Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 13 í Þjóðleikhúsi á listahátíð: Leiksýningar, ballett, tón- leikar og afmælisdagskrá Jóhanns Sigurjónssonar Að VENJU verður heilmikið um að vera í Þjóðleikhúsinu á listahátíð í ár og af því tilefni boðaði Þjóðleikhússstjóri og form. listahátiðar til blaðamannafundar að skýra frá því helzta sem þar verður á döfinni. Frá tveimur forsýningum á leikritinu Snjór eftir Kjartan Ragnarsson er svo sagt á öðrum stað. Hinn 6. júní verður spánski leikflokkurinn Els Comediants með sýninguna Sol-Solett, sem er ævintýraleikur fyrir alla fjöl- skylduna að sögn aðstandenda hátíðarinnar, og fjallar um fólk sem er að leita að sólinni. Leikur- inn byggist á fleiru en töluðu orði, bæði látbragði og söng. Dagana 9. og 10. júní veröur KOM-teatri frá Helsinki með sýn- ingar á „Þremur systrum" eftir Tjekov. Sveinn Einarsson Þjóð- leikhússstjóri sagði að Finnar þættu einkar góðir Tjekovtúlkend- ur og reyndar væri sérstaklega mikið um að vera í finnsku leikhúslífi um þessar mundir og þar af leiðandi teldi hann feng að því að fá þennan leikhóp hingað. Styrkur úr Gestaleikhússjóði fékkst af þessu tilefni. Minnt var á það á blaðamannafundinum að fyrsta leikför íslenzks leikhóps 1948 var einmitt farin til Finn- lands og sýnt þar „Gullna hliðið". Útdráttur verður í leikskrá, en auk þess er leikritið góðkunnugt mörgum leikhúsgestum. Hinn 31. júní verða í Þjóðleik- húsinu Schoenbergtónleikar. Verða þar flutt þrjú verk tónsk- áldsins undir stjórn Pauls Wuk- ofskys. Dagana 16. og 18. júní verða svo listdanssýningar. Þar dansa Sveinbjörg Alexanders, sem er vel þekkt hér heima, ásamt mótdans- ara sínum Michael Molnar, frum- flutningur verður á ballett sem byggður er á hugmyndum úr HIN NÝJA þota sem Flugleiðir eiga nú í smíðum í Boeing verk- smiðjunum i Seattle í Bandaríkj- unum verður afhent félaginu við athöfn 30. maí n.k. Viðstaddir þá athöfn verður forstjóri félagsins Sigurður Helgason og frú, Bergur G. Gislason stjórnarmaður og frú. Ennfremur nokkrir starfsmenn félagsins þeirra á meðal Leifur Magnússon framkvæmdastjóri Flugrekstrarsviðs. Einnig islensk- ir blaðamenn. Eftir afhendingu verður lagt af stað frá Seattle til ísiands, og flogið með viðkomu í Montreal. Áætlaður komutimi til Keflavíkurflugvallar er kl. 11 fyrir hádegi laugardaginn 31. maí. Þessi nýja þota, sú fyrsta sem íslendingar hafa látið smíða síðan 1967, er mun stærri og burðarmeiri en þær Boeing 727 þotur sem fyrir eru. Vænghaf er 32,9 metrar, lengd 46,7 og hæð 10,4. Hún hefur sæti fyrir 164 farþega. Yfir sætum eru' lokaðir skápar fyrir yfirhafnir far- þega og handfarangur. Tvö eldhús eru í flugvélinni, annað afturí hitt frammí. Mesta flugtaksþyngd er 86,4 tonn. Þessi nýja flugvél er knúin þrem Pratt & Whitney JT8D-15 hreyflum og framleiðir hver 15.500 punda kný við flugtak. Galdra-Lofti eftir ballettmeistara leikhússins Kenneth Tillson og einnig dansar María Gísladóttir og Roberto Dimitrievich. María hefur nýlega verið útnefnd prima- ballerína við Wiesbaden-óperuna og hefur ekki dansað hér heima um langa hríð. Að lokum má nefna að 19. júní verður sérstök dagskrá í tilefni af þvi að 100 ár eru þá liðin frá fæðingu Jóhanns skálds Sigur- jónssonar. Hópur hefur unnið að gerð dagskrárinnar undir forsjá þeirra Þórhalls Sigurðssonar og Árna íbsen. Verður fjallað um manninn Jóhann Sigurjónsson, flutt atriðið úr nokkrum verka hans, m.a. æskuverkinu „Úr skugganum" sem aldrei hefur ver- ið leikið og „Frú Elsa“ sem hann lauk ekki. Þá verður lesið úr bréfum Jóhanns og sýndar myndir o.fl. Úr flutningi spænsku listamannanna Els Comediants á Sol-Solett MYNDARLEGT SUMARFRÍ Sviðsmynd úr „Þremur systrum" sem KOM-ieikhúsið frá Helsinki flytur. Nýja Flugleiðaþotan afhent í dag - kemur til landsins á morgun Flugvélin er búin nýjustu og fullkomnustu siglingatækjum og öryggistækjum. Hún hefur m.a. sérstaka tölvu sem gefur upplýs- ingar um hvernig hagkvæmast er að haga fluginu gagnvart eldsneyt- iseyðslu. Þá verður þotan búin tækjum til sjálfvirkrar lendingar, sem nýtast þegar nauðsynlegur tækjabúnaður er jafnframt kominn á flugvellina. Við komuna til Keflavíkur laug- ardaginn 31. maí mun Örn O. Johnson stjórnarformaður Flug- leiða bjóða áhöfn, farþega og far- kost velkomin. Þotan mun síðan hefja áætlunarflug á leiðum félags- ins 2. júní og verður fyrsta flugið frá Keflavík kl. 8.15 til Kaup- mannahafnar. Þessi nýja þota Flugleiða er númer 1622 í framleiðslu véla af Boeing 727 gerð. Ekki hefur verið framleiddur viðlíka fjöldi af neinni annarri þotutegund til farþega- flugs. Mjög margar pantanir liggja nú fyrir hjá Boeing verksmiðjunum og berast nær mánaðarlegar fréttir af kaupum flugfélaga á þessari teg- und. Boeing verksmiðjurnar hafa nú nýlega gert ráðstafanir til þess að auka framleiðslu Boeing 727-200 og nú er fyrirséð að hún verður áfram framleidd í mörg ár. LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SlMI 85811

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.