Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 10

Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 Bjarni E. Sigurðsson framkvæmdastjóri Dags hestsins og Ragnar Tómasson nefndarmaður. LjAsm. Mhi. Kristinn. Melavöllur: Dagur hests- ins á morgun DAGUR IIESTSINS verður á morgun. laugardag og verður skcmmtunin á Melavelli í Reykjavík. í'yrir deginum standa Fálag tamningamanna og IlagsmunafélaKs hrossahu'nda. Mörx atriói verða til skemmtunar. en dagskráin hefst á stóðhestasýninKU þar sem sýndir verða fimm 1. verðlauna stóðhestar. Að því atriði loknu verða sýndir fimm stóðhcstar frá Stóðhestastóð BúnaðarfélaKs íslands. Síðan koma fimm nýdæmdir stóðhestar, en það eru hestar sem aðeins hafa einu sinni komið fram áður. Kynnir þessara atriða verður Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur. Frá Degi hestsins á Melavellinum í fyrra. Annar hluti sýningarinnar verður nokkuð nýstárlegur, og hefst hann með því að víkingasveit ríður um völlinn. Þá verður ljósmóður- og læknareið og einnig verða sýndar heybands- og póstlestir. Síðan verð- ur áhorfendum gefin hugmynd um vélvæðingu í landbúnaði, en á því sviði var hesturinn þarfasti þjónn- inn í eina tíð. Næst koma fram „gamlir höfðingjar", en það eru frumherjar hestamennskunnar í sinni núverandi mynd, hér á landi. Þá verður sýning unglinga og loks atriði sem kallað er „Fjölskyldan“, en kynnir þessara atriða verður Jón Sigurbjörnsson. Þriðji liður sýningarinnar er af- kvæmasýning, en þar verða sýnd afkvæmi sjö stóðhesta. Stóðhestar- nir koma frá Skuggaræktarfélaginu í Borgarfirði, Fjallablésa undan Eyjafjöllum, Kirkjubæ á Rangár- völlum, Skýfaxa, hrossa- ræktunarsambandi Suðurlands. Einnig sýna tveir einstaklingar af- kvæmi hesta sinna í þessu atriði en það eru Jón Sigurðsson í Skollagróf með afkvæmi Neista nr. 587 og Sigurður Ellertsson frá Holtsmúla í Skagafirði með afkvæmi Hrafns nr. 802. Að afkvæmasýningunni lokinni verður sýning á vegum Félags tamn- ingamanna og sýna þeir samspil hests og manns. Þetta verður tíu manna sveit og mun þar geta aö líta marga snjöllustu tamningamenn landsins. Lokaatriði sýningarinnar verður kveðjuathöfn. A sýningunni mun koma fram fjöldi hrossa, áætlað er að um 100 hestar muni taka þar beinan þátt. Að sögn þeirra Ragnars Tómassonar nefndarmanns og Bjarna E. Sig- urðssonar framkvæmdastjóra Dags hestsins er aðstaðan á Melavellinum afbragðs góð enda var þar áður hestavöllur. Sögðu þeir að andi hestanna svifi þar enn yfir. Sýningin á Melavellinum hefst kl. 14, en lúðrasveitin Svanur mun leika létt lög frá kl. 13. Forsala verður á Melavellinum í dag frá 12 til 18 og frá kl. 10 á laugardag. HEILHVEITI KAFFI OSTA TVIBOKUR r Avallt í fararbroddi. Ragnarsbakarí með nýjar umbúðir og kringlurnar geymast betur, haldast stökkar og taka minna pláss. Auk þess geturðu vaiið um þrjár tegundir af þessari viðurkenndu gæðavöru. RAGNARS BAKARÍ. SÍMI 92-2120. 62 tóku próf í öldunga- deild í Hveragerði ÖLDUNGADEILDINNI í Hvera- gerði var slitið í fyrsta skipti 22. maí, en þegar deildin tók til starfa í janúar hófu nám 83 nemendur frá Hveragcrði, Ölfusi (Þorláks- höfn), Selfossi, Stokkseyri og Gnúpverjahreppi. Sveitarfélögin styrktu öll rekstur deildarinnar, nema tvö hin síðastnefndu — segir í fréttatilkynningu frá öld- ungadeildinni. Öldungadeildin í Hveragerði starfar í nánu samstarfi við Menntaskólann í Hamrahlíð og voru prófin lögð fyrir nemendur á sama tíma. AIls þreyttu 62 próf í Hveragerði og gekk nemendum vel og hafa þeir þegar innritazt í næstu námsönn, sem hefst í sept- ember. Innritun nýrra nemenda fer fram í dag og á morgun í Gagn- fræðaskólanum í Hveragerði. Yerða 100 tonn af íslenzkum landbún- aðarafurðum snædd í vélum Flugleiða? f FLUGELDIIÚSINU á Keflavíkur- flugvelli jukust umsvif verulega frá og með 1. þessa mánaðar er farið var að útbúa þar allan mat í vesturflug til New York og Chic- ago, en hann var áður tekinn i Luxemburg. Enn eykst starfsemi eldhússins næsta haust þegar allur matur í út- og heimaflug til Norðurlanda og Bretlands verður tilreiddur þar. Þessi ákvörðun er þó því skilyrði háð, að samþykki yfirvalda fáist við tillögu Flugleiða um breytingar á húsnæði eldhússins. Loks er að því stefnt, segir í Félagspósti Flugleiða, að allt hráefni í mat í flugeldhúsi verði íslenzkar landbúnaðar- og sjávarafurðir. Þannig er gert ráð fyrir að kaup Flugleiða á íslenzkum landbúnaðarafurðum gætu orðið um 100 tonn á ári. Húsakönnun í Stykkishólmi HÖRÐUR Ágústsson, listmál- ari mun á almennum fundi, sem haldinn verður í Stykkis- hólmi í kvöld kynna nýút- komna bók sína, sem fjallar um húsakönnun í Stykkishólmi. Mun Hörður sýna skugga- myndir með fyrirlestri sinum, en fundurinn er haldinn í Félagsheimiiinu og hefst klukkan 20,30. Þá verður og opnuð sýning í veitingasal hótelsins í Stykkis- hólmi, þar sem verkið er sýnt ásamt stækkuðum ljósmyndum úr safni Jóhanns Rafnssonar og myndir, lýsingar og uppdrættir úr fyrri rannsóknum Harðar verða þar einnig til sýnis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.