Morgunblaðið - 01.06.1980, Blaðsíða 33
Varðskipin:
Aðstoða fleiri erlend veiðiskip
en þau hirða fyrir veiðiþjófnað
Varðskipin okkar og varðskipsmenn
eru yfirleitt lítið í fréttum, nema þegar við
höfum staöið í þorskastríðum, og þeir gómað
erlenda veiðiþjófa innan landhelginnar.
Þessi „floti“ okkar telur ekki mörg skip.
Þau hafa þó staðið fyrir sínu og ekki látið
deigan síga, þó mikið hafi gengið á. Er
baráttan við brezka Ijónið eflaust minnis-
stæðust í því sambandi.
Varðskipin eru ætíö á ferðinni við
gæzlustörf í kringum landið og úthaldstími
15 dagar, síðan hvíld í Reykjavíkurhöfn í fjóra
daga. Þau gegna einnig mikilvægu hlutverki
við ýmiss konar björgunar- og hjálpar-
störf og hafa oftast haft meiru að sinna viö
að aðstoða erlend veiöiskip en aö hirða þau
fyrir veiðiþjófnað.
Þá er ótalinn þáttur þeirra til aðstoðar
við auknar slysavarnir við strendur lands-
ins, og hafa þau ætíð veriö slysavarnafélögum
til reiðu í því sambandi. Eftirlit meö vitum
hafa þau einnig annast og margt fleira
mætti telja.
Meöfylgjandi myndir voru teknar af
blaðamanni Morgunblaðsins Fríðu Proppé,
er hún fór með varðskipinu Óðni í eftirlitsferð í
björgunarskýli Slysavarnafélags íslands á
Hornströndum fyrir skömmu. Skipherra
var Helgi Hallvarösson, en myndirnar skýra
sig bezt sjálfar og gefa smáinnsýn í störf
varöskipsmanna.