Morgunblaðið - 27.06.1980, Side 2

Morgunblaðið - 27.06.1980, Side 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1980 Undirbúningur Alþingishátíð- arinnar á Þingvöllum hófst mörg- um árum áður en hún skyldi haldin. Lengi hafði verið rætt í blöðum og tímaritum á hvern hátt yrði best viðeigandi að halda slíka hátíð og þar settar fram ýmsar skoðanir, m.a. um lengd, stað og dagskráratriði. Sjö manna hátíð- arnefnd var skipuð í október 1926 og 15. nóvember var formaður hennar kosinn og hún hefur störf fyrir alvöru. Hér verður á eftir gerð nokkur grein fyrir starfi nefndarinnar á sjálfum hátíða- höldunum, og er efniviður sóttur í bók Magnúsar Jónssonar, Alþing- ishátiðin 1930, og að nokkru í Morgunblaðið frá þessum tíma. I nefndinni sátu allan tímann og unnu launalaust í fjögur ár að undirbúningi Alþingishátíðarinn- ar: Tryggvi Þórhallsson forsætis- ráðherra, Asgeir Asgeirsson for- seti Alþingis, Jónas Jónsson dómsmálaráðherra, Sigurður Egg- erz fyrrum forsætisráðherra, Jó- hannes Jóhannesson fyrrum for- seti Alþingis, en hann var kosinn formaður nefndarinnar, Magnús Jónsson síðar ráðherra og Pétur G. Guðmundsson. Framkvæmda- stjóri nefndarinnar var ráðinn Magnús Kjaran stórkaupmaður, og hóf hann störf þegar nær dró hátíðinni. 10-14 daga hátíð? Löngu áður en hátíðarnefndin tók til starfa, höfðu menn tjáð sig Sigurður Nordal, Árni Pálsson og dr. Guðmundur Finnbogason. Þetta var árið 1927. Búist við 30 þúsund gestum Snemma mótuðust að mestu tillögur um umfang hátíðarinnar og hvar hún skyldi haldin. Urðu Þingvellir fyrir valinu og dagskrá ráðgerð 2—3 daga. Þá var og áætlað og ráðstafanir miðaðar við að milli 20 og 30 þúsund manns myndu sækja hátíðina. Var ákveð- ið að menn hefðust við í tjöldum á Þingvöllum og sá nefndin um að reisa kringum 4 þúsund 5 manna tjöld og útvegaði hún einnig teppi ef menn vildu. Að öðru leyti sáu menn sjálfir um viðleguútbúnað. Til að fá sem flestar hugmyndir um hátíðahöld af svipuðu tagi, var safnað upplýsingum um erlendar hátíðir, sem nýlega höfðu þá verið haldnar, m.a. Rúðuborgarhátíð- ina, Eiðsvallahátíðina 1914, Kan- adaafmælið 1925, Helsingjaeyrar- hátíðina og 300 ára afmæli Gauta- borgar 1923, en nefndin tók öllum erlendum hugmyndum með varúð, m.a. vegna sérkenna staðhátta og hinnar íslensku hátíðar. Margar ferðir fór hátíðarnefndin til Þing- valla til að athuga staðhætti og gera sér sem ljósasta mynd af því hvernig skipa mætti hinum ýmsu atriðum, stórum og smáum, en allt varð að vera skipulagt út í ystu æsar, þar sem búist var við svo miklu fjölmenni. Þá er einnig oft minnst á, í umræðum manna á meðal og skrifum, að vanda verði sérstaklega vel til hátíðarinnar þar sem svo margir erlendir gestir komi til landsins. Þeir verði að geta borið hátíðinni vel söguna og verið um leið landkynning góð. Hljómsveit Reykjavíkur fékk styrk til að geta æft sem best og ráða erlenda kennara. Einar H. Kvaran var formaður dómnefndar er valdi hátíðarljóðin og með honum unnu að því Árni Pálsson, Guðmundur Finnbogason, Jón Sigurðsson og Páll ísólfsson. Voru valdir úr þrír flokkar eftir Einar Benediktsson, Davíð Stefánsson og Jóhannes úr Kötlum. Voru höfundar kvaddir til viðræðna um ljóðin og þeim gefinn kostur á að vinna frekar að þeim og síðar samþykkt að velja flokk Davíðs Stefánssonar til flutnings. Ljóð Einars Benediktssonar fengu og fyrstu verðlaun og ljóð Jóhannes- ar úr Kötlum 2. verðlaun. Tón- skáldum, sem höfðu áður lýst áhuga á að semja hátíðarlög, voru send ljóðin og kvað dómnefnd að veita skyldi Páli ísólfssyni fyrstu verðlaun og Emil Thoroddsen önn- ur verðlaun. Carl Nielsen, tón- skáldið danska, sat í dómnefnd ásamt Sigfúsi Einarssyni söng- málastjóra og Haraldi Sigurðs- syni píanóleikara. íþróttasambandi íslands var falið að undirbúa þátt íþrótta ásamt framkvæmdastjóra, list- sýning og heimilisiðnaðarsýning voru undirbúnar af sérstökum nefndum. Fjöldi boðsgesta Rúmu ári fyrir hátíðina var tekin afstaða til þess hverjum skyldi bjóða og var boðið tveimur fulltrúum frá Norðurlöndunum og Bretlandi, írlandi, Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Sviss, Tékkóslóvakíu, Austurríki, Portúgal, Spáni, ítalíu, Bandaríkj- unum og Kanada og einum full- trúa frá Færeyjum, Isle of Man, Norður-Dakóta, Minnesota, Mani- Telft djarft en þriggja daga hátíðahöld tókust vel í blöðum og tímaritum um það hvernig mætti halda upp á þúsund ára afmæli Alþingis á sem vegleg- astan hátt. Komu þar fram ýmsar tillögur um hátíðahöldin og í grein Jóhannesar Jósefssonar í Lesbók Morgunblaðsins í nóvember 1926 er þeirri hugmynd varpað fram, að hátíðin stæði eigi skemur en 10-14 daga og fari hún fram bæði á Þingvöllum og í Reykjavík. Því má skjóta hér inn í, að Jóhannes Jósefsson kom meira við sögu Alþingishátíðarinnar þótt hún stæði ekkf svo lengi sem hann vildi, en Hótel Borg, sem hann byggði, var einmitt fullsmíðað og tekið í notkun rétt fyrir hátíðina og kom í góðar þarfir, enda margt erlendra gesta þá í heimsókn. En þrátt fyrir öll skrif um hátíðina og boilaleggingar manna var það svo að þær snertu oftast annað fremur en hátíðina sjálfa. Menn komu auga á svo margt sem þyrfti að gera og æskilegt væri að hrinda í framkvæmd á þessum tímamótum. Hátíðarnefndin fékk auk þessara greina, sendar tillög- ur til sín beint og vinsaði hún úr það sem nota mætti. í fyrstunni beindist starf hátíðarnefndarinn- ar m.a. að þessum málaflokkum: Staðarval (Reykjavík eða Þing- vellir), söngur og hljóðfæraslátt- ur, hátíðarljóð, íþróttir, samstarf við bæi og héruð, sýningar, hús- næðismál, vegamál, erlendir gest- ir og ýmsar aðgerðir á Þingvöll- um. I sumum málaflokkunum voru skipaðar undirnefndir, t.d. í tón- listarmálunum og sátu í henni Sigfús Einarsson dómorganisti, Jón Laxdal og Árni Thorsteinsson tónskáld, Jón Halldórsson söng- stjóri og Páll Isólfsson, og sérstök nefnd annaðist undirbúning hátíð- arljóðanna og skipuðu hana dr. Hátíðagestir taldir kringum 30 þúsund f/i.fiiVgiir/m/in. Tivhwí bnrhiillivtm. I .ftfir i*ierir**im. Signriíiir Tnnrrz. Júliiiiiue* Jiiliiiiiiii‘**iin. fiirniin'litr nrluiluriiinar. Wiiiniii. /iin.Min. I’iinr f. í,ii/)inii/ii/.Moii. Júnu.* /linviiin. Viðkvæmur staður Erfiðast viðureignar á Þingvöll- um var að koma góðu skipulagi á tjaldstæði, hátíðarsvæðið og svæði þar sem menn gátu sótt ýmsa og nauðsynlega þjónutu og samgöng- ur þarna á milli. Var í því sambandi t.d. rætt hversu breiðar brýr þyrfti yfir Öxará til þess að manngrúinn gæti gengið þar greiðlega yfir og án þess að alltof langar raðir mynduðust. Ef þrír gengju samsíða yfir mjóa göngu- brú, var búist við, að röðin gæti náð 5—10 kílómetrum, svo aug- ljóst var að gönguleiðir yrðu að vera sem greiðastar milli þeirra svæða, sem drægju að sér athygl- ina í það og það skiptið. Þá var og viðkvæmt að hrófla við nokkru á þessum sögufræga stað, enda var gert aðeins það sem með minnsta móti var komist af með. Er talið, að það hafi allt tekist vel, og eftir hátíðina virtist staðurinn ekki illa útleikinn, enda hafði umgangur allur verið góður. Eftir tveggja ára starf, í októ- ber 1928, þegar nefndin hafði haldið 55 fundi, var Magnús Kjar- an ráðinn framkvæmdastjóri hennar, en þá varð ljóst orðið, að enn yrði að herða róðurinn svo að takast mætti að ljúka öllum störf- um í tæka tíð. Var hann í hálfu starfi um veturinn, en frá vorinu 1929 ráðinn í fullt starf. Hélt nefndin 80 fundi seinni hluta starfsferilsins og starfaði ekki síður utan funda. Nú var aðallega unnið að því að fastbinda ýmsar þær hugmyndir og dagskráratriði, sem rætt hafði verið um og fá menn til að annast þau. Jón Halldórsson og Páll ísólfsson voru ráðnir söngstjórar, Jón átti að stjórna karlakórssöng og Páll flutningi hátíðarljóðanna, toba og Saskatchewan. Sumar þjóðir sendu fleiri fulltrúa, land- inu til meiri sóma, og færðu því gjafir og fyrirspurnir komu og frá enn öðrum þjóðum um það, hvort þau myndu ekki fá boð og hvort sendiherrar ríkja fengju ekki boð. í bók sinni segir Magnús Jónsson m.a. um boð þessi: „Eins og nærri má geta, var margt rætt og samþykkt út af komu þessara boðnu fulltrúa, sem hér verður ekki skýrt frá. Yfirleitt var hér mikið vandamál, sérstak- lega að stýra milli skers og báru um það, að sýna boðsgestum heiður og alúð, án þess að um broslega ofrausn eða nokkur fleðulæti væri að ræða. Þeim voru sendar upplýsingar allar um há- tíðina eftir því sem þær voru fyrir hendi. Þeir höfðu hér ókeypis vist meðan hátíðin stóð, var í sjálfs- vald sett að hafa konur sínar með sér og reynt að gera þeim það til skemmtunar sem unnt var. T.d. voru Elliðaárnar þeim til afnota, er gaman hefðu af laxveiði. Þá var fulltrúum hvers lands ætlaður sérstakur förunautur, er gæti leið- beint þeim um allt og verið þeim til aðstoðar og skemmtunar. Voru það ekki venjulegir ferðamanna- túlkar, heldur þjóðkunnir menn, jafningjar fulltrúanna, er fallnir voru til þess að verða kunningjar þeirra og vinir. Á sama hátt var konungi ætlaður förunautur, svo og ríkisarfa Svía. Mun þetta hafa mælzt sérstaklega vel fyrir hjá fulltrúunum og gert þeim komuna bæði ánægjulegri og gagnlegri til fróðleiks um land og þjóð.“ Auk þessara sérstaklega boðnu gesta, var haft sérstakt samband við íslendinga í Vesturheimi og komu þaðan hópar. I samráði við Blaðamannafélag íslands var skipulögð móttaka erlendra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.