Morgunblaðið - 01.06.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
„Okkur finnst að það
geti vel tengst saman
sólskin og saltfiskur“
„Tillgangur sjómannadagsins
er margþættur en sjómannaíélög-
in i Reykjavík og Hafnarfirði
hafa valið þá leið að mynda með
sér fulltrúaráð, sem nefnist Sjó-
mannadagsráð. Verkefni þessa
ráðs eru ekki bundin við þennan
eina dag ársins, sjómannadag-
inn, heldur hefur það haldið uppi
margvíslegri starfsemi og eru
Hrafnista í Reykiavík og í Hafn-
arfirði kunnust. Eg hef áður sagt
að hjá okkur í Sjómannadagsráði
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar,
er sjómannadagurinn allt árið í
þá veru að við erum að vinna að
framgangi þeirra málefna, sem
hann berst fyrir. í því starfi
erum við alltaf með eitthvað nýtt
á prjónunum samhliða því, sem
við vinnum að eldri verkefnum,“
sagði Pétur Sigurðsson, formað-
ur Sjómannadagsráðs Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar, í viðtali
við blaðið í tilefni af sjómanna-
deginum.
Koma upp heilsu-
bótaraðstöðu í
Portúgal?
„Á þessu ári hófumst við handa
við eitt af okkar lang stærstu
verkefnum, sem er bygging hjúkr-
unardeildar aldraðra við Hrafn-
istu í Hafnarfirði," sagði Pétur,
„en auk þess hefur á árinu verið
unnið að byggingu þjónustuhúss
fyrir orlofshúsahverfi sjómanna-
félaganna í Hraunborgum, sem er
í landi jarðarinnar Hraunkots í
Grímsnesi. Þessu þjónustuhúsi er
ekki einasta ætlað að þjóna gest-
um í orlofshúsunum, heldur einnig
þeim, sem koma í Hraunborgir til
skemmri dvalar, til dæmis í tjöld-
um eða hjólhýsum.
Þá samþykkti aðalfundur Sjó-
mannadagsráðsins, sem haldinn
var nýlega, að fela stjórninni að
taka þátt í viðræðum með innlend-
um áhugaaðilum um að koma á fót
heilsubótaraðstöðu í Portúgal
fyrir sjúka, aldraða og aðra, sem
endurhæfingu þurfa og áhuga
hafa á. Með þessu vilja samtök
okkar stuðla að því að bætt verði
úr brýnni þörf þurfandi aðila um
leið og stuðlað verði að bættri
viðskiptaaðstöðu Islands við þýð-
ingarmikið viðskiptaland eins og
segir í tillögunni.
Þessi hugmynd um að koma upp
heilsubótaraðstöðu erlendis var
uppi í okkar samtökum fyrir
tveimur áratugum og þá beindust
augu manna einkum að Spáni, en
úr framkvæmdum varð ekki. Nú
er meðal annars ætlunin að ræða
við Öryrkjabandalagið og útflutn-
ingsaðila íslenskra afurða til
Rætt við Pétur
Sigurðsson, for-
mann Sjómanna-
dagsráðs um starf-
semi ráðsins, m.a.
hugsanlega heilsu-
bótaraðstöðu í
Portúgal og
rekstur dvalar-
heimilanna
Portúgal um þetta mál og kanna
hug manna til þess. Það má nefna
að sjómannasamtökin á Norður-
löndum hafa fyrir mörgum árum
komið upp slíkri aðstöðu á Kan-
aríeyjum og víðar. Ég tel að það sé
enginn vafi á því að það er hægt
að veita fólki fjölbreytta endur-
hæfingu á ódýran hátt með þessu
móti, auk þess, sem í þessu er
fólgin mikil sálarleg uppbygging,
ef svo má að orði komast. Ökkur
finnst að það geti vel tengst
saman sólskin og saltfiskur."
507 vistmenn á
dvalarheimilum
um áramótin
Nú rekur Sjómannadagsráð
dvalarheimili fyrir aldraða sjó-
menn og sjómannaekkjur í
Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað
dvelur margt fólk á þessum heim-
ilum
„Um síðustu áramót dvöldu á
þessum dvalarheimilum samtals
507 manns. Á Hrafnistu í
Reykjavík voru þá 164 á sjúkra-
deildinni og 241 á vistinni en á
Hrafnistu í Hafnarfirði dvöldu 88
í eigin íbúð. Auk þess dvöldu á
Hrafnistu í Hafnarfirði 10 manns
í skammtímavistun og 4 í dagvist-
un.“
Þú nefndir hér fyrr að bygging
hjúkrunardeildar fyrir aldraða við
Hrafnistu í Hafnarfirði, væri eitt
lang stærsta verkefni Sjómanna-
dagsráðs til þessa. Hvað er áætlað
að deildin rúmi marga vistmenn
„Deildin á fullbúin að rúma 75
vistmenn og í ár er ætlunin að
byggja fyrir handbært fé og afla
þessa árs, en við vonum að þetta fé
dugi til að koma upp botnplötu og
jarðhæð heimilisins. Það hefur að
sjálfsögðu verið meginverkefni
okkar að fjármagna þessar fram-
kvæmdir en það hefur að lang-
mestu leyti verið gert með eigin fé.
Einnig vegur þar þungt samkomu-
lag, sem við höfum gert við þrjár
stúkur Oddfellowreglunnar um
ákveðið samstarf og samfara því
fjármögnun frá þeim til þessara
framkvæmda.
Það er vitanlega erfitt að segja
til um endanlegan byggingar-
kostnað við hjúkrunardeildina,
þegar kostnaður hækkar um fleiri
prósentustig í hverjum mánuði
vegna verðbólgunnar. í áætlun,
sem gerð var í aprílmánuði sl., var
áætlað að kostnaður við bygging-
una fullbúna, fyrir utan rishæðina
og án nokkurs húsbúnaðar,
kostaði um 1800 milljónir króna.
En þá er rétt að geta þess að tvær
hæðir verða búnar mjög fullkom-
inni þjónustuaðstöðu fyrir þjálfun
og endurhæfingu fyrir vistfólkið
sjálft og aðra, sem þessarar að-
stöðu munu njóta, og þar á meðal
íbúa í litlum einbýlishúsum eða
raðhúsum, sem sérstaklega verða
hönnuð fyrir aldraða og öryrkja
Nú er unnið
aö grunni
hjúkrunar-
deildarinnar
við Hrafn-
istu í Hafn-
arfirði og er
það eitt lang
stærsta
verkefni.
sem Sjó-
mannadags-
ráö hefur
unnið til
þessa.
Myndin er
af fram-
kvæmdurr
en vonast et
til að hús-
næöið get
orðið fok-
helt í lok
næsta árs
Ijósm.
Mbl.
Kristján.