Morgunblaðið - 30.05.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 30.05.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980 + ÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR, Hvassaleíti 30, lézt á Landspítalanum, miövikudaginn 28. maí. Fyrir hönd vandamanna. Halla Hallgrímsdóttir. + Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, INGIBJÖRG BJARNADÓTTIR, Varmahlíö undir Eyjafjöllum, er látin. Útför fer fram frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 31. maí kl. 2. Einar Sigurösson, börn, fóstursonur, tengdabörn og barnabörn. t Litla dóttir okkar, Hildígunnur, lézt á hvítasunnudag. Jaröarförin hefur fariö fram. Innilegar pakkir fyrir auösýnda samúð. Alúðarþakkir sendum viö læknum og ööru starfsfólki vökudeildar Landspítalans. Kristín Kjartansdóttir, Jón Gunnar Sæmundsson. + Móöir okkar SIGURBORG ANDRÉSDÓTTIR, frá Eskifiröi, er andaöist aö Vífilsstööum þann 23. þ.m. veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 2. júní kl. 3. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, dætur hinnar látnu. + Sonur okkar og bróðir, HAFSTEINN SIGURÐSSON, Safamýri 38, er lést af-slysförum 25. maí, veröur jarösunginn frá Eyrarbakka- kirkju laugardaginn 31. maí kl. 2 e.h. Vilborg Sæmundsdóttir, Siguröur Guömundsson, Guðmundur Jónatan Sigurösson. + Hjartkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÁRNI JAKOBSSON, Fellsmúla 9, lést aö morgni 29. maí í Borgarspítalanum. Ellen Danielsdóttir, Guöbjörg Árnadóttir Calmon, Eríc Paul Calmon, Þorkell Arnason, Rakel Egilsdóttir og barnabörn. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN GÍSLASON, Rauöageröi 58, lést þann 27. maí. Útförin auglýst síöar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Þórey Ólafsdóttir. + Jaröarför systur okkar, INGIGERÐAR SVÖVU JÓHANNSDÓTTUR, Núpum, Ölfusi, fer fram frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 31. maf kl. 14.00. Systkini hinnar látnu. t Okkar innilegustu þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vináttu viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, föður, sonar, tengdason- ar og afa, NILS PAULI MEINHARD PAULSEN, Norðurvör 13, < Grindavík. Agnes Paulsen, Sigurrós Paulsen, Magnús Kristinsson, Lena Paulsen, móðir, systkini og barnabörn hins látna. ^ * Olafur Olafsson Minningarorð Fæddur 17. nóvember 1956 Dáinn 25. maí 1980 ÓmaAu. sál mín. likt ok lind i hatra. I lyxnum þinum spntlist himinninn mod skýjadýrA »K litaljoma sinn. Ia>lKjilrð um vorid só þín a-visajta. (Tóm. (iuóm.) Hvað er hægt að segja þegar góður og skemmtilegur drengur hverfur burt úr þessum heimi, eins og hendi sé veifað? Enn höfum við ekki áttað okkur á því að hann sé horfinn fyrir fullt og allt, hann sem var glaður og reifur með okkur hér fyrir örfáum dög- um. Óli var að eðlisfari fremur hlédrægur og bar ekki tilfinningar sínar á torg. í vetur lauk hann prófi úr Iðnskólanum og núna virtist okkur sem lífið brosti við honum. Og þá er hann tekinn í burtu og allir spyrja: af hverju hann? Eina svarið við því er að þeir deyja ungir, sem guðirnir elska. Bílar voru hans aðaláhuga- mál og vina hans. Þar nutu sín til fulls hæfileikar hans í meðferð véla. Við höfum verið mjög mikið á heimili Óla í mörg undanfarin ár og þar af leiðandi fengið að vera þeirrar gleði aðnjótandi að fá að kynnast honum. Óli var mjög handlaginn og allt sem þarfnaðist nákvæmni lék í höndum hans. Eftir því sem við urðum eldri fengum við að kynnast Óla betur og komumst að raun um hvern mann hann hafði að geyma. Óli var sonur hjónanna Drífu Garðarsdóttur og Ólafs Jónssonar. Hann átti 3 systkin, Eddu, Kristínu, Hildi og Garðar. Þessi fáu orð segja kannski ekki mikið hvernig Óli var en minning- in um hann mun ætíð lifa í hugum okkar. Við hugsum um hann sem góðan dreng, sem var búinn mörg- um, góðum kostum. Við vottum foreldrum hans, systkinum og vinum hans innilega samúð. Blessuð sé minning Óla. A. og J. Kveðja írá systkinum -Flýt þór. vinur. I ÍCKra hcim; krjúptu aó fótum frióarhoóans »K fljÚKÓu á vænKjum morKUnroóans mcira aó starfa kuAs um Kcim. J.II. Hvítasunnumorgunninn er að öllum jafnaði upphaf fagnaðar- hátíðar, en í þetta skipti var sköpum skipt, því að þá barst okkur fregnin um hið sviplega fráfall Óla bróður okkar, sem fórst í bifreiðarslysi í morgunsár- ið. Hvernig gat okkur til hugar komið að leiðir okkar skildu svo sviplega og á einu augabragði og allra síst okkur systkinum hans, en vegir örlaganna eru órannsak- anlegir og við því verður víst lítið sagt. í systkinahópinn hefir nú verið höggvið skarð sem stendur ófyllt og opið. Hann var okkur svo sannarlega góður bróðir, sem vildi allt fyrir okkur gera, hjálpfús og óeigingjarn og gat lagfært alla hluti sem aflaga fóru og gert gott úr hverju því, sem hann mátti. Við söknum hans sárt því að það er mikill missir að sjá á bak góðum bróður í blóma lífsins, þegar hann var einmitt að hefja lífsstarf sitt, en það þýðir ekki að deila við dómarann og eftir er minningin um góðan bróður — en við trúurn því að honum vegni vel á nýjum vegum bak við gröf og dauða um leið og við þökkum fyrir horfin bernsku- og unglingsár sem við áttum saman. Blessuð sé minning hans. Edda. Garðar og Kristín. t Minningarathöfn um ELÍSABETU BARTELS veröur í Dómkirkjunni föstudaginn 30. maí 1980 kl. 3. Fyrir hönd aöstandenda, Jón Thorarensen. Jaröarför systur okkar, + GUÐFINNU GÍSLADÓTTUR, Hátúni 10A, fer fram frá Selfosskirkju, laugardaginn 31. maí kl. 2. Fyrir hönd vandamanna. Jón Gíslason, Siggeir Gíslason. t Þökkum hjartanlega auösýnda vináttu og samúö viö andlát og jaröarför SIGURBJÖRNS GUTTORMSSONAR, frá Stöö. Börn og tengdabörn. + Eiginkona mín, fósturmóðir, móöir, tengdamóöir, amma og langamma. GUÐRIDUR PETURSDÓTTIR frá Brekku, Grindavík, veröur jarösungin laugardaginn 31. maí kl. 14. frá Grindavíkur- klrkju. Kristinn Jónsson, Guömundur Kristjánsson, Jóna Þorsteinsdóttir, Hildur Kristinsdóttir, Gunnar Þorleifsson, Sigríöur Kristinsdóttir, Kristján Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn. Þessi fátæklegu orð eru lítil kveðja frá okkur vinum Óla í Hamrahlíð 33. Það var mikil sorgarfregn, sem hvítasunnudagurinn síðasti flutti okkur, þegar fréttist um hið hörmulega slys við Arnes í Árnes- sýslu. Eins og flett væri blaði í bók, var komið nýtt efni og innihald á spjöldin. Óli var ekki lengur með í leiknum. Við fjölskyldurnar í Hamrahlíð, sem búið höfum undir sama þaki í 16 ár, höfum bundizt sterkum vináttuböndum, og börnin, sem alizt hafa upp sitt í hvorum enda hússins, hafa vaxið upp sem systk- ini við leik í sama garði. Við höfum séð hann vaxa úr grasi frá því hann var ungur drengur, þroskast og verða að kröftugum og karlmannlegum manni. Óli var glaðsinna, hjartahreinn og hjálp- samur. Af dagfari hans mátti því einu kynnast, sem prýða má ung- an mann. Hugur hans stóð til véla og verkmenningar, hafði enda lokið prófi sem vélvirki. Óli hafði gaman af ökutækjum, ef til vill um of. En eigum við ekki öll óskir og þrár, sem öðrum finnst orka tvímælis og skynsamleg rök gera ekki strax augljós. Hún systir hans litla sagði eitthvað á þess leið, þegar hún heyrði sorgartíðindin: „Af hverju þurfti þetta að koma fyrir?“ Hún spurði eins og við mannanna börn spyrjum svo oft þegar við rýnum út í óvissuna, sem umlykur okkur. Eitt svar er okkur veitt. Silfur- þráðurinn slitnar, skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn. Þökk fyrir hjartahreina og ógleymanlega vináttu. Tryggvi Þorsteinsson Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.