiu- og vaxtakostnaði. Frum- varpið, sem flutt er af 5 þingmönn- um úr Sjálfstæðis- og Alþýðuflokki, er að hluta til ávöxtur endurskoðun- arstarfs nefndar, sem Matthías Á. Mathiesen, þáverandi fjármálaráð- herra, skipaði árið 1977 til að endurskoða gildandi lög og reglur um tollheimtu og tolleftirlit. Friðrik Sophusson mælti fyrir tveimur hliðarfrumvörpum, sem sömu þingmenn flytja, annars vegar um tollskrá, hins vegar um toll- heimtu og tolleftirlit, og samræma eigi þessi lög um framkvæmd „tollkrítar". Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra sagði ríkisstjórnina hafa haft þessi mál til athugunar, til samræm- is við stjórnarsáttmála. Hann sagði kosti „tollkrítar" augljósa, bæði varðandi minni geymslukostnað og vaxtakostnað, og örvun til hagstæð- ari innkaupa. Athuga þyrfti hins vegar hver áhrif „tollkrít“ hefði á fjárstreymi til ríkissjóðs. Hann sagði ríkisstjórnina, í samráði við fjárhagsnefnd neðri deildar, skoða mál þessi vel í sumarhléi Alþingis, og vænta þess, að mál lægju ljósar fyrir er þíng kæmi saman í haust. Albert Guðmundsson minnti á jákvæð áhrif tollvörugeymslu — og sagði, að „tollkrít" yrði viðbótar- skref í rétta átt. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra sagði og sjálfsagt að veita þessum málurn réttmæta skoðun. Síðustu lög þingsins: Þingmanni neitað að ræða um þingsköp! í GÆR, á þinglausnadegi, voru samþykkt eftirfarandi iög frá Alþingi: i) Lánsfjárlög 1980. 2) Lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins. 3) Lög um aðstoð við þroskahefta. 4) Lög um iðnrekstrarsjóð. 5) Lög um Bjargráðasjóð. Þá voru samþykktar þingslálykt- anir um kaup og sölu á fasteignum og flugsamgöngur við Vestfirði. Halldór Blöndal mælti fyrir frum- varpi um launasjóð rithöfunda, sem vísað var til allsherjarnefndar, að tillögu menntamálaráðherra, en Halldór hafði mælst til atkvæða- greiðslu án athugunar í nefnd, eins og dæmi eru um í undantekningar- tilfellum svo málið fengi afgreiðslu á þinginu. Umræðu um utanríkismál var framhaldið en lauk ekki. Forseti Sameinaðs þings tók málið út af dagskrá, vegna tímaleysis að sögn hans. Neitaði hann Matthíasi Bjarnasyni (S) um orðið til að ræða þingsköp — en hann var á mælenda- skrá — sem er óvenjulegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.